Máni - 13.01.1917, Qupperneq 8
8
M Á N I
Bjarna frá Vogi þótti þetta næsta undarlegt, og
sagði eitthvað í þá átt, að þar sem tíðkast hefði
áður á þessu þingi, að afgreiða öll mál með af-
brigðum frá þingsköpum, því þá ekki að fyigja þeirri
gullvægu reglu til streitu.
Gerðist þá kur á pöllum uppi, og var auðheyrt á
tali manna, að mjög fylgdu þeir Bjarna að málum
og héldu því fram, að úr því þingið hefði byrjað með
afbrigðum, þá væri sjálfsagt að það endaði með
þeim líka.
Þá tæki þjóðin minna mark á því, eins og skáldið
kvað:
Það var ekki þjóðarlán
þetta mál að skera,
því þingið mátti ekki án
afbrigðanna vera.
Hlöðvar.
Fyrirspurn.
Iíöfuðstaðurinn skýrir frá því í dag, að sleðaferðir
sóu farnar að tíðkast hér um nætur og að í þeim
taki þátt bæði karlar og konur. Lít ég svo á, að
þetta muni vera ódýr barnaskemtun og bygð á kristi-
legu samkomulagi. Og þar sem ég fann ekki náð
fyrir augum alþingis með sanngjarna dýrtíðaruppbót
vegna þess, að ég er barnlaus einstæðingur og heíi
því ekki ráð á hvorki að sækja „Bíóin" né „Gúttó“,
hefir mér dottið í hug að leita upplýsinga um, hvar
skemtun þessi er á boðstólum. Sný ég mér því til
Mánans, því kunnugt er mér það frá fornu fari, að
hann veit betri deili á flestum næturverkum heldur
en nokkur annar, og vona því fastlega, að harín verði
við tilmælum mínum og svali forvitni minni og margra
annara, er líkt stendur á fyrir. Spurull.
* *
*
Með því að Máninn er ekki nógu fullur, hefir hann
ekki tækiíæri að athuga þetta. Verður svarið því að
bíða síns tíma.
Mánaleiftur.
ABRAHAM.
Einu sinni var Abraham á kendiríi. Þa sagði guð
við hann : „Þú mátt ekki drekka svona mikið, maður,
því að hér eru bannlög í landi, og æfi þín spillist við
nautnina". Þá sagði Abraham: „Ég tek ekki mark
á þór“.
SAMVIZKAN.
Tuttugu krónur í gær. — Tíu krónur í dag. —
Peningarnir fara allir til andskotans. — En ætli það
verði ekki eitthvað eftir til að borga umganginn hjá
Pétri, bara ef maður kemst þangað fyrir helvítis
timburmönnum.
AUGLÝSÍNG.
Þú, sem tókst hann Gísla og fórst með hann yfir
í heimastjórn, skilaðu honum sem bráðast aftur;
annars verður lögreglunni vísað á þig, því að þú
þektist.
„M Á H I",
GAMANBLAÐ MEÐ MYNDUM.
Kemur út tvisvar í mánuði. Kostar í lausasölu
25 aura blaðið; fyrir áskrifendur kr. 1,25 ársfjórðung-
urinn, er boigist fyrirfram.
Framvegis verður blaðið í kápu fyrir auglýsingar.
Ritstjóri Siguröur Arngrímsson hittist fyrst um sinn
12—1 og 6—7 í Ingólfsstræti 4.
Útsölumaður Ouðmundur Davíðsson, Laugaveg 4
(Bókabúðin). Auglýsingum móttaka veitt á báðum
þessum stöðum.
MÁNAVÍSUR.
Ramminn á fyrstu síðunni stendur áfram fyrir skáld
og hagyrðinga að spreyta sig á að útfylla með vísum
um mánann, sem verðlaunast með því, að höfund-
arnir fá einn ársfjórðung af blaðinu fyrir fyrstu vísu,
sem þeir kunna að senda og verðlaunuð verður.
Hljóti sami höfundur verðlaun oftar en einu sinni,
greiðist það með andvirði ársft'órðungs blaðsins.
Prentsmiðjan Gutenberg — 1917.