Mánaðarblað K.F.U.M. í Reykjavík - 01.09.1934, Side 6

Mánaðarblað K.F.U.M. í Reykjavík - 01.09.1934, Side 6
MÁNAÐARBLAÐ K. F. U. M. 52 Alþjóðabænavika. K. F. IJ. M. og K. 11.—17. nóvember 1934. Hin heilaga, almenna kirkja. SUNNUD. 11. NÓV. F œðing lcirkjunnar. Lúk. 6, 12—16; — Matt. 16, 15—18; — Post.s. 2, 37—47; — Efes. 2, .13—48. Lærisveinarnir, sem Jesús hafði safnaö að sjer, fylltust af nýjum krapti eptir hvíta- sunnudaginn fyrsta og’ knúðir af þessum krapti fóru þeir út að flytja mönnum fagn- aðarerindi Guðsríkis. Án tillits til allra tálm- ana af mannavöldum safnar kirkjan í einn líkama öllum þeim, sem í trúnni taka á móti boðskap Kr'sts og játa frelsun sína fyrir dauða hans. Látum oss minnast á frammi fyrir Guði: Starf K. F. U. K., hið kristilega heimssam- band stúdenta, og veraldarsamhand K.F.U.M. Biðjum einnig fyrir K. F. U. M. og K. í Reykjavík, fyrir öllum deildum og starfs- greinum. MÁNUD. 12. NÓV. Kristur, grundvöllurinn ein'i Posts. 4, 11—12; — Efes. 2, 19—22; - 4, 15—16; — Kól. 1, 16—20. Ilin ósýnilega návist Krists mitt á meðal þeirra, sem sameinaðir eru í nafni hans og vinna fyrir hann, hefur stöðugt verið auð- sýnileg í allri sögu kirkjunnar. En til þess að eignast þenna andlega krapt, sem um- mvndað getur líf einstaklinga og heilla þjóða., er ekki nóg að gefa náðarerindi Krists sam- þykki sitt með skynseminni eða viðtaka sið- ferðisreglur þær, sem guðspjöllin gefa. Krist- ur heimtar algjört vald yfir oss ekki til þess að gjöra oss að þrælum, heldur til þess að gjöra oss frjálsa og veita oss sigurinn. Minnumst frammi fyrir Guði á: Starf fjelags vors í Afríku og hinum ýmsu löndum hennar. »Fjelögin í Sierra Leone biðja um sambæn með sjer um það að Guð vilji hræra hjörtu ungra manna, svo að þeir færu að þrá hið éilífa líf, og það sem verða má Guði til dýrð- ar og til útbreiðslu ríkis hans. Um kröptuga úthelling Heilags Anda yfir unga menn til þess að leiða þá í allan sannleika.«; Biðjum fyrir K. F. U. M. og K. í Ilafnar- firði. ÞRIÐJUD. 13. NÖV. Lögmál hins nýja samfjelags. Jóh. 13, 34—35; — Matt. 20, 25—28; Gal. 6, 2; — i. Kor. 13, 4—7. Þangað til Kristur kom tilbáðu menn eða óttuðust heimsöflin. Jesús kom með nýtt lög- mál frá sínum himneska íöður, lögmál kær- leikans. Sjálfselska o?; hatrv bera í sjer sæði dáuðans; kærleikurinn éinn framleiðir líf. Á þess”v (>r!a»;-.þr: ía í sögu veraldar- innar þar 'fl ' ■ n farjetturinn má sm svo mikils, erv i vjer sem meðlimir kirkju Krists, kallaðir til þess að styðja að friði í stað ófriðar, með því að gjöra kunnugt í orð- um og eptirdæmi lögmál kærleikans, og með því að gjöra Guðs vilja í þjónustu og fórn- fýsi. Látum oss frammi fyrir Guði nefna: Starf hreyfingar vorrar í Amer5ku (Can- ada, Bandaríkjunum, Mexíco — og ríkin í Suður-Amerkíu). Fjelögin í Mexíco biðja um sjei'staka fyrir- bæn í þrengingum þeirra. Biðjum fyrir K. F. U. M. og K. í Vesi- mannaeyjum. MIÐVIKUD. 14. NOV. / heiminum en ekki af heiminum. Jóh. 17, 14—19; — 15, 18—23; — I. Pjet. 2, 9—12; — II. Tim. 3, 12 -15. Kristnir menn kappkosta að rækja vel skyld- ur sínar sem borgarar í jarðneskum ríkjum; en Guðs ríki er þó meir á metunum en allt annað. Þessi tvöfalda hollnusta getur komizt í bága hvor við aðra, og gjöra það stundum, og valda þá hatri og þjáningum fyrir trúaða

x

Mánaðarblað K.F.U.M. í Reykjavík

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Mánaðarblað K.F.U.M. í Reykjavík
https://timarit.is/publication/497

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.