Mánaðarblað K.F.U.M. í Reykjavík - 01.06.1929, Page 3
MANAÐARBLAÐ
KFUM
R EYK J AVÍ K
>í*rrr
Júnf 19 29
Hálfvelgja.
Þetta seg-ir hann, sem er Amen.
votturinn trúi og sanni, upphaf
Guðs skepnu: Jeg þekki verkin
þin að þú ert hvorki kaldur nje
heitur, betur að þú værir kaldur
eða heitur. Opinb. 8, 14-15.
Hálfvelgja er viðbjóðsleg í hverju sera er.
Hálfvelgja í trúarefnura er þó viðbjóðslegust
allrar hálfvelgju. Hún veit ekkert hvað hún
vill, við hana er ekkert skarpt nje afgjör-
andi. Hún er kærulaus, og vill þó sjálfsblekk-
ingu. Hún heldur að hún sje svo auðug og
þarfnist einskis, en veit ekki að hún er vesa-
lingur, aumingi og fátæk. Hún heldur að hún
sje afar víðsýn og upplýst, en veit ekki að
liún er blind og gjörsneydd allri andlegri
reynslu. Hún þykist vera skreytt dýrindis
drottningarskrúða, en sá skrúði er eins og
fötin keisarans í æfintýrinu, því hún er í
raun og veru nakin. Þegar hálfvolgir menn
tala um kristindóm, er svo mikið tómahljóð
í þvi, svo Jítill raunveruleiki bak við orðin,
að það er líkast því sem blindur dæmi um
lit, eða daufur um hljóðfæraslátt. Að heyra
menn sem ekkert vit hafa á hljófæraslætti,
dæma um snildarverk tónlistarinnar með
miklum gorgeir, þykir hlægilegt; og að at-
hlægi verður sá sem breiðir sig út yfir mál-
verk, en hefur ekkert vit á því, sem hann
er að dæma um. En að slá fram óyggjandi
dómum um trúna og eðli hennar, og um trú-
arjátningar kirkjunnar, þykir heimilt hverj-
um manni, þótt hann hafi enga reynslu trú-
arinnar í lífi sínu, Til eru þeir, sem vísvit-
andi kasta öllum kristindómi fyrir borð og
vilja alls ekkert hafa saman við hann að
sælda; þeim er illa við hann og vilja gjarna
gjöra honum allt til tjóns sem þeir geta. Þeir
eru ekki hálfvolgir, heldur ísjökulkaldir, því
þeir reyna til að slökkva hvern neista, sem
í þeim kann að dyljast frá bernsku árunum.
Þó má bera meiri virðingu fyrir slíkum mönn-
um, heldur en þeim sem hálfvolgir eru bæði
í kristindómi sínum og í vantrú sinni og opt
er meiri von um hina heilsteyptu afneitara
og hatursmenn kristindómsins, en hina hálf-
volgu, sem vilja bæði vera heimsbörn og
Guðsbörn, sem bæði vilja þjóna Guði og
Mammon, sem enga alvöru eiga í neinu;
hinir hálfvolgu hafa ávalt verið átumein
kristninnar. Þeir hafa að vísu auðgað kristn-
ina að höfðatölu, þeirra vegna verður nafn
Guðs vors lastað meðal heiðingjanna. Þeirra
vegna hefur opt borið svo lítið á trúareldi
og kærleiksloga kristindómsins, svo að þeir
tímar hafa verið til, að Guðsríkið var aðeins
eins og falin glóð undir öskudyngju í hlóð-
um; þeir hálfvolgu eru askan, sem liggur
eins og farg yfir eldinum, svo að hann getur
ekki blossað upp, fyr en öskunni er rutt frá
og á þeim tímum, þegar ofsókn eða þrenging
steðjar að, þá fýkur askan frá og hinn lif-
andi eldur kemur í ljós. Þá glæðist trúin hjá
hinum lifandi kristnu og verður að björtu