Máni - 13.01.1917, Qupperneq 6

Máni - 13.01.1917, Qupperneq 6
6 M Á N I Smekkvísi, Eins og kunnugt er, heflr byggingarnefnd Reykja- vikur leyft að reisa höll mikla suður með Tjörninni austanvert, milli Kvennaskólans og Fríkirkjunnar. Lengi vel hugðu menn, að þetta ætti að verða sumarbústaður nýju guðfræðinnar, og glöddust í bjarta sínu yflr því, að hún hefði fengið skýli yfir höfuðið, og þyrfti nú ekki framar að selja aðganginn að Haraidi né kirkjunni. En er gleðin stóð sem hæst, barst sú íregn um bæinn, að fjöldi manna ynni að ístöku í Tjörninni, og að hverju íshlassinu á fætur öðru væri ekið inn í höllina. Kólnaði þá mörgum um hjartarætur, er menn sáu hvers kyns var: Að íshúskumbaldi var bygður á fegursta stað bæj- arins, þar sem hvor byggingin stendur annari veg- legri, og það jafnvel milli kirkju og JcvennasJcóla. Og menn tóku að spyrja: Á þetta að vera jökull, sem meyjunum verður ekkí yfirkomu auðið til kirkjunnar? Eða á það að verða kínverskur varnarmúr handa þeim, sem enginn kemst yfir, og ekki einu sinni titlingar, til þess að vernda þannig þeirra „æskuástir" og „barnatrú" í saklausri klausturhelgi. Þannig spurðu menn, og á ýmsa aðra vegu, en enginn kunni þessa gátu að leysa, fyr en Tiyggvi kom til skjaianna. Iiann sagði að þetta væri gert, í þeim kristilega tilgangi, að þær héldi betur — trúnni. Þá hneigði lýðurinn sig í auðmýkt og sagði: Sælir erum vér, að vér höfum slíka bæjarstjórn I Sveinn. Raddir framliðinna. Háskóli íslands. í II. árg. Eimreiðarinnar, 1. hefti, var birt þýðing eftir sira Matthías Jochumsson á nokkrum hluta kvæð- isins „Norges Dæmiing" („Afturelding Noregs") eftir Welhaven. Aftan við það hnýtir ritstjórinn, Valtýr Guðmundsson háskólakennari, þessai i at.hugasemd: „Eirnreiðinni hefir verið sérstaklega mikil ánægja í því, að geta fiutt lesendum sínum þýðing á þessu morkilega snildarkvæði, sem getur alveg eins vel átt, við afturelding íslands eins og afturelding Noregs. Það getur verið heilsusamlegt fyrir marga íslendinga að líta í þessa skuggsjá, að minsta kosti fyrir þá, sem ekki eru enn orðnir alt of grómteknir af þeim þjóðarþvergirðingi og eintrjáningsskap, sem heldur að nútiðarþjóð vor geti lifað eingöngu á frægð feðranna og helzt vill bægja öllum útlendum mentunarstraum- um frá landinu, t. d. með þvi að hrófla upp íslenzku JiásJcólatildri1 og fleira þess konar, sem aldrei gœti oröiö annaö en apaspil, til atJilœgis fyrir útlendinga, en niöurdreps fyrir sannarlegt íslenzJct mentálíf1. Það er öðru nær en slíkt sé sönn2 þjóðrækni. Það er í rauninni ekkert annað en þjóðardramlj og Jiégóma- sJcapur1, sem getur orðið því hættulegra, sem það jafnan reynir að hjúpa sig í tælandi þjóðræknisblæju, þótt hún sé býsna götótt, svo altaf skíni í óhroðann undir, ef vel er að gáð“. Yerðlaunadrápa. Dýr er tíð og dimmar stundir, embættlingum ísafoldar. Þörf er matar, þörf er hita, þörf er Ijóss, fyrir lægra gjald. Því er eitt af aðalstörfum þingskörunga, að þessu sinni, bót að ráða á böli þessu : auka gjöldin almenningi. Ei vill Alþingi að embættismenn hrynji niður af harðrétti, eins og hrafnar út með flæði svífa gorvana á síðkveldum. 1 Loturbroyting hér. Ritstj, — 2 Leturbreyting höf.

x

Máni

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Máni
https://timarit.is/publication/492

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.