Kirkjublað - 15.01.1934, Blaðsíða 11
KIRKJUBLAÐ
23
Um skeið dvelur höf. í Lapplandi og varpar þá ljósi yfir lif og hug-
niyndaheim hinnar barnslegu norrænu hirðingjaþjóðar. Síðan bregður
hann sér í skyndi til Ítalíu og bregður upp ógleymanlegum mynd-
um úr lífi suðræns alþýðufólks, sem lifir frá vöggu til grafar j ein-
faldri kathólskri dýrlingatrú. Augu þessa manns nema ekki staðar
við yfirborðið á neinum hlut. Hann hvessir sjónina, svo hann sér
djúpt inn í sálir mannanna, sem hann lýsir, og ekki nóg með það:
Dýrin, sem verða á vegi hans, skilur hann, og hann talar við þau
eins og mennska menn. — Ást hans á hundum og fuglum er svo
einlæg og hrein, að hann segir mönnunum ekki ósjaldan strið á
hendur þeirra vegna. -v Enda kemur það í ljós í lok sögunnar, er
hann lýsir sínu eigin mati á Ilfstarfi sínu, sem hann klæðir í skáld-
legan búning gamalla kathólskra trúarhugmynda, — að það lið, er hann
hefir léð dýrunum á lífsleiðinni, sættir hann við tilveruna og sýnir
honum, að líf hans hafi verið einhvers virði. — Sögunni um San
Michele verður ekki lýst, svo að neinu gagni geti komið. Eina leiðin
til að vita hvað hún 'er og hvernig hún er, er að lesa hana. Ég held
að enginn geti lesið þá bók, án þess að verða dálítið vitrari og betri
við það. Útgefandinn, Pétur Halldórsson bóksali, á miklar þakkir
skilið fyrir að ráðast í að kosta útgáfuna, og stúdentarnir, sem snéru
henni á islenzku, hafa leyst hér vel af hendi vandasamt verk.
Komi riki þitt. Fimm ræður eftir L. Ragaz, þýddar af Ásmundi
Guðmundssyni háskólakennara, Árna Sigurðssyni fríkirkjupresti,
Jakob Jónssyni presti og Ingimar Jónssyni skólastjóra. Bókmennta-
félag Jafnaðarmanna gaf út.
Sá, er þessar línur ritar, verður að játa, að hann opnar prédik-
anásöfn oft með hálfum huga. Prédikanir eru sú tegund bók-
'nennta, sem segja nrá unr, að geti framar öllu öðru brugðið til
beggja vona, þegar þær eru komnar á prent, og maður fer að lesa
þær. Þær eru fyrst og fremst samdar i því skyni af höfundinum, að
hann flytji þær sjálfur og komi sjálfur í eigin persónu með þær
fram jyrir áheyrendur. Og prédikun, sem getur hrifið mann og haft
hjúp áhrif á mann, þegar svo er ástatt, getur orðið næsta jninn og
úhrifalítil, þegar maður fer að lesa hana á prenti, og því fremur ef
e*n ræðan er lesin eftir aðra, — heil bók spjaldanna á milli. — En
l>eim manni má vera undarlega farið, sem leiðist að lesa þessa bók.
Þessar fimm ræður eru hver annari snjallari, og þýðendunum hefir
fekizt að klæða ]>ær íslenzkum búningi, sem er þeim samboðinn. —
Prédikanirnar snerta þjóðfélagsmál. Ragaz prófessor, er einn þeirra
dtánna, sem lítur á sósíalismann sem rökrétta niðurstöðu kristinnar
fffsskoðunar. Réttlæti, bræðralag, samhjálp og eining eru aðals-
drerki kristins þjóðféiags, og sósíalisminn er i hugsjón sinni sú stefna
aé hans dómi, sem keppir að því að glæða þessar dygðir hjá
Wóðunum og láta þær gagnsýra löggjöf og skipulag rikja. — Meg-