Mánaðarblað K.F.U.M. í Reykjavík - 01.10.1935, Blaðsíða 8
54
MÁNAÐARBLAÐ K. F. U. M.
Jesús þarf á þjer að haMa„ Það er svo margt
í fari þínu, sem Jesús þarf aö nota öðrum
til blessunar! Viltu ekki velja hann fyrir
leiðtoga lífs þíns á þessum degi? Leyfa hon-
um aðí frelsa þig og fylgja þjer til eilífs lífs.
Eða ætlarðu að gang’a burt frá honum?
Finnst þjer ekki að Jesús hafi þurft að horfa
á eptir of mörgum, sem sneru við honum
bakinu?
Jesús lítur á þig — og elskar þig. Hverju
•etlar þú að svara kærleika hans? Jeg hefi
■;efið honum mitt svar, og hann gaf mjer ei-
líft líf! Svara þú honum í dag- með því að
opna hjarta þitt fyrir honum, og þú munt
hólpinn verða. Til þess styrki þig Guð í Jesú
nafni.
B. E.
„Annar tekinn, og hinn
skilinn eptira.
Með mynd eptir Viggó R. Jessen.
1 Matt. 24, 40 lesum vjer: »Þá munu tveir
vera. á akri; annar er tekinn og hinn skilinn
eptir«. Margt bendir til þess að koma Drott-
i ís verði allt í einu, og- heimurinn almennt
ekki við henni búinn. Drottinn
tendir á, að það1 verði eins og' á r
dögum Nóa, Menn verða risar og
kappar í svívirðingunni víða í
hsiminum, Jafnvel hjá okkar litlu
þjóð er farið að heiðra þá manna
mest, sem skrifa skáldsagnarusl ox
annað fleira af hórdóms og guð-
loysisanda, eins og það sjeu mestu
velgjörðamenn þjóðarinnar!
1 Lúk. 17, 34—35 stendur: »Jeg
segi yður: á þeirri nóttu munu
tveir vera í einni hvílu; annar mun
verða tekinn og hinn skilinn eptir,
i'vær munu mala saman; önnur
mun verða tekin og hin skilin ept-
ir«. En 36. versinu er slept í sum-
um grísku afritunum (og einnig
í okkar nýju. þýðingu, nema neðanmáls) þó
að það sje í elstu handritum. Skyldi það ekki
hafa verið mannlegur breyskleiki, sem rjeði
því að versinu var sleppt, vegna þess að það
var óskiljanlegt fyrir þá, er Drottinn kæmi
allt í einu að »á þeirri nóttu« yrðu tveir á
akri? En nú, er vjer vitum um hnattmynd-
un jarðar, þá er hægara að skilja þennan
ritningarstað. Þó að koma Drottins eða brott-
hrifningin verði allt í einu, þá er sumstaðar
á jörðunni nótt, sumstaðar morgun og sum-
staðar dagur.
Þótt vjer, jafnvel, skiljum ekki allt, nógu
vel, viðvíkjandi endurkomu Krists, fyrri upp-
risunni og brotthrifningunni, þá er þó víst
að hann kemur í skýjunum og hvert. auga
mun sjá hann og jafnvel þeir er stungu hann.
Orðið aðvarar oss margsinnis um að vera á-
vallt vakandi. Sæl. eru þau Guðs börn, sem
voru, eru og verða vel vakandi, ávallt með
komu Drottins fyrir augum. Þau sem eru
sofnuð í því ástandi munu ekki verða seinni
en vjer; sjá I. Þess. 4, 15.
Jeg sá á veggspjaldi, hjá enskum manni,
orð, sem voru eitthvað á þessa leið: Talaðu
ekki það, sem þú vildir ekki vera að tala,
ef Drottinn væri að koma; gjörðu ekki það,
sem þú vildir ekki vera. að gjöra, ef Drott-
inn væri að koma; vertu ekki staddur þar,