Jólatíðindin - 24.12.1934, Síða 4
4
JÓLATÍ ÐINDIN
Hættulegur leikur.
Dýratemjari nokkur fór frá ein-
um stað til annars með dýrabúr-
ið sitt. Mesta athygli vakti risa-
slanga, sem hann hafði tamið.
Hafði hann keypt hana fyrir 25
árum og lánast að temja hana.
Hún stóð nú, enn sem fyr,
efst á leikskránni hans. Nú ætl-
aði hann að sýna hana. Hann
heilsaði fyrst áhorfendunum. Nú
urðu allir óðfúsir að sjá. Slang-
an, kyrkislangan ægilega, átti nú
að vefja sig utan um tamninga-
manninn í öllu meinleysi. Og hún
kom og hnitaði hvern hringinn
af öðrum utan um manninn og
að lokum sást varla i hann. Þá
hóf slangan höfuð sitt, lét smella
í tungunni og teygði sig fram að
áhorfendunum, en þeir æptu af
fögnuði og klöppuðu saman lóf-
unum.
En þá heyrðist alt I einu brak-
hljóð. Andlitið á dýratemjaran-
um afmyndaðist ógurlega. Síðan
rak hann upp óp — augun
brustu — hann var steindauður.
Slangan hafði vafist þéttara og
fastara að honum, en hún var
annars vön að gera, og hann
þurfti ekki meira með.
Nú var hann búinn að leika
sér að þessari slöngu í 25 ár og
allt af hefði hún farið að boði
hans og bendingu. En nú var
sú stundin komin, er það átti að
verða öllum ljóst að máttur hans
megnaði ekkert móti magni slöng-
unnar.
Alveg fer á sama hátt, hvar
helzt sem menn leika sér að synd-
inni og vilja láta hana hjálpa sér
til að njóta lífsins og koma fram
fyrirætlunum sínum.
Það er fífldirfsku leikur! Fyrr
eða síðar lætur hún manninn
kenna á mætti sinum og sá, sem
beitti henni i hagsmunaskyni sér
til handa, verður að lokum undir,
já, missir ef til vill lífið.
Til jólanna:
Dömukjólar og peysur, silkiundirsett, siikináttkjólar,
dömu- og herra-treflar, manshetskyrtur og allskonar
barnafatnaöur.
Lítið á vöruna og þá munuð þið sjá að hvergi er
ódýrara né betra en í
Vefnaðarvöruverzlun Bj. Bjarnasonar.
Allar nauðsynjar
til jólanna.
«
Kaupfélagid.
♦
♦
♦
♦
♦
♦
♦
♦
♦
Kaupum ávalt velverkaða
skreið hæsta verði.
Fiskimjöl li. f.
Torfnesi.
isafirdi.
♦
♦
♦
♦
♦
♦
%
♦
Bezta jólagjöfin
er konfektkassi úr
ISAFOLD.
Bezt að kaupa í
APÓTEKINU
Ilmvötn, Púður, Gream, Sápur,
Tannpasta, Hárvötn og allar aðrar
hreinlætisvörur.
Stærst lírval í bænum.
Mikid lirval af
Kaffistellum
ofl
Bollapörum.
Lágt verd.
KAUPFÉLAGIÐ.
Munið eftir
Jólapottinum.
J ólatréð.
Hátt frá grænum trésins topp
töfrar jólaglansinn,
«PP með sönginn, hefjum hopp,
hefjum gleðidansinn.
Vertu hægur, hafður bið,
hrærðu’ ei rúsínunni við.
Fyrst skal horfa’ á forðann
fara svo að borða ’ann.
Anna hefir enga ró,
ólm vi 11 fá sinn pakka,
fær hann Óli ekki þó
efni’ f vetrarfrakka!
Nonni bumbu fagra fær,
furðu kátur hana slær.
Þarna litla Þrúða,
þetta er lagleg brúða.
Börn, þið hafið dansað dátt,
drekkið nú og borðið;
ei þið megið hafa hátt
hafa vil jeg orðið:
Yndi, gleði, yl og sól
ykkur færi þessi jól,
ljómi Ijósið bjarta
lengi í ykkar hjarta.
Verzlun
Jóns A. Þórólfssonar
á í s a f i r ð i
hefir jafnan til sölu ýmiskonar
verkfæri, járnvörur, útgerðarvörur,
sjóklæði, vinnufatnað, málningar-
vörur, skíði og fleira.
Fyrir jólin: Kerti,rafmagnsperur,
fægilögur, bronce, lakk á hÚS-
gögn og gólf, handsápa, rakvélar,
flögg, barnaverkfæri, burstavörur
allskonar.
Nýkomin skíði (frá kr. 4,50 par-
ið), skíðastafir, skfðaáburður(notk-
unarreglur á íslenzku), skíðaskór,
snjógleraugu, hálestar, bakpokar,
glóðarnetalampar og lugtir. Gólf-
mottur og gangadreglar.
)) ItemiN) & Olsem (CIÉ
Gleðileg jól!
Gott og farsælt nýár! >
Með þökk fyrir viðskiftin á liðnu ári.
Gfunnar Akselson.
Jóla- og nýárs-samkomur Hjálpræðishersins.
25. des. kl. 8Va siðd. Jólasamkoma.
26. —
26. —
27. —
28. —
28. —
28. —
29. —
29. —
30. —
30. —
30. —
31. —
1. jan.
2. jan.
2. —
3. —
kl.
2
8
3
2
5
8
2
8
2
5
8
H7a
872
3
8
3
siðd.
Opinbert jóiatré fyrir börn. Aðgangur 25 aur.
Opinbert jólatré fyrir fullorðna. Aðgangur 50 aur.
Qamaimenna jólatréshátíð.
Jólatréshátið sunnudagaskólans.
—— kærieiksbandsins.
----- Æskulýðsféiagsins.
---- fyrir börn, sérstaklega boðin.
---- Heimilasambandsins.
Sunnudagaskóii.
Opinbert jólatré fyrir fullorðna. Aðgangur 50 aur.
Hjálpræðissamkoma.
Bænasamkoma.
Nýárssamkoma.
Jólatréshátfðar í Hnífsdal:
Gamaimennahátíð.
Opinber jólatréshátíð. Aðgangur 50 aur.
Jóiatréshátíð fyrir börn.