Ljósvakinn - 01.01.1923, Blaðsíða 15

Ljósvakinn - 01.01.1923, Blaðsíða 15
LJÓ3VAKINN 39 ar hvökkuðu. Það varð sami bragur vfir hádeginu sem miðnætti«. Hér kemur svo önnur frásögn frá því, sem gerðist þanri daginn og sýnir sú saga, að fólk, sem þá var á lífi var sannfært um, að þetta kynlega myrkur var tákn frá Guði um það, að endirinn væri í nánd. »Fjöldi fólks«, segir hr. W. R. Coc- hrane í sögu sinni af Antrim-borg í New-Hampshire, »hélt að heimsendir væri að koma. Menn krupu á kné til bænar úti á ökrunum; margir hlupu til nágranna sinna til að játa ranglæti silt og biðja fyrirgefningar. Múgur manna ruddist inn i samkomuhús borganna, þar sem slík hús voru og þar gengu aldraðir prestar og guðhræddir á milli þeirra og Guðs og kröfðust iðrunar af þeim. Og hvarvetna hugsuðu kærulausir menn á þeim mikla degi undra og ótta til synda sinna og til skapara síns«. »Þetta er undursamlegt«, hrópaði frú Lawrence. »Já, sannarlega er það það. En takið nú eftir. Uin sama leyti varð tákn á tungli líka. Jesús segir að lungl- ið muni sortna, en í Opinb. 6, 12, sýnir Jóhannes, að sortinn á tunglinu þýði, að það verði sem blóð á að líta. »Hefir það líka ált sér stað?« »Já, nóltina eftir dimma daginn, varð tunglið blóðrautt á lit. Eg ætla að lesa fyrir yður, hvað sumir, sem sáu það, sögðu um það. Hérna hefi eg frásögn rilara eins í »Njósnara Mastachusetts- fylkis«. Hann sagði. »Dimman um nóttina var eigi síður óvanaleg og ægileg en myrkur dagsins. Þó að tunglið væri í fyllingu, þá sáu menn ekki handa sinna skil og svo var myrkrið þétt, að Ijósgeislar gátu varla roíið það. Það var eins konar Egipta- lands-myrkur. Annar ritari skrifar; »Hinn 17. mai 1780 man eg svo vel. Eg var þá 16 ára. Foreldrar mínir sem voru guðhrædd, héldu að dómsdagur væri fyrir höndum. Þau voru á fótum um nóttina og sögðu að myrkrinu hefði lélt af með öllu seinni part næturinnar, og varð þá himininn eins og bann er venjulega, en tunglið, sem var í fyllingu var rautt sem blóð. Óttinn sem þetta vakti og live tíðrælt mönnum varð um það, varð rótgróið í huga minum«. Einhver hr. Tamy í Exeter á Nýja- Englandi, segir viðvíkjandi nóttinni 19. maí 1780: Myrkrið var líklega eins nið- dimt og nokkru sinni hefir orðið, síðan Guð almáttugur lét Ijósið brjótast fram úr myrkrinu i öndverðu. Mér fanst þá stundina, eins og ekki mundi hafa orð- ið algerðara myrkur, þó að allar stjörn- ur hefðu liorfið af himninum í einu. Héldi maður hvitri pappírsörk fáa þuml- unga frá augum sér, þá sást hún eigi fremur en ef hún hefði verið svartasta silkiflos, og hve nær sem tunglið sást á þessari minnilegu nótlu, þá var það rautt eins og blóð«. »En nú komum við að þvi sem merki- legast er i þessum spádómi«, sagði frú Brooks, »eg á við stjörnuhrapið, það hefir ræst fyllilega«. »En hvernig gátu stjörnurnar hrapað«? spurði frú Laurence, dálítið vandræða- leg. »Ó, Jesús hefir auðvitað ekki átt við ,staðstjörnurnar‘, sem vér sjáum á himn- inum á hverju kvöldi. Ef einhver sú stjarna hrapaði til jarðar, þá færumst við öll á einni svipstundu. F*að er skyn- samlegast að halda, að Jesús hafi átt

x

Ljósvakinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ljósvakinn
https://timarit.is/publication/486

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.