Ljósvakinn - 01.07.1925, Blaðsíða 6

Ljósvakinn - 01.07.1925, Blaðsíða 6
54 LJÓSVAKINN fer í heim, fer það í gömlu fötin. Maður sparifötin, þegar maður fer að heiman, en slítur gömlu fötunum (gamla mann- inum út heima). Þar leyfir maður sjer að vera stygglyndur, ókurteis, ólipur óþolinmóður o. s. frv. Væri ekki rjett að grafast eftir orsökum til þessa ástands? Á heimilinu kemur það allra best í ljós, hvort kristindómurinn er ófalsaður eða ekki, þar verður hann að geta staðist prófið. Kristilegt heimili verður að vera bænaheimili. Ef kristindómur föður og móður, er innilegt samlíf við Guð, mun það hafa sín miklu og góðu áhrif á börnin. Hversu annríkt sem vjer eigum, megum vjer ekki vanrækja hinn daglega lestur Guðs orðs og bæn- ina á heimilum vorum. Allir meðal fjölskyldunnar mæta daglegum freisting- um. Söfnum því saman fjölskyldu vorri á hverjum degi og lesum Guðs orð, biðjum hann að vernda þá, sem vjer elskum mest, hvort sem þeir eru heima eða þeir eru fjarverandi, felum alt í hans hendur og biðjum hann að blessa alt, sem gjört er á heimilum vorum. Stjórnist maður af Guðs anda og hafi maður kærleika Guðs i hjarta sínu, verða slíkar stundir oss dýrmætari eftir því sem þær verða fleiri, þær munu oss seint úr minni líða. Bænir guðhræddr- ar og ástríkrar móöur, hafa bjargað mörgum villuráfandi syni og dóttur frá glötun. P. E. B. Ekkert þroskar hæfileika mannsins eins og lestur Guðs orðs. O Engin hamingja í heiminum getur jafnast á við þetta eina, að heyra Guði til. Biblian og fyrsti dagur vikunnar. Fyrsta frásögn Bibliunnar um þetta atriði sýnir, að það var unnið á sunnu- deginum, hinum fyrsta degi vikunnar. Petta gjörði skaparinn sjálfur. 1. Mós. I, 1-5. 1. Guð skapaði jörðina á sunnudegi, getur það þá verið synd þó að vjer yrkjum hana á sunnudegi? 2. Drottinn fyrirskipar mönnunum að vinna á fyrsta degi vikunnar. »Sex daga skalt þú erfiða og vinna alt þitt verk; en sjöundi dagurinn er hvíldardagur, helgaður Drotni Guði þínum«. 2. Mós. 20, 8.—11. Er það synd að hlýða Guði? 3. Enginn af ættfeðrunum eða spámönn- unum hjelt helgan hinn fyrsta dag. 4. Drottinn sjálfur kallar hann virkan dag. Ez. 46, 1. 5. Guð hvíldist ekki á honum. 6. Hann blessaði hann ekki á sjerstak- an hátt. 7. Kristur hvíldist ekki á lionum. 8. Postularnir hvildust ekki á lionum. 9. Hann hefir aldrei verið helgaður eða blessaður. 10. Guð hefir aldrei fyrirskipað að halda hann heilagan, og því getur það ekki verið synd að vinna á hon- um, »Því að þar sem ekki er lög- mál, þar er heldur ekki yfirtroðsla. Róm. 4 15., 1. Jóh. 3, 4. II. í Nýjatestamentinu er hvergi bann- að að vinna á honum. 12. Engin hegning er lögð við vanhelgun hans. 13. Engin blessun við helgihaldi hans. 14. Pað er hvergi minst á hvernig eigi að halda hann heilagan, myndi þá

x

Ljósvakinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ljósvakinn
https://timarit.is/publication/486

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.