Alþýðublað Hafnarfjarðar - 20.12.1992, Síða 20
20
Alþýðublað Hafnarfjarðar
íþróttaannáli 1992
í umsjón Leifs Garöarssonar
Úlfar Jónsson Islands- og NorÖur- Ölöf Maria Jónsdóttir Islands- Inga Magnúsd. og Sigurður Héðins- Björgvin Sigurbergsson Islands-
landameistari í golfi.
meistari í golfi stúlkna 1518 ára. son Islandsm. öldunga í golfí. meiatsri í holukeppni í golfi.
/slandsmeistarar Bjarkanna í tromp-fímleikum.
Nína Björg Magnúsd. Islands- Elva Rut Jónsdóttir var í ööru
meistari í fímleikum. sœti á íslandsmótinu í fímleikum.
Unglingameistarar Hafnar/Jarðar í sundi.
Lilja María Snorradóttir Islands- og Davíð Freyr Þórunnarson fjór-
Evrópumeistari í sundi fatlaðra. faldur Islandsmeistari í sundi.
Hafnfirskir íþróttamenn hafa á
árinu sem nú er að Iíða, staðið sig
með miklum ágætum, í flestum
greinum íþrótta sem stundaðar eru
innan íþróttaféíaganna í hænum.
íþróttafólkið okkar hefur farið víða
og afraksturinn verið góður. Margir
íslandsmeistaratitlar eru í höfn og
góð afrek hafa unnist.
Hér á eftir fer umfjöllun um helstu
afrek í þeim íþróttagreinum sem
mest hafa verið í sviðsljósinu í ár og
það helsta ritjað upp.
GOLF
Golfvertíðin í ár einkenndist enn
einu sinni af frábærum árangri Ulfars
Jónssonar. Þótt ótrúlegt megi
virðast er Úlfar enn í framför og
bætir sig með hverju árinu. Hlýtur
því að fara að styttast í það að
pilturinn gerist atvinnumaður í
greininni.
Úlfar hefur líklega ekki náð lengra en
hann gerði í sumar þegar hann varð
Norðurlandameistari einstaklinga í
keppni sem háð var í Grafarholti.
Þar kepptu allir bestu kylfingar
Norðurlanda og urðu þeir að “lúta í
gras” fyrir Úlfari.
Keilismenn fóru einnig hamförum á
Islandsmeistaramótunum í golfi. Alls
féllu fimm titlar í skaut Keilisfólki og
er það stórglæsilegur árangur.
Títtnefndur Úlfar Jónsson varð
Islandsmeistari í meistaraflokki karla
en sú rimma var háð í Grafarholti.
Fyrirfram var spáð miklu einvígi milli
Sigurjóns Arnarsonar úr Golfklúbbi
Reykjavíkur og Úlfars. En þegar leið
á keppnina komu yfirburðir Úlfars
glögglega í Ijós og hann sigraði
nokkuð örugglega.
Olöf María Jónsdóttir varð Islands-
meistari stúlkna 15 - 18 ára en sú
keppni fór fram á skemmtilegum
golfvelli á Hellu. Olöf María er án efa
efnilegasta golfkona landsins í dag og
ef hún heldur réttu gripi um kylfuna
mun hún ná langt, á því leikur enginn
vafi. Þrátt fyrir ungan aldur náði hún
einnig langt á Islandsmótinu í
meistaraflokki kvenna og var valin í
landsliðið í kjölfarið.
Annar upprennandi kylfingur,
Björgvin Sigurbergsson, varð
íslandsmeistari í holukeppni í sumar.
Holut.eppnin var haldin í Leirunni á
Suðurnesjum og er frábrugðin öðrum
golfkeppnum að því leiti að taldar
eru sigraðar holur.
A Islandsmóti Öldunga sem haldið
var á Hvaleyrinni unnu Keilismenn
tvöfaldan sigur. Gamla kempan
Sigurður Héðinsson sigraði í
karlaflokki og Inga Magnúsdóttir í
kvennaflokki. Það virðist eiga vel við
þau Ingu og Sigurð að eftir því sem
árunum fjölgar, fækkar höggunum.
