Jólatíðindin - 24.12.1934, Blaðsíða 5
J ÓLATÍÐINDIN
5
Uppeldi og mentun,
sem menn g’eta veitt
sér sjálfir.
Frægur maður lieíir sagl: »Sá
þáttur uppeldisins er beztur,
sem maðurinn veitir sér sjálf-
ur«. Það uppeldi, sem skólarnir
veita, er ekki nema byrjun, og
heíir í aðalatriðum eigi gildi
nema að svo miklu leyti, sem
það æfir andann og venur hann
við stöðuga ástundun og nám.
Það, sem aðrir veita oss, verð-
ur ávalt svo miklu síður andleg
eign vor, en það, sem vér öíl-
um oss með kappsamlegri sjálfs-
viðleitni. Þekking sá, sem vér
öllum oss með sjálfsviðleitni,
verður oss sú eign, sem oss
heyrir sjálfum lil að fullu og
öllu.
Áhrif þau og hugmyndir, sem
vér öílum oss með því móti,
festast í huga vorum og verða
ljósari og kröftugri en nokkurn
tíma getur átt sér stað með það,
sem oss verður veitl með
fræðslu annara manna. '
Þessi tegund sjálfsmentunar
veitir hæfileikum vorum sér-
slakan styrk. Ef vér höfum innt
eitt verkefnið af hendi, verður
oss hægra fyrir að inna afhendi
bið næsta, og þekkingin breyt-
ist þannig f leikni. Sjálfsvið-
leitni vor er aðalatriði í öllu
uppeldi; engin ytri hjálparmeð-
ul, bækur, kennarar, engin ut-
anaðkunnátta getur komið oss í
hennar stað.
Djúpsæi og nákvæmni eru
nauðsynleg skilyröi fyrir því,
að sérhvað það, sem unnið er,
geti borið ávöxt. »Eitt í senn« er
lögmál, sem gildir, jafnt sem
annarstaðar, þegar vér erum að
afla oss þekkingar, þegar mörg
járn eru böfð í eldinum í senn,
þá brenna sum þeirra. Það er
ekki fróðleiksmagnið, sem mestu
varðar, heldur bitt, hversu vér
gelum látið verða til sannrar
nytsemi.
Þvl er það, að líiill mælir
þekkingar, sem menn hafa til-
einkað s'ér nákvæmlega og full-
komlega, hefir ávalt meira gildi
í mannlífinu en yfirborðsþekk-
ingin, sem kemur svo víða við.
Ein af meginsetningum þeim,
sem Ignatius Loyala, höfundur
Kristmunkareglunnar, var það,
að »sá kemur mestu til vegar,
sem leysir eitt verk í einu vel
af hendi«. Frægur enskur fög-
fræðingur hefir látið uppi við
einn af vinum sínum leyndar-
vísdóm hamingju sinnar í lífinu
með þessum orðum:
»líg einsetti mér, þegar égfór
að lesa lög, að lileinka mér sér-
hvert efni, sem ég fengist við,
til fullnustu, og skilja hverl at-
riði út í æsar, áður en ég byrj-
aði á hinu næsta. Margir af
keppinautum mínum lásu miklu
meira á einum degi en ég á
heilli viku. En að ári liðnu var
þekking mín mér jafn fersk í
minni og þegar ég allaði mér
hennar; en hinum var hún al't-
ur á móti fallin úr minni«.
Vér verðum að afla oss sér-
hverrar þekkingar svo, að vér
w
Urval af ódýrum jólagjöfum,
sem of langt yrði hér upp að telja.
En komið og athugið vörurnar og verðið.
Matthías Sveinsson.
Athugið!
Eins og undanfarin ár
kaupir fólk ódýrustu
og bestu jólagjafirnar í
Verzl. Dagsbrún.
Jólavörur
í Gamlabakaríinu á Isafirði:
Jólasveinar
Súkkulaði
og Marcipaner.
Desert
' Konfekt
Jarðarber
og Ananas.
