Ljós og sannleikur - 01.01.1920, Page 4

Ljós og sannleikur - 01.01.1920, Page 4
84 Ljós og sannleikur kristna trú um þær sló'öir. Hann var einn þeirra heiðingja, sem leituðu Guðsaf heilum hug, eins og spekingarnir Sókrates, Seneca, Epiktet og Markús Aurelíus keisari. í tölu þeirra var og íslendingurinn Þorkell máni, sonarsonur Ingólfs landnámsmanns, „er einn heiðinna manna hefir best siðaður verið, að því er menn vita dæmi til. Hann lét bera sig í sólargeisla í banasótt sinni, og fal sig í hendi þeim Guði, er sólina hefði skapað; hafði hann og lifað svo hreinlega, sem þeir kristnir menn, er best eru sið- aðir“. — Það er Korneliusa r-b 1 æ r yfir þessari lýsingu. Um þær mundir er Kornelius var uppi, var sú þrá vöknuð hjá mörgum heiðingjum, að þeir mættu þjóna hinum eina sanna Guði á þann hátt, að þeir þyrftu eigi að ganga undir ok Gyðing- dómsins og lögmálsokið. Þeir vildu eigi lifa undir lögmáli, heldur undir náð, lögmálið höfðu þeir þegar í samvisku sinni, en náðina ekki: fyrirgefningu syndanna og eilíft líf. í Nýjatestamentinu eru alls nefndir fimm höfuðsmenn og allir fá þeir gott orð fyrir fram- komu sína og lifnað sinn allan. Kornelius var góður eiginmaður og faðir og leiddi alt fólkið á veg ráðvendninnar og guðsóttans. Og trú hans var starfandi í kærleika, hann gaf miklar ölmus- ur, bæði Gyðingum og heiðingjum. — Og und- irrót lifnaðar hans var bænrækni hans. Hann lifði eftir þeirri náð og þekkingu, sem hon- um var gefin og þráði æ meiri náð og meiri þekkingu. Áminning Péturs postula: „Vaxið í náð og þekkingu Drottins vors Jesú Krists" hefði fall- ið í góðan jarðveg hjá honum. Afleiðingin af lifnaði hans var sú, að hann var virtur af öllum, Gyðingum og heiðingjum sjálfsagt líka. Enginn heiðingi gat því veriö betur fallin til inntöku í kristna söfnuðinn, til að brjóta niður hleypidóma Gyðinganna; þeir Gyðingar, sem kristni höfðu tekið, áttu óhægt með að synja honum inntöku í söfnuðinn. — Svona leiðir Drottinn menn um þá vegu, sem auðsóttastir eru, til að koma sínu fram. Engillinn segir við Kornelius: Bænir þínar og ölmusugjörðir eru stignar upp, til þess að Guð m i n n is t þeirra. Þær voru m i n n i n g- a r f ó r n: „M i n s t u m í n, ó, Guð!“ Þessi l>æn var stöðugt á vörum Gyðinga. „M i n n i n g~ a r f ó r n var sá partur matfórnarinnar kallað- ur, sem presturinn brendi á altarinu — hand- fylli af hveiti ásamt olíu og reykelsi —; steig sú fórn upp til Drottins, eins og sætur ilmur.“ Malakías spámaður segir, að frammi fyrir aug- liti Guðs sé rituð minnisbók fyrir þá, sem ótt- ast Drottinn og virða nafn hans“. í þá bók hafa bænir og ölmusugjörðir Korneliusar ver- ið ritaðar: Guð minnist þeirra, Guð náðarinnar, scm g e f u r eilíft líf, í Jesú Kristi Drotni vor- um, án allrar vorrar verðskuldunar og tilverkn- aðar. „Hann mun frið og frelsi veita finna munu þ e i r, s e m 1 e i t a.“ Kornelius var að leita náðargjafa Guðs, synda- fyrirgefningarinnar og eilífa lífsins. Hverjar eru vorar minningarfórnir? Þær eru eða ættu að vera margar. Enginn veitr hve víða b æ n i r stíga upp fyrir Drottin. Marg- ur einn snýr sér til Guðs í kyrþey og einveru: iðrandi syndari biður fyrirgefningar fyrir drýgð- ar syndir, og um náð Guðs, foreldrar biðja fyrir villuráfandi barni sínu, systir fyrir þverbrotn- um bróður, áhugamikill kristinn maður fyrir viðgangi kristindómsins, um öfluga trúarvakn- ingu, um ríkulega gjöf heilags anda — og eklci týnist eitt af þessu'm bænaror ð - um —• Guð ritar þau í minningabók- i n a sína. Pétri var ætlað að fullna' stari engilsins. Pétur gat gert meira en engill- inn fyrir Kornelius. Þess vegna hefir einhver prédikari sagt: „Hversu lítilfjörlegugr prédik- ari sem eg kann að vera, þá get eg prédikað fagnaðarerindið betur en sjálfur Gabríel, þvt að Gabríel getur ekki sagt það, sem eg get sagt r Eg er syndari, hólpinn af náð.“ Kornelius sendi tvo heimamenn til Péturs- með ntiklum fögnuði; þeir voru ráðvandir og guðhræddir, eins og hann sjálfur. Sá húsbóndi, sem talar iðulega um trúarefni við heimamenn sína, öðlast dygga þjóna. — Pétur v a r u n d i r bú in n a f D rbtni til að taka á móti sendimönnum Kornelíusar. Það gerir Guð ávalt, er hann ætlar einhverjum þjóna sinna að reka sérstakt erindi fyrir sig; Hann býr þá undir það. Svona var það með Filippus og höfðingjann frá Etiópiu, þá Sál og:

x

Ljós og sannleikur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ljós og sannleikur
https://timarit.is/publication/479

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.