Mánaðarblað K.F.U.M. í Reykjavík - 01.10.1935, Side 4

Mánaðarblað K.F.U.M. í Reykjavík - 01.10.1935, Side 4
50 MÁNAÐARBLAÐ K. F. U. M. um tekið á móti honum eins og sæmir hans eigiu mönnum. Hann kemur nú á þessum jólum til vor. Hann kemur til sinna eigin manna. Pvi vjer erum hans eign, keyptir með hans blóði, helgaðir honum í skírninni, og stöndum í sam- bandi við hann sem einn flokkur, ein ættkvísl innan hinnar útvöldu Guðs þjóðar. Hann kem- u.r þá með þessari hátíð til sinnar eigir. eign- ar. Hans lýður eruro vjer í þessu tiljiti. Hvernig meðtökum vjer hann? Eða skyldi verða hæg-t að segja um oss eins og um Israei: Ilann kom til eignar sinnar og hans eigin meðtóku hann ekki,. Það er alvara, í þessu, alvara upp á líf og dauða fyrir oss. — Höfum vjer gefið Jesú rúm svo að vjer, getum vitnað. Já, hann hefur komið og búið með oss, vjer höfum sjeð hans dýrð, dýrð sem hins eingetna föðursins? Hann kemur nú til vor, til hinna einstöku, og vill fá rúm hjá oss. — Hjá honum er ætíð nóg rúm fyrir oss ennþá, því: Enn er nóg rúm í sólarkonungssal og sœla og friður hjeðan henda skal, rúm, rúm, ennþá rúm, þar finnst nú fyrir þig. Það er engin efi á því að það er nóg rúm fyrir þig, þú einstaki maður, eða kona, nóg rúm hjá honum. Það er ekki spurning um það, en það er spurningin: hefur þú nóg rúm •fyrir Jesúm? Hefur þú veitt honum viðtöku? - Hvernig hefur því verið varið með þessa hátíð? — Hvaða rúm hefur þú gefið Jesú hjá þjer. Þú hefur verið að halda jól í minn- ingu hans; það hefur margt verið að hugsa um, mörgu að sinna og í mörgu að snúast. Iívað hefur þú gefið honum mikið rúm í tíma þínum. Hefur hann átt meginpartinn af þess- um jóladegi, og í öll,um undirbúningnum undi:- hann. Eða hefur þú lítið .hugsað um hann. Hef- ur þú lofað honum að eiga aðalrúmið í tíma þínum? Það er svo opt í jólahaldi kristninnar að þa.ð er ekkert rúm fyrir Jesúm sjálfan. Það fer allt í allskonar umsvif og annir, svo ha,nn sjálfur fær minnsta partinn af öllu hátíða- haldinu. — Það er sorglegt en þó satt að víða er Jesú útrýmt með öllu, og að enginn tími er syndugri og engum tíma ver varið en jóla- tímanum. Veraldarinnar börn hugsa opt á jólunum ekkert um hann sem stendur á bak við hátíðina. Ljettúð og glaumur og veizlu- höld og skemmtanir, það tekur allan tímann, það eru til menn, sem halda jól án Jesú, heyra sama. sem ekkert um hann, koma ekki í kirkju, lesa ekki um hann í heimahúsum, tala ekki um hann og láta eins og hann sje alls ekki tiL Og þó vilja þessir menn heita kristnir og eru það að því leyti sem þeir eru endur- keyptir með hans blóði og skírðir til nafns hans. Hann kemur þar til sinna eig'in og hans eigin meðtaka hann ekki. - Aptur eru aðrir sem að vísu vilja gefa Jesú rúm á jólunum, en hann fær þó ekki nema eitthvert skúma- skot til þess að vera í. Alveg eins og í Betle- hem. — Þeir, sem þannig halda jól, fara á mis við hið bezta, já missa. óend.anlega mikið. Að vísu. hafa þeir fagran undirbúning og halda jól í siðlátri gl.eði og hjartans glað- værð, gleðja aðra og eru önnum kafnir ai) undirbúa. hátíðina. Þeir gefast á gjöfum og óska hver öðrum gleðilegra jója, og ganga í kirkju og vilja láta hátíðina vera sem kristi- legasta. — En samt, er það ekki Jesús sem fær aðalpartinn. Hann fær ’að vísu, en það er svo af skornum skamti að það þætti af- mán ef nokkrum. væri boðið slíkt nema þá kannske umferðarflækingi sem í gustuka- skyni fengi að liggja inni í hlöðunni, eða í einhverju horninu. Það er allur fjöldi af kristnu fólki sem tekur þann veg á móti Jesú á jólunum og endranær? En um þær viðtökur má einnig segja: Hann kom til sinna eigin og og hans eigin menn meðtóku hann ekki? — Legðu nú hönd á hjarta kristinn maður og rannsakaðu, hvaða rúm þú hefur gefið Jesú, í hátíðahaldi þínu, í hjarta þínu og' lífi? Sjá, Guð uppvakti, áður en Jesús kom, Jó- hannes til þess að vitna um hann og undir- búa menn undir komu hans. Sjerhver prest- ui' hefur sarna hlutverk, — Að undirbúa og boða, komu han,s. Og þess vegna segi jeg að endingu: Jesús kemur nú til yðar, sinna eigin manna, gefið honum rúm. Gefið honum rúm í hjörtunum, í lífinu, á heimilunum, í söfnuðinum.

x

Mánaðarblað K.F.U.M. í Reykjavík

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Mánaðarblað K.F.U.M. í Reykjavík
https://timarit.is/publication/497

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.