Piparkökur, Pipar-,
Vínber
Epli
Appelsinur
Bananar
Stór og smá kerti,
Jólaöl
og Gosdrykkir.
Marcipan-ávextir allskonar.
Stórt úrval
Konfekt í skrautöskjuin og
lausri vigt.
Val- og Hasel-hnetur, Knack-möndlur.
Niðursoðnir ávextir
í heilum og hálfum dósum.
Sultutau
í glösum og lausri
vigt.
Prýðilega vel skreyttar jólatertur.
v __________
Nýr rjómi.
Framleiði allar venjulegar brauð- og köku-
tegundir í fjölbreyttu úrvali, auk þess er nú
bakað fyrir jólin þýzk jólabrauð, sem
eru sérlega bragðgóð og nærandi.
Komið 1 búðina og litið á úrvalið.
Reynið viðskiftinl
Gamlabakariið.
Sími 37.
'(0 :
:
C E
(ö É
V) -
OJ
<P
*o
<n
0
<o
Fiskimjölsverksmiðja
Björgvin Bjarnason
höfum hana fyllilega á voru
valdi hvenær sem vera skal.
Með því eina móti getur hún
orðið oss að fullum notum í
líflnu. Þess vegna er það ekki
nóg, að vér höfum heilar raðir
af bókum standandi í bókahyll-
um vorum, til þess að vér get-
um ílett upp í þeim, þegar vér
viljum fá eitthvað að vita. Vér
verðum að hafa þá þekkingu í
oss sjálfum, sem llfið lieimtar
af oss, til þess að vér getum
notað hana þegar hennar er
helst krafist. Það er ekki nóg, að
vér höfum heila innstæðu heima
hjá oss, en engan eyri í vasan-
um. Vér verðum allstaðar að
hafa með oss heila fúlgu af
gangmynt þekkingarinnar, svo
að vér séum viðbúnir að láta
hana af hendi við hvert tæki-
færi. Að öðrum kosti erum vér
tiltölulega hjálparvana, hve nær
sem oss býðst tækil’æri til að
beita þekkingu vorri.
Það er hið eina, sem veitir
oss aðgang að virðingu annara
manna, að vér beilum rétt þeim
hæfileikum, sem oss er trúað
fyrir. Sá, sem ver eina pundinu
sínu á réttan hátl, á jafnmikinn
heiður skilinn og sá, sem hefir
fengið tín pund til umráða. í
raun og veru fylgja því engu
meiri persónulegir verðleikar,
þótt vér höfum ágætar gáfur
heldur en þeir verðleikai’, sem
fylgja miklum arfi. Hvernig
er þessum hæfileikum beitt?
Hvernig er þessum arfi varið?
Margur getur eins og hrúgað
saman miklum þekkingarforða
í anda sínum, þótt. hann geri
það eigi í neinum nytsömum
tilgangi. Hann liggur á því eins
og ormur á gulli, eða fer með
hann eins og þjófur með þýfi
sitt, felur það fyrir öllum öðr-
um. Þekkingin verður að vera
samfara réttsýni og speki; ann-
ars er hún einskis virði.
Lestur góðra hóka getur verið
nylsamur og fræðandi; en samt
er hann ekki nema önnur hhð-
in á voru andlega uppeldi, og
heíir miklu minni áhrif á and-
iegan vöxl vorn en verkleg
reynsla eða góð fyrirmynd.
Vér lifum voru líli. Það líf er
einskisvert, ef enginn öðrum lif-
ir og ekki neitt er gert; í frjálsri,
góðri framkvæmd er fólgið lífið
manns, og andinn í því lííi er
— andi kærleikans.
wrwwwwwwrwww
Nýkomnar vðrur.
Lægst verð.
Einar
& Kristján.
aupir eins og áður,
um alt landið, hörð
og blaut fiskibein hæsta
verði.
ÁÁÁÁAAAÁAAAÆ
Kaupið og lesið
JÓLA-HERÓPIÐ.