Mánaðarblað K.F.U.M. í Reykjavík - 01.04.1929, Page 8

Mánaðarblað K.F.U.M. í Reykjavík - 01.04.1929, Page 8
6 MÁNAÐARBLAÐ K. P. U. M. hálsinn og sagði við mig: „Hvað segirðu um hann, ha, um þetta koparhöfuð? Það er skalli í lagi, sem ryður sjer braut, þar sem hann vill. Vertu viss um það!“ Og Stardí lok- aði augunum við þessi óþýðu blíðuatlot alveg eins og stór veiðihundur, þegar honum er klappað. Jeg veit ekki í hverju það liggur, en mjer fannst óviðeigandi að segja nokkuð í gáska eða gamni við hann; mjer fannst það næstum ósennilegt að hann væri ekki nema árinu eldri en jeg. Þegar hann fylgdi mjer til dyra og sagði við mig með sínum vanaleg alvörusvip: „Vertu nú sæll!“ Þá var ósjálfrátt rjett komið fram á varir mjer: „Verið þjer sælir“ eins og jeg væri að kveðja fullorðinn mann. Jeg hafði orð á þessu við föður minn, er jeg kom heim, og sagði: Jeg skil ekki í hverju það liggur; Stardí er eiginlega ekki gáfaður, hann er ekki kurteis, og andlitið fremur ósnoturt, en samt sem áður vekur hann hjá mjer virðingu fyrir sjer“. „Það kemur til af því, að hann hefur skapfestu til að bera“, sagði faðir minn. Og jeg bætti við: „Alla ldukkustundina, meðan jeg var hjá honum, sagði hann lítið, sýndi mjer engin leikföng, og hló ekki einu sinni, o< samt undi jeg mjer vel hjá honum“. Og faðir minn svaraði: „Það er af því að þú kannt að meta hann“ Já rnsmiðssonurinn. Já, en jeg met líka Prekossí, já, meira er- það — Prekossí, járnsmiðssoninn, granna, litla piltinn sem hefur svo vingjarnleg og angurblíð augu, og svip sem hræðsla skín út úr; hann, sem er svo feiminn að hann seg- ii allt af „Fyrirgefðu“, er allt af veikluleg- ur, en samt svo kappsamur að læra. Faðir lians kemur heim drukkinn og lemur hann algjörlega að ástæðulausu, og þeytir bókum hans og stíiabókum í allar áttir. Og Prekossí kemur í skólann með svörtum og bláum mar- blettum í andlitinu og stundum er andlitið bólgið og augun þrútin af gráti. En aldrei fæst hann til að játa að faðir hans berji hann. „Faðir þinn hefur víst barið þig núna“, segja drengimir við hann. Þá hrppar hann upp yfir sig: „Það er ekki satt; það er ósatt!“ til þess að bera blak af pabba sínum. „Þú hefur ekki brent blöð í stílabókinn’ þinni sjálfur“, sagði kennarinn við hann og sýndi honum hálfbrend blöðin í bókinni hans „Jú“, sagði hann með titrandi röddu, „jeg missti hana á eldinn“. En vjer vitum nú allir samt sem áður, að faðir hans drukkinn sparkaði um koll borð- inu, þar sem hann var að skrifa, svo kertið valt um koll. Hann á heima í herbergi upp undir súðinni í húsinu okkar en þangað upp liggja aðrar höfuðdyr á húsinu. Dyravarðar- konan hefur sagt mömmu minni um það allt saman. Silvía systir mín heyrði hann æpa einn dag niðri á grashjallanum, þegar faðir hans hafði hrundið honum niður stigann af því að hann bað um aura til þess að kaupa málfræðisbók fyrir. Faðir hans drekkur og vinnur ekki og fjölskyldan hefur ’opt ekki málungi matar. Opt kemur Prekossí hungr- aður í skólann, og nartar í laumi í brauð- snúð, sem Garróne hefur gefið honum eða epli sem fyrverandi kennslukona hans úr fyrsta bekk hefur fært honum. En hann hann segir aldrei: „Jeg er svangur af því faðir minn gefur mjer ekkert að borða“. Stundum kemur faðir hans að sækja hann við tímalokin, ef hann á leið þar fram hjá. Ilann er fölur, og óstöðugur í gangi, og and- lit hans er þrútið. Hárið lafir niður undir augu og hann lætur húfuna sitja á skakk. 0.g aumingja drengurinn titrar þegar hann kemur auga á hann á götunni. En hann hleypur á augabragði á móti honum; og fað- ir lians lætur varla sem hann sjái hann, eins og hann sje að hugsa um eitthvað annað. Aumingja Prekossí! Hann lappar upp á rifnu stílabækurnar sínar, fær lánaðar bækur til að læra i, og festir saman rifumar í skyrtu sinni með títuprjónum. Það er brjóst- umkennanlegt að sjá hann í leikfimi í þess- um stóru skóm sem ætla að gleypa hann, í þessum allt of skálmalöngu buxum og treyj-

x

Mánaðarblað K.F.U.M. í Reykjavík

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Mánaðarblað K.F.U.M. í Reykjavík
https://timarit.is/publication/497

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.