Það sannaðist hvergi betur en á
Meistaramóti Keilis að innan vé-
banda klúbbsins er fjöldi frábærra
kylfinga. Þar varð Úlfar Jónsson,
besti kylfingur landsins, að játa sig
sigraðan. Guðmundur Sveinbjörns-
son sigraði Meistaramótið og lék
frábært golf allan tímann. Hann lék
72 holur á nýju vallarmeti eða 267
höggum eða 5 undir pari vallarins.
Slíkar tölur hafa hingað til aðeins
sést erlendis.
A sama móti setti Björgvin
Sigurbergsson ótrúlega glæsilegt
vallarmet á 18 holum þegar hann lék
á 61 höggi eða 7 undir pari.
Þórdí$ Geirsdóttir varð kvenna-
meistari Keilis en hún lék 72
holurnar á 308 höggum. Þórdís
sýndi þar að hún er enn í fremstu
röð golfkvenna hér á landi.
Þá varð Egill Sigurjónsson ung-
lingameistari Keilis.
Ekki er hægt að segja skilið við
Golfklúbbinn Keili án þess að
minnast á frábært 460 fermetra
klúbbhús sem vígt var í sumar. Með
myndarlegum stuðningi Hafnar-
fjarðarbæjar er þar komin upp glæsi-
legasta aðstaða sem sést hefur hér á
landi. Öll félagsaðstaða Keilis batnar
hér til mikilla muna og ekki veitir af
því alltaf fjölgar þeim sem vilja leggja
golfíþróttina fyrir sig.
FIMLEIKAR
Fimleikaárið var viðburðaríkt hjá
Björkunum sem endranær. Fimleika-
félagið Björk átti þátttakendur í
fjölda móta, bæði í einstaklings-
keppnum og hópakeppnum. Þá
komu Bjarkirnar mikið við sögu í
keppnum við erlendar fimleika-
stúlkur.
Athyglisverðasti árangur ársins 1992
var tvímælalaust frammistaða
stúlknanna á Islandsmótinu. Mótið
sem fór fram dagana 20. - 22. mars
var eign Bjarkanna frá upphafi til
enda og átti félagið m.a. helming
keppenda.
Nína Björg Magnúsdóttir varð
íslandsmeistari samanlagt. Hún
hlaut 67.775 stig í 1. sætið. Sú sem
veitti Nínu mesta keppni var stalla
hennar úr Björk, Elva Rut Jónsdóttir.
Hún hlaut 67.475 stig og hafnaði í
öðru sæti. Þær Nína Björg og Elva
Rut sigruðu í æfingum á einu áhaldi
en þær hlutu sömu einkunn fyrir
æfingar á slá, 8.70. Þá voru þær
ofarlega á öðrum áhöldum.
Nína Björg gerði það ekki enda-
sleppt á árinu því hún varð einnig
Unglingameistari í fimleikum en sú
keppni fór fram í Garðabæ í apríl.
Nína Björg hlaut samanlagt 34.80 stig
og hlaut m.a. 8.90 fyrir æfingar sínar
í stökki. Sem fyrr var það Elva Rut
Jónsdóttir sem barðist við Nínu um
gullverðlaunin. Elva Rut hlaut
samanlagt 32.95 stig á Unglinga-
meistaramótinu, hæst 8.90 fyrir
æfingar á gólfi.
Samhliða Unglingameistaramótinu
var haldið Seniormót fyrir yngri
stúlkurnar. Þar náði Þórey Elísdóttir
besta árangri Bjarkanna og hlaut
samanlagt 33.175 stig.
Um háveturinn, nánar tiltekið í
febrúar héldu yngstu fimleika-
stúlkurnar á skrúfumót til Akureyrar.
Þar náðu þær góðum árangri og
sigruðu tvær þeirra í sínum aldurs-
hópum. Saga Jónsdóttir sigraði á 3.
þrepi í keppni 13-14 ára og Helena B.
Jónasdóttir sigraði á 3. þrepi í
keppni stúlkna 15 ára og eldri.
