Nemo - 02.12.1926, Blaðsíða 3
N-E-M-O
3
\
V
þráða fyrirheit framkomið? Hvern-
ig mun lofsöngurinn hafa látið í
eyrum þeirra?
Pegar lofsöngnum var lokið, kom
þeim saman um, að fara til Betle-
hem. Enginn viðbúnnður var þeim
nauðsynlegur; þeir áttu að linna
frelsarann liggjandi í jötu; slíkur
staður var þeim vel kunnur; þeir
gátu komið þangað eins og þeir voru
búnir. Þess vegna hjeldu þeir tafar-
laust nf stað, komu þangað og fundu
það, sem engillinn hafði sagt þeim,
og þeir þökkuðu Guði og vegsöm-
uðu hann!
Fj árhirðarnir þögða ekki um
það, sem þeir heyrðu og sáu; þeir
sögðu mannfjöldanum, sem saman
safnast hafði í borginni, víðsvegar
úr keisaredæminu, það sem fyrir
þá bar; um komu engilsins, um lof-
sönginn og hvað við þá hafði ver-
ið sagt, og nú hjelt hver og einn
til síns heimkynnis og sagði frá því,
sem skeð hafði i Betlehem; en fjár-
hirðarnir hjeldu til hjarða sinna og
lofuðu Guð.
Jafnvel stjörnur himinsins voru
settar á hreifingu. Vitringar úrAust-
urlöndum, sem þektu ritningarnar
og væntukomu frelsarans sáu stjörnu,
er sagði þeim, að nú væri fyrirheit-
ið framkomið. Pessir vitringar voru
ekki efablandnir eða vantrúaðir;
þeir lögðu þegar nf stað til aðleita
að konungsbarninu, sem Jesajas
spámaður hafði skrifað um: „Bartt,
konungttr og Guð“. Peir vildu finna
hann og stjarnan var þeirra leiðar-
ljós og þeir fylgdu henni. En þeg-
ar þeir komu til Gyðingalanda, þá
hvarf stjarnan, eða var hulin sjón-
um þeirra.
Guð gerði þetta í ákveðnum til-
gangi. A sama hátt og hann hafði
látið hirðana boða fæðingu frelsar-
ans i Betlehem, þannig vildi hann
einnig láta vitringana tilkynna Fler-
ódesi og spekingum hans, að nú
væri konungur lsraels i heiminn
borinn. Ritningarnar voru rannsak-
aðar og það kom í Ijós, að hann
átti að fæðast i borginni Betlehem
í Judeu.
Pegar vitringarnir austurlensku
voru komnir út fyrir hlið konungs-
hallarinnar, þá kom stjarnan aftur í*
ljós á himninum, og nú hvarf hún
þeim ekki framar sjónum, fyr en
þeir voru komnir að húsi því, sem
Jesú-barnið var í. Peir gengu inn í
húsið og tilbáðu barnið og hjeldu
síðan aftur heim til sín.
Oss má vera það ljóst af atburð-
burðunum við fæðingu Jesú í þenn-
an heirn, og af því hverig fæðing
hans var boðuð, að allir geta komið
til lians, hvernig sem ástatt er fyr-
ir þeim. Vjer megum ekki gleyma
því, að það var af kærleika til vor,
að hann lítillækkaði sjálfan sig og
fæddist í þernian heirn, til þess að
fyrirbúa oss aðgang að himnaríki.
Jeg bið þess af hjarta, að þeir
sem lesa þessar línur, og sem ekki
eru á rjettri ieið til Drottins himn-