Mánaðarblað K.F.U.M. í Reykjavík - 01.09.1934, Blaðsíða 11
MÁNAÐARBLAÐ K. F. U. M.
57
ins, voru hinar ágætustu, og undravert hvad
mikið var gefið, þegar þess er gætt, hve all-
ur vöruinnflutningur til landsins er takmark-
aður. Viðskiptalífið var hið fjörugasta alla
markaðsdagana og skemmtanirnar, sem nú
voru aðeins tvær, báðar á sunnudaginn, voru
vel sóttar, enda ágæt skemmtiatriði í bæði
skiptin; einkum var kvöldskemmtunin vel
sótt, þá var stóri salurinn alskipaður.
Petta var nú sjötti haustmarkaður vor, og
sýndi það sig greinileea, eigi síðúr en áður,
bæði innan fjelags og utan þess, að hanu
er orðinn vins nll og ómissandi þáttur í starfi
voru.
Mánaðarblaðið flytur hjer með innilegt
þakklseti f jelagsins öllum þeim, sem á einn
eða annan hátt studdu að því að gjöra þessa
daga svo ánægjulega, og að hinum góða
árangri er þeir gáfu.
Sönglög K. F. U. M.
Það hefir lengi verið tilfinnanleg vöntun
á sönglagabók, er hefði inni að halda söng-
lög við þá sálma og söngva, sem notaðir eru á
samkomum og í starfi K. F. U. M. hjer á
landi. Var þörfin fyrir slíka bók oi'ðin svo
aðkallandi, einkum hjá K. F. U. M. utan
Reykjavíkur, að við svo búið mátti ekki
standa lengur. En nótnaprentun er svo dýr
og sölumöguleikar fyrir slíka bók svo litlii,
enn sem komið er, að eigi var fært að ráðast
í útgáfu hennar á þann hátt.
Var þá að tilblutan stjórnar K. F. U. M.
í Reykjavík, það ráð tekið, að láta f jölrita bók-
ina með nýrri fjölritunaraðferð, því þaö
reyndist viðráðanlegra, að því er kostnaðinn
snertir og munar litlu að jaíngott sje og
prentað væri. Er svo þessi bók nú komin út
og er þess að vænta, að með henni sje bætt
úr bráðustu þörfinni, svo að allir söngvar
K. F. IJ. M. geti komið fjelögunum að fullum
notum.
Gert er i'áð fyrir því, að fjelögin, sem þessi
bók er aðallega ætluð, eigi annaðhvort
Kirkjnsöngsbók Sigfúsar Einarssonar eða
Bjarna Þorsteinssonar, og er þeim lögum, sem
finnast í þeirn báðum, slept, en aðeins vísaö
til þeirra í efnisyfirlitinu.
öll lög önnur, við sálma í »Söngbók K. F.
U. M.«, »Söngbók yngri deilda K. F. U. M.«
og »Söngbók fyrir sunnudagaskóla« eru tek-
in í bókina og auk þess nokkur fleiri við nýja
söngva, sem sungnir eru í K. F. U. M. i
Reykjavík og oi'ðið hafa til, síðan þessar h » k
ur voru prentaðar.
Gunnar Sigurjónsson, guðfræðinemi, hefur
annast undirbúning bókarinnar og skrifað
nóturnar, en Fjölritunarstofa Daníels Hall-
dórssonar annast fjölritunina og hvortve?gja
vandað verk sitt &vo sem kostur var á.
Yðeins 100 eintiik voru gefin út af bók-
inni og mikið af þeim lofno áskrifendum fyr-
ir fram. Það sem eptir er fæst aðeins í Bóka-
vcrslun Sigurjóns Jónssonar, Þórsgötu 4
Framkvæmdastjórinn,
síra Fr. Friðriksson, er nú á Akranesi o:r
þjónar fyrir síra Þorst. Briem, meðan a *
hann situr hjer á Alþingi. Eins og geta m
nærri, gleymir síra Friðrik ekki köllun sinni.
starfinu meðal drengja og ungmenna, me
an hann dvelur þar. Hann heldur þar fjöl-
sóttar drengjasamkomur, kannar jarðvegin
og undirbýr hann, svo að vænta má mei
tíðinda ]iaðan áður en lýkur, ef Guð lofar.
Bókasafnið
er nú aptur opið til útlána fyrir allar
deildir eins og áður. Herbergi þess hafa ver-
ið ræstuð og máluð og bækurnar viðraðar
í sumar. Því hafa bæzt allmargar ágætar,
útlendar bækur, sem nánar verður gjörð
grein fyrir hjer í blaðinu, þegar þær eru
komnar í band og á skrá safnsins.
Söngbók K. F. U. M.
Söngbók sunnudagn-skólans, merki K. F.
U. M., minningarspjöld byggingarsjcðs K. F.
U. M. og K. er selt í Bókaverzlun Sigurjóns
Jónssonar, Þórsgötu 4, sími 3504.
Afgreiðsla Mánaðarblaðs K. F. U. M. er
einnig á sama stað.