Bjarkirnar hafa verið í fremstu röð í
svokölluðum trompfimleikum frá því
að kepnni hófst hér á landi. A
Islandsmótinu í mars, sem fram fór í
íþróttahúsinu við Strandgötu, sigraði
Danshópur 1 og Danshópur 2 hafn-
aði í þriðja sæti. Stúlkurnar sem
skipa sigurhópinn eru Álfheiður
Gunnarsdóttir, Lára S. Hrafnkels-
dóttir, Hulda S. Jóhannsdóttir, Gígja
Þórðardóttir, Helga H. Sigtryggs-
dóttir, Linda S. Pétursdóttir, Hrönn
Hilmarsdóttir og Sigríður Ragnars-
dóttir. Þessar stúlkur tóku síðan
þátt í Norðurlandamótinu í tromp-
hópakeppni sem fram fór á árinu.
Bjarkirnar héldu myndarlegt
innnanfélagsmót í apríl og þar komu
stúlkurnar fram, ýmisst í keppni eða
sýningaratriðum.
Nína Björg Magnúsdóttir sýndi það
og sannaði að hún er fremsta
fimleikakona Bjarkanna í dag og varð
hún meistari í áhaldafimleikum.
Framfarabikararnir voru einnig
veittir og féllu þeir í skaut Steinunnar
Ketilsdóttur fyrir áhaldafimleika og
Huldu Sólveigar Jóhannsdóttur fyrir
almenna fimleika.
SUND
Það blotnaði hressilega í sund-
fólkinu í Sundfélagi Hafnarfjarðar á
árinu. Árangurinn varð þó þegar
komið var að bakkanum jafn og
dreifðust titlarnir á fleiri sundmenn
en oft áður.
Fyrsta stórmót ársins var
Innanhúsmeistaramótið í apríl. Þar
náðist ágætis árangur. Birna Björns-
dóttir hlaut þar tvenn silfurverðlaun
og ein bronsverðlaun. Alfreð
Harðarson ein silfurverðlaun og Sölvi
Már Sveinsson tvenn brons-
verðlaun. Þá bætti yngra sundfólkið
sig verulega á þessu móti.
Á Aldursflokkamótinu í júlí var
yngra sundfólkið í sviðsljósinu. Þar
fór fremstur Davíð Freyr Þórunnar-
son, bráðefnilegur sundgarpur, en
hann stóð fjórum sinnum á efsta
þrepi sem sigurvegari í sínum
keppnisgreinum. Sundfélagið hlaut
mikinn fjölda verðlauna á þessu móti
og má nefna þau Ómar S. Friðriks-
son, Hjalta Guðmundsson, Guðrúnu
Rúnarsdóttur og Kristján Guðnason,
allt sundfólk sem á eftir að skipa sér
í fremstu röð í framtíðinni.
Sá sundmaður sem stóð sig hvað
best á árinu er án efa Lilja María
Snorradóttir. Hún hefur sett fjöldan
allan af metum í ílokki fatlaðra
sundmanna og gefur þeim ófötluðu
ekkert eftir.
Lilja María varð Evrópumeistari í
100 metra flugsundi á árinu og setti
Islandsmet í 400m skriðsundi, 50m
skriðsundi, 200m fjórsundi og lOOm
flugsundi. Sannarlega fjölhæf
sundkona.
Lilja María keppti í fimm greinum á
Ólympíuleikunum í Barcelona í
sumar og vann til verðlauna í þeim
öllum. Útkoman aldeilis frábær, ein
silfurverðlaun og fern brons-
verðlaun.
Ungu mennirnir, framtíð sund-
félagsins, gerðu það ekki endasleppt
á árinu og þeir Ómar Friðriksson og
Hjalti Guðmundsson settu met í
sínum aldursflokkum. Ömar setti
sveinamet í lOOm baksundi og 200m
baksundi og Hjalti setti drengjamet í
50m bringusundi, lOOm bringusundi
og 200m bringusundi.
