Máni - 13.01.1917, Qupperneq 7
M Á N I
7
Því, vill það úrlausn
einhverja
öilum veita
af öru geði
miðaö við íijóvsemi
manns og konu
í ektastandi
embætta.
Verður uppbótin
því að eins verðlaun
íyrir barneignir
fárra manna.
Mundu nú eigi
margir hyggja
gott til kærleika
með komandi tungli?
Víst eru ráð þessi
viturleg
og sómi Alþingi
íslendinga.
Munu orðstír þess
óbornir heiðra
og lýðfjölgun launa.
— Lokið er kvæði.
Steinn.
Frá vígstöðvunum.
Símskeyti frá fréttaritara
» M Á N A « í Miðveldum.
Herjum vorum hefir slegið saman. Miðfylkingin
réðist í gærkvöldi — um það leyti er kviknaði á
Mánanum — á hægri fylkingararm vorn. Foringi her-
deildarinnar var laminn og sparkaður ríkulega, og
fluttur í hjólbörum Rauða krossins heim til sín.
Þess vegna gerist kunnugt: að píanóistar verða
upp frá þessu að fara heim til hans eftir hijóðfærun-
um. Það verður að álítast að þetta komi til með að
hafa afarmikla hernaðarlega þýðingu fyrir miðveldin,
af því að bandamenn eru vísir að misskiija það.
*
Tilkynning'.
Ilór með tilkynnist heiðruðum viðskiftavinum mín-
um, að með síðasta Mána hefi ég fengið nægar birgðir
af alls konar sperrikkum.
Wisky ósvikið................fl. 15,00
do svikið til helminga. n 10,00 —
Coníak ósvikið n 12,00
do svikið um 2/8 . . . n 8,00
Brennivín áfengt ...... n 10,00
do óáfengt n 6,00
Spóla „betri sortin,, .... n 7,00
do lakara og blandað . . n 6,00
Handa þeim sem ekki hafa efni á að drekka þetta,
höfum við nægar birgðir af „koges" af öllum gæðum.
Auk þessa höíum við margar tegundir göfugra
drykkja, mjög þénanlegir að kveldi.
Aldrei heima fyrir kl 7.
Kili um kvartelaskiftin.
Walkjar.
Ofan af pöilum.
i.
Þau tíðindi skeðu í neðri deild Alþingis í fyrradag,
að Einar á Geldiugalæk innritaðist í grískudeild deild-
arinnar að boði dócentsins. Lét Einar sér þó fátt um
finnast í fyrstu kunnáttu dócentsins og taldi honum
tæplega borgandi. Töldu illgjarnir vöflur þær af því
runnar,' að Einar mundi blánkur og gæti ekki greitt
innritunargjaldið fyr en um sauðburð. Fókk hann og
umlíðun á gjaldinu næturlangt. Daginn eftir mætti
hann í deildinni og mæltist þá til þess við dócentinn
að haun mætti vinna af sér kenslueyririnn þá er jörð
væri þið orðin, með því, að kenna dócentinum að
skera torf og taka upp mó. Fleira kvaðst F.inar og
kent geta dócentinuin, meðal annars það, að kunna
að greina á kviðarull og taglhári.
Kvað þetta hafa orðið að samningum.
II.
í dag var neitað að veita afbrigðí frá þingsköpum
til bjargar máli einu og mest gert að orðum for-
sætisráðherra, er reis öndverður gegn því,