Mánaðarblað K.F.U.M. í Reykjavík - 01.04.1929, Page 7

Mánaðarblað K.F.U.M. í Reykjavík - 01.04.1929, Page 7
MÁNAÐARBLAÐ K. P. U. M. 5 HJARTA Eptir Edmondo de Amicis. Bók handa drengjum. Frantí kastaði brjefkúlu í hann; sumir ráku upp kattarvæl; aðrir lömdu í hausinn hver á öðrum. Það er ekki unt að lýsa óganginurii. Þá kom allt í einu dyravörður og sagði: „Ilerra kennari, skólastjóri vill finna yð- ur“. Kennarinn reis upp og hraðaði sjer út, alveg eins og örvinglaður maður. Nú urðu ól'ætin ennþá óhemjulegri en áður. En allt í einu stökk Garróne upp, sótrauður í framan. llann kreppti hnefana og hrópaði með rödd, sem titraði af reiði. „Hættið þessu. Þið eruð villidýr! Þið níðist á kennaranum af því að hann er svo mein- laus. Ef hann berði ykkur sundur og saman, munduð þið verða lúpulegir eins og hundar. Þið eruð raggeitahyski! Sá fyrsti af ykkur, sem fer að áreita hann aptur, skal mæta rnjer fyrir utan og jeg' skal mölva í honum tennurnar. Jeg sver það — jáfnvel fyrir eugunum á föður hans sjálfum!" Það varð dauðaþögn. Það var reglulega fullegt áð: sjá Garróne, hvernig augu hans leyptruðui; iíánn var eins og ungt, æðandi. ljón. Hann starði á þá ósvífnustu hvern á eptir öðrum, þangað til allir urðu niðurlútir. Þegar aðstoðarkennarinn kom aptur talsvert rauðfeygður, þá heyrðist hvorki hósti nje stuna. Hann stóð alveg undrandi. Þá sá hann Gafróne' sem enn þá titraði af geðshræring- unhi, og þá skildi hann allt og sagði í þýð- um róm: „Þakka þjer fyrir, Garróne!" “v ’ .* -*•• •'Mtfbe'; ■ r.'íö?ö^v1*... Bókasafnið hans Stardís. Jeg hef nú heimsótt Stardí. Hann á heima beint á móti skólanum. Jeg fann í raun og veru ofurlítið til öfundar, er jeg sá bókasafn hans. Ilann er alls ekki ríkur og getur ekki keypt mikið af bókum; en hann varðveitir skólabækur sínar vandlega og fer ákaflega vel með þær, og þá ekki síður með þær bæk- ur, sem ættingjar hans gefa honum. Hann sparar sarnan hvern eyrir, sem hann eignast, og ver því öllu fyrir bækur. Á þenna hátt hefur hann safnað sér dálitlu bókasafni og þegar faðir hans varð var við þessa tilhneig- ingu hans, keypti liann handa honum fall- egan bókaskáp úr hnotviði með grænu for- hengi fyrir, og flestar bækur hans hefur hann látið binda inn fyrir hann og lætur bindin vera í þeim litum, sem honum líkar bezt. Þegar hann kippir í smátaug, þá renn- ur græna forhengið til hliðar, og í ljós koma þrjár raðir af bókum með alla vega litum kjölum og gylltum bókanöfnunum. Það eru sögubækur, ferðasögur, og ljóðabækur; sum- ar eni með myndum. Hann hefur góðan skilning á að raða upp eptir litum svo að það verði sem fallegast á að sjá. Þær hvítu set- ur hann við hliðina á þeim rauðu; þær gulu við hliðina á svörtum og þær bláu við hliðina á hvítum o. s. frv. Þegar horft er á þær í dálítilli fjarlægð, er það prýðilegt að sjá. Ilonum þykir gaman að breyta til um sam- röðun litanna. Hann hefur sjálfur búið sjer til bókaskrá. Hann er eins og bókavörður. Hann stendur við skápinn sinn, tekur bækurnar fram, þurk- ar af þeim hvert rykkorn, blaðar í þeim; það eí vert að sjá, með hve mikilli varfærni hann hirðir um þær; opnar þær varsamlega með sínum stóru, klunnalegu höndum, blæs i gegnum blöðin og annast þær þannig með mikilli varfænii; þannig verða þær allt at sem nýjar. Allar mínar bækur eru máðar og snjáðar. Hann hefur unun af svo að segja að fægja nýja bók, sem hann eignast, velja henni stað í skápnum, taka hana út aptur og skoða hana í krók og kring, og meðhöndla hana eins og væri hún einhver helgidómur. Hann sýndi mjer ekkert annað í heilan klukkutíma. Nú bar svo við að inn í herberg- ið kom faðir hans. Hann er stór og þrekinn eins og Stardí, hefur stórt höfuð eins og hann og er digurróma eins og hann. Hann gaf honum tvö eða þrjú smáhögg aptan á

x

Mánaðarblað K.F.U.M. í Reykjavík

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Mánaðarblað K.F.U.M. í Reykjavík
https://timarit.is/publication/497

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.