Ljós og sannleikur - 01.11.1919, Síða 8
72
Ljós og sannleikur
Kirkjan stendur við aðalgötuna og liggur
því ágætlega við því, að þar verði unnið stór-
kostlegt starf fyrir Guðs ríki. Hönd Guðs
vinnur sannarlega undursamlega í þessum
bæ.. Honum einum sé öll dýrðin og heið-
urinn!
Þeir könnuðust við þá, að þeir
höfðu verið með Jesú.
Post. 4, 13.
Sæll er sá, sem hefir djörfung til að segja
öðrum til syndanna og gerir það á réttan
hátt, leiðist af anda Guðs. Öldungana í Jerú-
salem furðaði á djörfung postulanna Pét-
urs og Jóhannesar; þá furðaði á þekkingu
þeirra, rökfimi, mælslcu og djarfmælum.
f’eir vissu eigi, hvaðan þeir gátu haft það,
ólærðir menn og leikmenn. En þá kom þeim
í liug, að ekki væri hægt að skýra það nema
með einu móti:
J>eir könnuðust við þá, að þeir
höfðu verið með Jesú.
Að vera með Jesú, er að lifa í samfélagi
við hann, hafa hann sífelt i huganum, elska
hann af öllu lijarta, fá leiðsögn hjá honum,
gera hann að daglegum förunaut, vera hon-
um samhuga í öllum áformum og tilgangi,
finna til nálægðar hans og samþykkis í öllu,
gera alt honum til dýrðar, hafa orð hans
iðulega um liönd til íhugunar og dæmi lians
sífelt fyrir augum, sjá auglit hans í skuggsjá
ritningarinnar. þetta dagl. samfélag við hann
veldur, að vér göngum fram í hinu skínandi
ljósi af lífi han's, veldur því, að vér ummynd-
umst til hinnar sömu myndar, frá dýrð til
dýrðar, með því að það kemur frá Drotni,
andanum. (2. Kor. 3, 18). pá sést verkið,
scm hann vinnur í oss, þá sjást merkin af
lífi hans í lífi voru. pessi liking kemur fram
í daglegu lífi voru og lunderni, aðrir sjá,
að það eru áhrifin af sameiningu vorri við
hann; það bendir þeim til hans, sem er frels-
arinn.
„Ljós og sannleikur“ er gefið út í Reykja-
vík, fyrst í hverjum mánuði, eftir Drottins
handleiðslu.
Hjálp er með gleði þegin, ef Guð leggur
það á yðar hjarta.
Utanáskrift til útgefanda:
Páll Jónsson, Laugaveg 20 B.
Reykjavík. Sími 322.
Lj ósgeislar.
Fáeinar línur úr Jobsbók: Er maðurinn
réttlátur fyrir Guði, nokkur mannkind
hrein fyrir skapara sínum? Sjá, þjónum
sínum treystir hann ekki, og hjá englum
sinum finnur hann galla.
Gremjan drepur heimskingjann og öfund-
in deyðir einfeldninginn.
¥
Einn deyr í mestu velgegni, fullkomlega
áhyggjulaus og ánægður; trog hans eru full
af mjólk og mergurinn í beinum lians er
safamikill. Annar deyr með beiskju í huga
og hefir aldrei notið hamingjunnar. peir
hvíla báðir í duftinu.
*
Elstu mennirnir eru ekki ávalt vitrastir.
*
Sælir eru hjartaln-einir, því að þeir munu
Guð sjá.
*
Sælir eru þeir, sem ofsóttir verða fyrir
réttlætis sakir, því að þeirra er himnarikí.
*
J?ér eruð Ijós heimsins; borg, sem stend-
ur á fjalli, fær ekki dulist. Ekki lcveikja
menn heldur ljós og setja það undir mæli-
ker, heldur í ljósastikuna, og þá lýsir það
öllum, sem eru í liúsinu. pannig lýsi ljós
yðar mönnunum, til þess að þeir sjái góð-
verk yðar og vegsami föður yðar, sem er á
himnum.
Félagsprentsmiðjan.