Sundmeistaramót Hafnarfjarðar var
haldið í maí og þar varð Birna
Björnsdóttir meistari í kvennaflokki
og Arnþór Ragnarsson meistari í
karlaflokki.
Unglingameistarar urðu Valtýr
Sævarsson, Kristín Harðardóttir,
Davíð Þórunnarson, Guðrún Rúnars-
dóttir, Ómar Friðriksson, Eva Dís
Björgvinsdóttir, Davíð Þ. Arnarson
og Sunna Björg Helgadóttir.
SH tók þátt í bikarkeppninni 1. deild
í nóvember og hafnaði þar í 4. sæti.
Liðið var örlítið breytt því Arnþór
Ragnarsson gekk til liðs við Sund-
félag Suðurnesja fyrir mótið en Elín
Sigurðardóttir kom aftur heim til
Hafnarfjarðar. SH syndir því aftur í
1. deild að ári.
KNATTSPYRNA
Knattspyrnukarlar riðu ekki feitum
hesti frá þessu sumri en knatt-
spyrnukonur gerðu betur. Á ótrú-
legan hátt mistókst Haukastelpum að
tryggja sér sæti í 1. deild með því að
tapa síðasta leiknum í úrslita-
keppninni í haust. Það var reyndar
eini leikurinn sem tapaðist allt heila
sumarið.
HAUKAR
Sem fyrr sagði voru það stelpurnar
í Haukum sem náðu bestum árangri í
sumar. Meistaraflokkur kvenna lék
alls 14 leiki í sumar, sigraði 11 leiki,
gerði tvö jafntefli og tapaði einum
leik. Þær fóru ósigraðar í gegnum
riðilinn en þar gerðu þær eitt jafntefli
og sigruðu í hinum níu leikjunum.
Alls skoruðu þær 46 mörk og fengu á
sig 9.
I úrslitakeppninni sigruðu þær tvo
leiki, gerðu eitt jafntefli og töpuðu
gegn KA á Akureyri í úrslitaleik um
hvort liðið kæmist í 1. deild. KA
sigraði 1-0 í leiknum og skoraði
sigurmark sitt fimm mínútum fyrir
leikslok í leik sem Haukastelpurnar
áttu frá upphafi til enda. En það eru
mörkin sem telja og því leika þær
áfram í 2. deild.
Það verður á enga hallað þegar sagt
er að Bergþóra Laxdal, fyrirliði, hafi
farið fremst Haukastúlkna. Hún
skoraði alls 24 mörk í sumar og varð
markadrottning sumarsins í 2. deild.
Hún skoraði 19 þessara marka í
riðlakeppninni og 5 í úrslitunum.
Haukar eignuðust fslandsmeistara í
yngri flokkum kvenna á árinu. 3.
flokkur og 4. flokkur kvenna urðu
báðir meistarar og er því óhætt að
segja að framtíðin í kvennaknatts-
pyrnunni sé björt hjá Haukum. Ekki
skemmir hin glæsilega aðstaða
þeirra á Ásvöllum fyrir í því sam-
bandi.
Meistaraflokkur karla lék í 3. deild
og átti sínar hæðir og lægðir í sumar.
Liðið var komið í baráttuna um sæti í
2. deild en þá kom mjög slakur kafli
hjá liðinu og var eins og metnað
vantaði til að takmarkið næðist.
Liðið lék 18 leiki í deildinni og
sigraði í sex leikjum, gerði fimm
jafntefli og tapaði sjö leikjum.
Haukar skoruðu 33 mörk en mark-
verðir liðsins þurftu að hirða
knöttinn 35 sinnum úr neti sínu. Alls
féllu því 23 stig liðinu í skaut.
Guðmundur Valur Sigurðsson, sú
gamla kempa, varð markakóngur og
besti leikmaður Hauka í sumar.
Valur gerði 10 mörk og átti jafnbesta
sumarið af leikmönnum liðsins.
Þjálfari Hauka var Óskar lngi-
mundarson en þeir hafa nú ráðið
gamla refinn Ólaf Jóhannesson til að
stýra þeim upp á við.