Mánaðarblað K.F.U.M. í Reykjavík - 01.10.1935, Qupperneq 7

Mánaðarblað K.F.U.M. í Reykjavík - 01.10.1935, Qupperneq 7
MÁNAÐARBLAÐ K. F. U. M. 53 Það var sjálfur Guð, sem talaði og kallaði sál hans til samfjelags við sig'. Og' er hjarta hans svall af baráttu og tómleik, þá hljóp hann út, áfram, áfram, unz hann náði Jesú, sem var kominn út á veginn. Og' svo spurði hann meistarann. Hann þurfti að fá leiðbein- ingu og hann fór á rjettan stað, til þess að fá hana. Og nú lá hann á knjánum frammi fyrir Jesú og beið eptir því, að Jesús segði honum þá reglu, sem hann átti að bæta viÖ reglur sínar, svo þetta tóm fylltist. En siðareglan, sem hann hafði búizt við, kom ekki„ f stað þess hvíldu augu Jesú á honum, fyllt kærleik, já gleðifylltum kær- leika yfir því, að þessi ungi maður hafði kappkostað svo vel að fylgja Guðs boðum, aö nú var aðeins eitt eftir: að stíga síðasta skrefið; að gefa Guði allt, eignir, jarðlíf og hjarta, og því næst að ga.nga með Jesú til þess eilífa lífs, er hann hafði þráð svo heitt. »Eins er þjer vant.« Þannig hljcðaði up])- haf }>eirrar hvatningar, er hinn elskandi FreLsari gaf honum. Og ungi maðurinn stóð upp og gekk hrygg- ur á brau.t, af því hann átti miklar eignir. Hann sneri bakinu við því lífi, er ha.nn hafði þráð, en á honum hvíldu augu hins elskandi Frefsara og hvort var þá sterkara í augum hans, hinn eilífi, almáttugi kærleikur eða hin djúpa hryg'gð? Æskumaður! hin sömu augu hvíla á þjer og- þínu. lífi. Þau fylgjast með þjer í gleði þinni, í sorg, í baráttu þinni og sigrum, en einnig í ósigrum. Þau víkja aldrei frá þjer, ctf því að Jesús elskar Jng. Ef þú ert svo önnum kafinn í fyrirætlun- um þínum og framtíðardraumum, að þú hef- ur ald,rei gefið því gaum, þá gefðu því nú gaum. Viltu hafa kærleika Guðs yfir æfi- ferli þínum? Ef svo er, þá tak þú Jesú með þjer í leit þína, og lát hann greiða úr vanda- málum þínum. Ríki unglingurinn kom hlaup- andi til þess að spyrja Jesú ráða. Ilikar þú? Ertu hræddur við þá, sem í kringum þig eru, af því þeim finnst óþarfi að gefa sig að þessu? Ef svo er, þá tak Nikódemus þjer til fyrirmyndar. Hann fekk líka svar. Fai' einslega, jafnvel um nótt, til Jesú og spyi hann ráða. Liggi þjer eitthvað þungt á hjarta, eins og ríka unglingnum, þá far til Jesú með það. Ef hjarta þitt er órólegt og þjer finnst tómleiki í hjarta þjer, ef þjer finnst líflaust og þreytandi það, sem heim- urinn hefur að bjóða, þá far til Jesú og þú munt fá að að reyna það, að hann gefur ekki eins og heimurinn gefur, held.ur gefur hann sinn frið. Hefur þú vanrækt að leita Guðs? Ef svo er, þá tak nú heilaga ákvörðun um ao hlýða orði hans og fyrirmælum. Jesús leit á ríka ungþnginn og fór að þykja vænt um hann, af því ha.nn kappkostaði að ávinna sjer eilíft líf. En Jesús elskar þig einnig, hvort sem þú gengur á vegi hans eða ekki, já, þó þú afneitir honum og gjörir ýmis- legt til þess að afmá nafn hans úr hjarta þjer, Jx'i elskar harni Jrig samt. Hann elskar sál þína. Eins heitt og hann elskaði ungling- inn, sem sneri við honum ba.kinu. Finnst þjer fremd í því, að særa hinn sterkasta kærleika? Er ekki eitthvað það inni fyrir í hjarta þínu, sem segir þjer að augu Guðs hvíli á þjer með kærleika,. jafnvel þó þú reynir að stjaka því út úr lífi þínu? Heyr- irðu ekki oft röddina, sem hvíslar inni fyr- ir í hjarta þínu: »Eins er þjer vant«. Hvað er þetta eina? Hefur þú fundið það? Lætur þú þjer nægja að kæfa þá rödd niður? Nei, gerðu það ekki. Jeg skal segja þjer, hvað þig vantar! Þig vantar alveg það sama og ríka unglinginn! Þig vantar að taka afstöð- una. Síðasta skrefið. Þig- vantar að svara kærleik }>eim, sem hvílir yfir þjer frá augna- ráði Jesú Krists. Þig vantar að undirstrika í þínu eigin hjarta kross-orðið »Það er full- komnað« — fullkomnað fyrir þig, já einmitt fyrir þig —; engin óvissa. eða, tómleiki, held- ur fullvissa og fyLling Guðs anda, sem fæst fyrir Jesúm Krist. Jesús bíður þín! Hann biður ]>ig, eins og ríka unglinginn: »Far, sel eigur þínar, kom síðan og fylg mjer«. Því, sem hind,rár hjarta þitt frá að gefast Guði, áttu að hafna!, en koma eins og Jm ert með hjarta þitt og æsku- krapt, með hugsjónir þínar og með mál þitt.

x

Mánaðarblað K.F.U.M. í Reykjavík

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Mánaðarblað K.F.U.M. í Reykjavík
https://timarit.is/publication/497

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.