Nemo

Ukioqatigiit
Ataaseq assigiiaat ilaat

Nemo - 02.12.1926, Qupperneq 6

Nemo - 02.12.1926, Qupperneq 6
6 N-E-M-O vinir, sem móðirin átti í kaupstaðn- um, fengu vitneskju um að dóttirin var fallin fyrir synd og löstum, en þeir gátu ekki komist eftir því, hvað var orðið af henni. Móðirin fyltist örvæntingu. Hún elskaði dóttur sína svo heitt — ennþá heitara t'anst henni eftir fall hennar. Hún bað til Guðs, og hún fór til bæjar- ins, til þess að leita að týnda barn- inu sínu; hún leitaði dag og nótt, en árangurslaust. Svo datt henni gott ráð í hug. Hún ljet mynda sig og hengdi myndina upp í and- dyri eins björgunarheimilis fyrir fallnar konur. Neðan við myndina skriíaði hún: „Móðir þín bíður eftir þjer“. Pað voru margar stúlkur, sem sáu myndina þarna, en engin þekti hana. Eitt kvöld kom þangað ung stúlka. Hún horfði lengi á myndina, þar til hún hrópaði: „Petta er móðir mín, móðir mín“. Pað var sama andlitið, sem hafði beygt sig niður að vöggu hennar. Pá var það brosandi og ánægjuríkt, en nú var það hrukkótt og sorgbitið. En hún sjálf — þá var hún hrein og saklaus, en nú var hún að fyrirverða sig fyrir líferni sitt. Hún hafði viljað njóta frjálsræðis, en <var nú orðinn þræll djöfulsins. En það stóð skrifað neðan við myndina „Móðir þín bíður eftir þjer“. Móðir hennar hafði eftir því ekki gleymt henni, vesalings heim- ilislausu, glötuðu dótturinni. Pað var sem myndin hvísláði að henni: „Komdu heim litla barn, komdu heim. Móðir þín elskar þig ennþá og fyrirgefur þjer alt, já alt.“ Hún ætlaði að hníga niður. Sýn- in af mynd móðurinnar hafði snert hjarta hinnar glötuðu dóttur — hafði vakið heimþrá í sál hennar. Hún áræddi það — hlaðin sorg og smán kom hún heim. Móðir og dóttir fjellust í arma. — Dóttirin var kom- in heim. Napóleon og Kristur, Napóleon mikli sagði einu sinni á sínum síðustu dögum: „Eg þekki vel mennina. Kristur var ekki blátt áfram maður. Eg hef lifað þá tíð, að eg gat uppörfað þúsundir manna til að ganga út i opinn dauðannog láta lífið fyrir mig. En það var návist min og áhrif orða minna, sem kom þeim til þess; en nú, þegar eg er kominn í burtu frá mönnunum og lifi sem fangi hjer á St. Helena, vill enginn deyja fyrir mig. En fyrir Krist, sem er persónulega farinn burt fyrir nærfelt 2000 árum, fyrir hann vilja gjarnan miljónir manna fórna lífi sínu. Eg segi eins og fyr: Kristur er ekki blátt áfram maður, hann er meira. Eg þekki mennina!“

x

Nemo

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nemo
https://timarit.is/publication/495

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.