Máni - 13.01.1917, Síða 5

Máni - 13.01.1917, Síða 5
M Á N I 5 á Geldingalæk og gaman nóg. Þessi aukastörf — öll í þágu saubaræktar og sáluhjálpar —, launar báðum landssjóðurinn af fúsum vilja þótt fátækur sé. Eísa mundu nú Rangæingar öndverðir gegn atferli þessu væri þeim eigi öllum lokið : þætti sama hvað þingið gerði! L.eikhúsið. Hinn frægasti leikur sjónar og heyrnar, sem sézt og heyrst hefir frá byggingu íslands, var leikinn hér í borginni í gær á tímanum frá kl. 2—5 síðdegis — stóð þannig yfir í 3 kl.stundir. Leikur þessi var leikinn af svo mikilli list, að undrun gegnir, og því má hans ekki ógetið vera. Nafn hans kann ég eigi að greina, en heyrt hefi ég að hann héti Skollatapið. Áður en ég fer lengra út í að iýsa list leikenda, vil ég geta hverjir þeir voru, sem lóku aðal-hlutverkin. Leikhetjurnar voru: Mattó og Gíslis, því næst: Þorstjoð, Bjarnvog, Jónmagn, Jónhvann og Magnguð. Auk þeirra voru 19 þagnleikendur (Statister). Áhorfendur og heyrendur biðu með hinni mestu þrá og fýsn eftir leikslokum. Leikurinn var í því fólginn, að hetjurnar komu með þingsályktunartihögu, er var áslcorun til landsstjórnar um það að brjóta stjórnarskrána. Átti þetta brot að afsakast með því, að stjórnin sæi um, að bankastjórar landsbankans verði framvegis þeir menn, sem ekkert vit hafi á fjármálum, og þeim mun minna á þeim málum yfirleitt, sem þjóð og landi koma við. Með öðrum orðum, að þar ráðist að eins í bankastjórnar- sæti þeir menn, er sóu og verði heyrnarlausir og sjónlausir. En það gleymdist að fela það í tillögu þessari til þingsályktunar, að um leið yrði í lands- bankanum sett á stofn augnlækningastofa og dauf- dumbraskóli. En út úr leiknum mátti ráða að Gíslis mundi sjá fyrir þessu, sem hver annar lögfræðis- aðstoðarmaður bankastofnunarinnar. Stjórnarskrárbrotið, sem um getur, átti að eins franr að fara í þeim göfuga tilgangi að bola einum af meðlimum ráðaneytisins frá því að mega komast, að bankastofnuninni — ef hann gengi úr ráðaneytinu eða það ylti um koli — fyrir þá' sök, að hann hefði heilbrigða sál, vit og vilja á þeim málum þjóðarinnar, sem að haldi mega verða. Gegn þessu hvatti mælskumagn sitt mjög Þorstjoð, Bjarnvog og Jónhvann. Auk þeirra með sinni miklu gætni, athyggju og skynsemi Jónmagn. Því má ekki gleyma, að uggur mikill fór um hetj- urnar Mattó og Gislis, er inn á leiksviðið komu þeir Bendis og Skúlit, er leikhetjurnar hugðu heima mundu sitja og eigi til vettvangs ganga 'að þessu sinni. í það mund kom fram tíllaga frá þagnleikendum um það, að hætta hjali utn hoimskuna og hneykslið. Fékk hún fallbyr. — Úr því tók heldur að digna egg í sveröum sækjenda. Kom þá fram sá fyriiboði stórtíðinda, er menn kalla rökstudda dagskrá, frá Magnguði. Afdrif hennar þarf ekki að greina. Svo mikill geigur fór um hetjur afstyrmisins, að þeir báðu hinn æðsta mann leiksviðs- ins, er forseti nefnist, að forða sér frá þeim vandræð- um að láta atkvæðagreiðslu fram fara um sitt kál- græna afkvæmi. Yar því tekið með þegjaudi, brosandi samþykt allra þeirra er atkvæði höfðu um hlutinn. Leikurinn hafði kostað : Hálft dagsverk 26 ieikenda á 10 kr. . . — kr. 130,00 Vs dagsverk 6 skrifara, 7 kr............= kr. 21,00 Aðrir aðstoðarm. að skrifstofustj. meðt. = kr. 29,00 Alls kr. 180,00 En auk þessa kostnaðar hefir ieikurinn í för með sér hrun á virðingu þeirrar stofnunar sem leikinn hefir leikið, sem nemur meiru en áratalið frá upphafi íslands bygðar. Menn geta gert hvort sem þeim þykir betur hlýða, að kalla þenna leik Skoliatap eða Stjörnuhrap — mín vegna. 10/i—’17. Einriði.

x

Máni

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Máni
https://timarit.is/publication/492

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.