Kennarinn - 01.05.1902, Síða 4
■36
KENNARINN
innri maður? Hjartasjoðurinn? — Hvað sýna orðin okkar? — Með dæmisög-
unni (43—45) sýnir Jesús, að ósönn betrun sé verri en engin. Vald hins vonda
að eins aukist. — Maðurinn þarf að betrast í sannleika og Jesús að búa hjá
honum fyrir lifandi trú.
AÐ LESA DAGLEGA. — Mán.: Sálm. 122. Þríð.: Esek. 47, 1—12. Miðv.: Esaj. 45. 18
21. Fimt.: Esaj. 45, 22—25. Föst.: Jer. 9, 23—26. Laug.: Esaj. 44, 6—8.
KÆRU BORN ! í lex. sýnir Jesús faríseunum, hvað vondir þeir eru.
Þeir höfðu sagt, að Jesús lúti hinn vonda hjálpa sér til þess að gera kraftaverk.
Hroðalega var það Ijótt. En það sögðu þeir, af því hjarta þeirra vgr vont.
Það segir Jesús þeim. En svona vont var það, af því þeir höfðu ekki viljað
snúa sér til guðs og trúa á Jesúm. Þeir vildu ekki láta Jesúm hafa áhrif á sig
til góðs, og urðu því verri og verri. Ó! hvað það er skelfilegt, börn, þegar ein-
hver vill ekki láta hafa áhrif á sig til góðs, vill ekki verða betri maður, vill ekkl
hlýða guði, en verður verri og verri. Elsku-börn! Gáið að ykkur, að þið verðið
ekki vond, og verðið verri og verri. Þegar þið viljið ekki hlýða foreldrum
ykkar eða kennurum, þá hlýðið þið ekki guði. Og þá eruð þið vond. Og ef
þið viljið ekki sjá það, að þið þá hafið verið vond, og ykkur þykir ekkert fyrir
því, og þið viljið ekki biðja um fyrirgefning, þá verðið þið verri. Biðjið Jesúm
,að hjálpa ykkur, svo hjarta ykkar verði betra og betra, og þið fáið meiri og
meiri löngun til að gera það, sem hann vill. Eins og hjarta ykkar er, eins
eruð þið. Gott tré ber góða ávexti, segir Jesús. Hann gerði ykkur að góðu
tré í skírniuni. Nú megið þið ekki skemma góða tréð hans.
,,Ó,vísdómsandi! vitna' í mér, og að eg fyrir einan hann
að vernd og líf mitt Jesús er, um eilífð hólpinn verða kann. “
TIL LEIÐBEININGAR.—Skýr fyrir börnunum, hvað farísearnir höfðu
borið Jesú á brýn. 1 hverju þeirra synd var fólgin. lívað Jesús segir um
hana. Hvernig syhdjn etur um sig og er að gera út af við manninn, ef hann
iðrast ekki. Ger ekki lítið úr neinni synd. Sýn af trénu og ávöxtum þess,
hvernig breytnin (góð— ill) er ávöxtur hins innra ástands.
riilNITAriS—25. Mai.
(Þrenningarhátíðin.)
I-Ivaða sd. er í dag? Hvert er guðspjallið? Jesús og Nikódemus. Hvar
stendur það? Jóh. 3, 1—15.
Hvað segir nú guð um öll boðorðin? — Eg, drottinn guð þinn, er vandlátur
guð, sem vitja feðra misgjörða á börnunum í þriðja og fjórða lið, á þeim sem
mi^hata, en auðsýni miskunn í þúsund liðu, þeim sem mig elska og boðorð mín
varðveita.
H ver voru efni og minnistextar tvo seinustu sunnudaga? Hvar stendur
lexían á sunnud. var? 1. Hvaða synd verður ekki fyrirgefin? 2. Hvað sagði
Jesús að koma myudi fyrir á dómsdegi? 3. Við hvað líkir Jesús ósannri betr-
un? Hver er lexían í dag? Hvar stendur hún? Lesum hana á víxl. Les upp
minnistextann.