Liljan - 01.12.1916, Qupperneq 14
102
LILJAN
krónu, sem fyrir blaðið fer, er vel varið, þvi að með hennr
aflar áskrifandinu sér góðs og fróðlegs lesmáls og styrkir
um leið gott málefni.
Pað sem gjörir oss mögulegt að selja »Liljuna« svona
ódýrt, er að starf við ritstjórn og afgreiðslu er unnið end-
urgjaldslaust af meðlimum »Værinpjafélagsins« og velunn-
urum. Væringjafélagið, sem er bæði fátækt og ungt, réðst
i að gefa út þetta blað í trausti þess, að margir foreldrar
hér á landi, eins og i öðrum löndum, hefðu opin augun
fyrir því ómetanlega gagni, sem drengir hafa af því að kynn-
ast slíkum drengjalélögum, sem leggja stund á þroskun
anda, sálar og likama bjá hinum ungu og upþrennandi
sonum þóðarinnar. Vér byrjum nýjan árgang í trausti þess,
að margir foreldrar hafi vit á að svala lestrar- og fróðleiks-
fýsn barna sinna á réttan hátt og taki því »Liljuna«, eftir
þeirri reynslu, sem á er komin, fram yflr ýmislegt rusl, sem
drengir annars lesa. Hver drengur á íslandi ætti að kynn-
ast skátahreyfmgunni og K. F. U. M. Vér vonum, að allir
gamlir og nýir áskrifendur »Liljunnar« stuðli að þvi eftir
megni með þvi að afla »Liljunní« nýrra kaupenda og vekja
athygli foreldra og barna á henni.
Fyrsti árgangurinn fæst, innan skamms, innheftur á 1. kr.
og »Skátahreyfingin« fæst sérprentuð á afgreiðslunni í
Austurstræti 7 (uppi), sem er opin virka daga kl 6—7 síðd.
Svo þökkum við áskrifendum og styrktarmönnum fyrir
hið liðna og óskum þeim öllum
Reykháfar.
Stofnandi K. F. U. M., George Williams, kom eitt sinn í
K. F. U. M. í bæ einum. Eftir fund tóku ýmisir af félögun-
um upp hjá sér vindling og fóru að reykja. Pá sagði G. W.:
»Haldið þið, vinir minir, að Guð hefði ekki skapað mann-
inn með reykháf upp úr höfðinu, ef liann liefði ætlað
lionum að reykja«.
Blaðið ábyrgist: A. V. Tulinius, yfirdómslögmaður.
AfgTeiðslu og innlicimtu
annast Gtiðm. H. Pétursson Austurslræti 7 Reykjavik.
Prentsmiðjan Gutenberg.