Mánaðartíðindi kristilegs unglingafélags - 01.05.1900, Side 2

Mánaðartíðindi kristilegs unglingafélags - 01.05.1900, Side 2
34 MÁNAÐARTÍÐINDI. II. ÁRG. Altarisganga á skírdag. =► Höfuðviðburður ársms er altaris- gangan sameiginlega, og blessunar- ríkur er sá tími, sem gengur til að undirbúa hana. Mánuði á undan byrjuðum vér að tala um hana og varþví haldið áfram á hverjum fundi allan tímann til skírdags. Ur ung- ligadeildinni höfðu 56 piltar látið skrifa sig á altarisgöngulista fjelags- ins, og 20 ungar stúlkur úr stúlkna- deildinni, og þar að auki 38 aðstand- endur og vinir hinna ungu, svo það lið sem heyrði fjelaginu til var í allt 114 manns þar að auki voru nokkr- ir sem komu með. I fyrra voru á skírdag um 25 drengir til altaris og komu um 20 af þeim aptur nú. — Það var óvenjulega fögur sjón að sjá svo marga af hinum ungu limum safnaðarins koma saman til drottins borðs. Fiest allir af altarisgestunum komu saman kvöldið fyrir til upp- byggingar og reyndum vjer að láta guðs orð 1 hans heilögu tiulagaboð- orðum Ieiðbeina oss til rjettrar sjálfs- prófunar og undirbúnings eptir þeirri náð, sem guð gaf oss. Enginn getur útmálað þá guðdómlegu náðarkrapta sem oss hafa bætst við þessa altaris- göngu, en nú hvílir og sú ábyrgð á oss öllum, að láta þetta ekki fara til spillis, heldur ávaxta það í dáðríku og hreinu dagfari. Munið eptir að láta þessa náð guðs sýna sig kröpt- iuga í bænarlífi yðar og verða þann- ig að lifandi uppsprettu 1 hreinni æsku- gleði. Guð gefi yður náð til þess. =<X>— B isku þ V. C. Schousboe. — O — Vilhclm Carl Schousboc var prestson fæddur í Faaborg 7. sept. 1848. Hann varð stúdent við dómskólann í Ríp- um 1858, og kandídat í guðfræði 1 janúar 1764, þá 22 áragamall. Um nokkur ár var hann kennari í dönsku og leiðbeindi við nám á hernaðar- skólanum, en var síðan skipaður kennari og umsjónarmaður við skól- ann í Víborg. A meðan hann var þar, starfaði hann einnig sem her- prestur við herbúðirnar í Hald 1870 —74. Hann var hress og einarður í lund og því ágætlega lagaður fyrir þetta starf, og jafnvel eptir að hann 1875 var orðinn fastur aðstoðarprest- ur við garnisons-kirkjuna 1 Kaupm.- höfn, varð hann enn einu sinni að fara til herbúðanna sem herprestur.— 1887 hækkaði hann í hinu kirkjulega embætti með því að verða sóknar- prestur við sömu kirkju, og 1888 var hann skipaður biskup yfir Álaborg- arstipti. — »Kristilegt fjelag ungra manna« í Kaupmannahöfn misti trausta stoð og ötulan forgöngumann þar sem hr. Schousboe leið. Hann var með að stotna það 1878, og formaður þess var hann þangað til árið 1888, er hann varð að yfirgefa þá stöðu og takast á hendur biskupsembætti sitt. Hið viðkunnanlega og alúðlega dag- far hans og fjör hans og áhugi fyrir unglingafjelagsstofnuninni afiaði hon- um margra vina á meðal fjelagsmeð- lima höfuðstaðarins, og var hans því

x

Mánaðartíðindi kristilegs unglingafélags

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Mánaðartíðindi kristilegs unglingafélags
https://timarit.is/publication/493

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.