Mánaðarblað K.F.U.M. í Reykjavík - 01.06.1929, Page 5

Mánaðarblað K.F.U.M. í Reykjavík - 01.06.1929, Page 5
MÁNAÐARBLAÐ K. F. U. M. 8 ásjónu hins himneska föður og sagt A b b a elskulegi faðir, og látum oss styrkja trú vora og gleði með því að líta upp til hans á hverj- um morgni og segja: Jeg trúi á Guð föður, almáttugan skapara himins og jarðar“. Og fyrir hann eru allir hlutir. Jesús Krist- ur guðs son er aðalbirting kærleika guðs, sem gaf oss þenna sinn eingetinn son til þess að hver sem á hann trúir glatist ekki, held- ur hafl eilíft líf. Pyrir náðarríkdóm Guðs sonar höfum vjer endurlausnina og friðinn við guð frelsið frá synd og dauða. Pyrir hann höfum vjer þenna alopna aðgang að Guði og barnarjettinn og vonina og rjett- lætið. Mennirnir fjellu frá Guði, upphafi sínu, og skapara, og vegsömuðu hann ekki sem Guð og gáfu honum ekki dýrðina, en of- metnuðust og völdu sjálfa sig og heiminn í staðinn fyrir Guð, og svo viltust þeir frá honum og tóku að dýrka og tilbiðja skepn- una í stað skaparans, og syndin sleit þá frá Guði. En Guð elskaði allt af og auglýsti elsku sína í gjöfum sínum og umburðarlyndi, og með því að upplýsa menn sem hann út- valdi sjer fyrir boðbera bæði meðal hinnar útvöldu þjóðar og meðal heiðinna þjóða, spá- menn spekinga og skáld og talaði til mann- kynsins fyrir munn þeirra. Hann útvaldi heimsríki og stórmenni til að undirbúa fram- kvæmd ráðsályktunar sinnar mannkyninu til frelsis. Svo í fyllingu timans, þegar allt var undirbúið, sendi hann Son sinn eingetinn í heiminn, fæddan af konu lögmálinu undir- gefinn. Guðdómurinn sameinaðist manndóm- inum, orðið varð hold; og Guðssonurinn gjörð- ist mannsonurinn, og sagði oss frá kærleika föðursins og þrá hans eptir oss mönnunum. Hann einn þekkti Guð, einB og hann sjálfur segir: „Enginn þekkir Pöðurinn nema Son- urinn og sá, sem Sonurinn vill opinbera hann“. Hann kom og rjetti oss höndina og bauðst til að leiða oss aptur til Guðs. Og þeir sem móti honum tóku, fengu vald til að verða Guðs börn. Ilann lagði sjálfur braut- ina til Guðs og hann er sjálfur vegurinn. Hann er lífsljósið tendrað til þess að hver, sem fylgir honum, gangi ekki í myrkri held- ur hafl ljós lífsins. Hann er sjálft lífið og allt líf streymir útfrá honum. Og hann gaf líf sitt til lausnargjalds og friðþægði oss við Guð. Og allt þetta staðfesti hann með upp- risu sinni frá dauðum. Og öllum býður hann að koma til sín, og allir hafa þörf á honum, því allir hafa syndgað, og án lians kæmist enginn undan hinum eilífa dauða. Fyrir hann höfum vjer frjálsan aðgang að náðinni og að lífi og ljósi Guðs dýrðar. Þess vegna segir heilög kirkja: Jeg trúi á Jesúm Krist, Guðs eingetinn son, drottinn vorn, getinn af heilög- um anda, fæddan af Maríu Meyju. Honum sje dýrð um aldir alda. En vjer þurfum guðlega hjálp til þess að geta meðtekið þenna sann- leika, ekki aðeins til þekkingar heldur til lífs. Þess vegna sendi Guð oss Heilagan Anda til þess ekki, aðeins að sannfæra oss um synd og rjettlæti og dóm, heldur til þess að gefa nýtt lífsafl, nýja tilveru. Hann fæðir oss inn í þessa nýju tilveru; hann er hin mikla líf- og ljós-móðir, sem bæði tendrar lífið og viðheldur því og nærir það og full- komnar. Hann er kærleikurinn og þráir að hver maður fæðist inn í þessa nýju tilveru lífsins. Það er undursamlegt líf, lífið í trúnni og samfjelaginu við Guð. Heilagur Andi kem- ur þangað, sem hann fær inngöngu og gjörir hjartað að musteri, þar inni biður hann fyrir os8 með ósegjanlegum andvörpunum, og vinnur að því að fullkomna þá trú að Guð sje faðir vor, og hann skapar lífsaflið í djúpi sálarinnar og lætur það vaxa. Hann andar á það sem hann hefur gróðursett til þess að það megi þroskast og bera ávöxt Hann leiðir oss til Guðs, knýr oss áfram lað- ar oss og annast, Hann sameinar hugina, og styrkir viljann. Þess vegna segir heilög kristni: Jeg trúi á Heilagan Anda. Honum sje dýrð um aldir alda. Dýrð sje Guði, Pöður, Syni og Heilögum Anda svo sem hún var frá upphafi, er og verður frá eilífð til eilífðar.

x

Mánaðarblað K.F.U.M. í Reykjavík

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Mánaðarblað K.F.U.M. í Reykjavík
https://timarit.is/publication/497

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.