Liljan - 01.01.1916, Blaðsíða 7
LIL J AN
á
vík. Hugsjónir þeirra eru þær, að byrja snemma að
æfa sig í ýmsum andlegum og líkamlegum íþróttum.
Andlegu íþróttirnar, sem þeir eiga að temja sér, eru
þær, að Iæra hlýðni, sannsögli, gott orðbragð, dreng-
skap og kurleisi í framgöngu, sjálfsaga og sjálfsaf-
neitun, trúmensku í starfi sínu og iðni í námi sinu.
Líkamlegu íþróttirnar eru ýmsar, t. d. lieræíingar,
skolfimi, skátaæíingar, leikíimi, sund og glímur o.
s. frv. eftir því sem þeir eldast og tæki eru til.
Karlmenska og hreysti í orði og verki, andleg og
líkamleg, á að vera einkenni þeirra, og með öllu
þessu eiga þeir að vera kristnir drengir, sem með
fullri vitund og vilja eiga að læra öllu fremur að
elska Guð og þjóna konungi sínum, Jesú Kristi. Lit-
irnir á einkennisbúning þeirra minna þá stöðugt á
þetta. Kyrlillinn hvítur og blár minnir þá á fóstur-
jörðina, að þeir séu íslendingar og vilji verða íslandi
góðir synir. Sldkkjan rauð og hvit minnir á saklej'si
og kærleika, og á það, að þeir eigi að vera stríðs-
menn Krists og berjast vasltlega móti sollinum og
öllum freistingum. Húfan rauð og hvít og blá minnir
á Kristilegt félag ungra manna (K. F. U. M.), að verða
því góðir liðsmenn og eíla það og ástunda allar liug-
sjónir félagsins. Blált, hvítt og rautt eru litir félagsins,
eins og stendur í fánasöng yngstu deiklarinnar (Y-D):
»Hvíil á hreina hjartað minni,
heimsins soll er varast æ;
blátl á himins björtu kynni
beinan veg um lífsins sæ;
rautt á Jesú benja-hlóð,
bræðrakærleik, von og trúarglóð«.