Ljósvakinn - 01.01.1924, Page 2

Ljósvakinn - 01.01.1924, Page 2
2 LJÓSVAKINN sem af vana hafa haldið sig vera ör- ugga fyrir langan tíma, eru nú byrjaðir að sjá, að þeir eru í hættu staddir og þeir óttast komandi óhamingju, enda þótt hún sé ef til vill ekki fyrirsjáanleg. Vér höfum hugsað oss heim, sem er með öllu ólíkur þeim heimi er vér hugðum að vér hefðum framundan. Vér héldum að vér værum að reisa oss það, sem hefði traustan grundvöll, eitt- hvað, sem vér gætum leitt til fullkomn- unar. Vér spyrjum og það af eðlilegum ástæðum: »Hvað heíir orðið úr þessum draumi?c< Pannig fórust höfundinum orð. Vér endurtökum það, sem vér þegar höfum sagt, að núverandi ástand heimsins gef- ur til kynna að koma Krist er fyrir höndum. Athugið eftirfarandi atriði: 1. Samkvæmt Heilagri ritningu skyldu hinir síðustu dagar meðal annars þekkjast á því, að margir mundu prédika um frið á jörðu, og slíkar ræður heyrum vér nú á tímum þrátt fyrir allan óróann (Es. 2, 1.—8.). 2. Heilög ritning kennir, að í staðinn fyrir að þessar friðarprédikanir verði að raunveruleika i lífi fólksins, muni á sama tíma verða öflugur undir búningur undir stríð og að þessi undirbúningur skuli vera merki þess, að endurkoma Krists er í nánd (Jóel 3, 14.—21.). 3. Kristur sagði að hinir síðustu dag- ar mundu verða líkir dögum Lots og Nóa, en einkenni þeirra daga var óhóf í mat og drykk, gáleysi, óvirðing fyrir hjónabandinu o. s. frv. (Lúk. 17, 26.—30.) Vér sjáum greinilega uppfylling þessa spádóms. 4. Postulinn Jakob talar um það strið, sem mundi koma upp á atvinnu- mála- og þjóðfélagssviðinu, stríðið milli auðs og atvinnu. Einnig þetta stendur sem merki um, að endir allra hluta er nálægur. 5, Heilög ritning bendir ennfremur á, að hið ríkjandi ástand í heimi trú- málanna verði talandi tákn upp á endirinn; andlegt fráfall mun láta til sín taka; mennirnir munu gleyma Guði og láta leiðast af sínum eigin fýsnum. Petta sést einnig uppfyll- ast á vorum dögum á svo greini- legan hátt að ekki verður misskilið (2. Pét. 3, 1.—5.). 6. Utbreiðsla andatrúarinnar, hinum verstu svikum, sem heimurinn nokkru sinni hefir þekt, er einnig uppfylling hins spámannlega orðs og sýnir, að vér nálgumst sögu- endir þessa heims (Opinb. 16, 13. 14.). Pað er að visu satt, að það ástand, sem Biblían þannig fyrir segir á svo mörgum sviðum, hefir einnig þekst að meira eða minna leyti á umliðnum tím- um; en vér verðum að gæta að þvi, að hin umrædda afstaða hefir aldrei áður verið eins almenn og tiltalandi eins og nú, auk þess sem alt sem fyr- irsagt er í spádómunum um vora tíma rennur saman eins og í einn miðdepil, vitnandi að tíminn til að frelsari vor komi aftur, er fyrir höndum. Merkin um komu hans finnum vér ekki ætíð í hverju einstöku atriði, sem talað er um hér að framan, heldur í þeim öllum sem heild. Alt ber þess vott, að núver- andi þjóðfélagsstofnanir séu að leysast upp. Frelsari vor sagði í spádómi sín- um í Lúkasarguðspjalli 21. kap. að verða mundi »á jörðinni angist meðal þjóðanna í ráðaleysi við dunur hafs og brimgný; og menn munu gefa upp önd-

x

Ljósvakinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ljósvakinn
https://timarit.is/publication/486

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.