Mánaðarblað K.F.U.M. í Reykjavík - 01.04.1929, Síða 4

Mánaðarblað K.F.U.M. í Reykjavík - 01.04.1929, Síða 4
2 MÁNAÐARBLAÐ K. F. U. M. arann. Trygglynd og góð kona elskar mann sinn, sem drekkur og býr henni kvöl með drykkjuskap sínum, en því meir sem hún elskar hann, því meir hatar hún drykkju- skapinn. Sá sem gengur á syndarinnar vegi og hafn- ar kærleika Guðs, kemst þar með undir reiði Guðs og vanþóknun. Kærleiki Guðs er heldur ekki geðshræring, ekki veikur og dutlungafullur. Guð er kær- leikurinn, en reiði Guðs við syndina lendir á þeim rnanni, sem gefur sig syndinni á vald, og veldur honum saurgun og sviða. Samvizk- an finnur eilíft djúp staðfest milli þess, sem er rjett og rangt; reiði Guðs við syndina. sem þannig lendir á syndaranum, kallar eitt skáld „Guðs frelsandi reiði“, því að opinber- un hennar hefur þann kærleikstilgang að frelsa syndarann. En það er syndin, sem Guð hatar, samkvæmt sínu heilaga eðli, og dæmir hana. Samkvæmt rjettlæti sínu hatar hann synd- ina, af því að syndin er yfirtroðsla á lögmáli heilagleikans. Samkvæmt vísdómi sínurn dæmir Guð syndina af því að hún er heimska. Samkvæmt sínum fullkomna sannleika birtist reiði Guðs yfir syndinni, af því að hún er afneitun sannleikans og óhlýðni við sannleikann. Samkvæmt sínum heilaga hreinleika er syndin Guði andstyggð, af því að hún er saurgun og óhreinleiki. Sem hinn almáttugi skapari hefur hann vanþóknun á syndinni, af því að hún afmynd- ar og afskræmir mynd þans í manninum. Sem hinn eilífi dómari refsar hann sjer- hverri yfirtroðlu, sjerhvei’ju broti á hinum eilífu lögum. Brot á lögmáli eldsins hefur bruna í för með sjer. Sem Drottinn og konungur bælir hann nið- ur hverja uppreisn. Seni hinum eilífa föður sárnar honum við syndina, sem skilur oss, er hann elskar, frá honum. Og svo elskaði hann heiminn, hinn fallna mannheim, að hann gaf sinn eingetinn son, til ]>ess að hver sem trúir á hann, skyldi ekki glatast, heldur hafa eilíft líf. Þetta er hið mikla fagnaðarerindi Guðs til mannanna, fagnaðárerindi, sem er kraptur Guðs tn hjálpræðis hverjum þeim, sem trúir. Sá. sem hlýðir þessu og tekur á móti því og lif- ir í því, hann frelsast frá reiðinni og hin „frelsandi reiði“ breytist í hina lífgefandi uppalandi og fyrirgefandi náð. Þú, sem nú lifir án Guðs, án trúar á Jesúm Krist, þú ert nú undir reiðinni, og kemst þaðan ekki nema þú snúir þjer frá syndinni til Guðs kærleika í Jesú Kristi. Gjörðu það sem fyrst. Guð kallar á þig og þráir þig, þú varst skapað- ur honum til handa og þú fær aldrei frið fyr en þú hvílist í honum. Láttu ekki ginnast af tæliröddum veraldarinnar, nje af nokkurri stefnu, sem vill fjarlægja þig frá frelsara þínum, hvað girnilegar sem slíkar stefnur eru, því þær bera dauðann í sjer. Jesús Kristur, hinn lifandi og upprisni frelsari, er hinn einasti sem megnar að hrífa þig undan valdi syndar og dauða til eilífs frelsis guðs barna. Orð Guðs til íhugunar: „Með harðúð þinni og iðrunarlausa hjarta safnar þú sjálfum þjer reiði á reiðidegi og opinberunar guðs rjettláta dóms, sem mun gjalda sjerhverjum eptir verkum hans • Þeim, sem með staðfestu í góðu verki leita vegsemdar og heiðurs og ódauðleika, eilíft líf, og þeim, sem leiðast af eigingirni og ó- hlýðnast sannleikanum, en hlýðnast ranglæt- inu, reiði og óvild“. Róm. 2, 5—8. „Jeg er vegurinn, sannleikurinn og lífið; enginn kemur til föðursins nema fyrir mig‘„ segir Jesús. Jóh. 14, 6. Enginn lifandi maður rjettlætist fyrir hon- um af lögmálsverkum. Allir hafa syndgað og skortir Guðs dýrð og þeir rjettlætast án verðskuldunar af náð hans fyrir endurlausnina sem er í Kristi Jesú. Róm. 3, 20; 24.

x

Mánaðarblað K.F.U.M. í Reykjavík

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Mánaðarblað K.F.U.M. í Reykjavík
https://timarit.is/publication/497

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.