Mánaðarblað K.F.U.M. í Reykjavík - 01.10.1935, Side 11

Mánaðarblað K.F.U.M. í Reykjavík - 01.10.1935, Side 11
MÁNAÐARBLAÐ K. F. U. M 57 Hann flúði. upp í fjöll frá mönnunum í borginni, en hann rakst á þá þar liíka. Peir voru þægilegir og greiðviknir, en samtalið var jafn innihaldslaust og brosið jafn óein- lægt eins og þar, sem þeir komu frá. Og hon- um fannst eins og þeir væru allir á stroki, í leit eptir mikilleihanum. En þeir báru það með sjer í brjósti sínu, sem þeir voru að strjúka frá, og það sem þeir voru að leita að var hilling ein. En var það nú hilling í raun og veru þetta, sem hún hjelt sig eiga, gamla bústýran í Sel- inu, þar sem hann gisti eina nótt fyrir nokkru? »Það er víst einmanalegt fyrir þig hjerna uppi í fjöllum,« hafði hann sagt við hana, »0, nei, Drottinn er nú hjerna líka,« hafði hún svarað í hjartans einlægni með sjerstökum gleðihreim röddjnni. Svo fór hún að segja honum frá ýmsu í æfi sinni. Hún hafði lifað við rnikla fátækt og strit alla tíð frá bernskuárunum. En hún var samt ánægð og þakkaði Guði fyrir alla hluti. Hann stóð nú upp og ætlaði að ganga dá- ljtinn spöl eptir veginum áður en hann tæki á sig náðir. Já, það var fagurt hjerna. En hvernig var lífi þeirra háttað, sem hjer bjuggu? Hann hafði farið framhjá tveim bæj- um hátt uppi í hlíðinni á leiðinni hingað, og hann kom við á öðrum þeirra til að fá sjer mjólk að drekka. En hvað honum sýndist vera fátæklegt þar! Og hvílíkt strit og stríð hlaut það að vera, að draga fram lífið á því- líkum stöðum! Eða að hugsa sjer veturinn í þvíljkum afkima - hvernig færi fólkið að þola. annað eins? Hlaut ekki æskan að reka sig alstaðar á hjerna, ef hún átti nokkra lífs von eða þrá? Þó að fjárhagsafkoman væri bágborin, þá hlaut andlega afkoman að vera enn bágbornari. En hvað var nú um að vera? Fjöldi fólks fór um veginn, sumir í bílum og sumir á hjól,- um, og flest var þetta ungmenni Hvað var þetta? Hann spurði mann, sem hann mætti. Hann kvað eiga að halda, æskulýðsmót á sunnudaginn. Kári F. hafði ekkert sjerstakt við að vera daginn eptir, sem var sunnudagur. Þegar hann heyrði til kirkjuklukknanna, datt hon- um í hug að það gæti verið nógu gaman að kynnast lífinu hjerna á slíkum degi sem þess- um, og svo fylgdi hann straumnum til kirkj- unnar. Ja, það mátti nú segja, það vav stra.umur. Surnt var aldrað fólk, dökkklætt, en flest var það ungmenni og mörg þeirra í þjóðbúningum. Þa.u komu í bílum, akandi, bjólandi og gangandi. Kirkjan var troðfull og meira en það. Hann aúlaði sjer ekki að vera þar lengi. En helgin og kyrrðin þa,r inni tók hann fanginn og eink- um þó söngurinn. Hann var stundum svo kröptugur eins og stórviðri og yfirgnæfði þá orgeliði Það var ungur prestur, sem prjedik- aði, djai'ft og af miklum innileik. Það leyndi sjer ekki að hann trúði því, sem hann prje- dikaði. Hann talaði um það, sem gjörði lífið þess vert að lifa því og það er að verða hólp- inn, sagði hann, að vita og sjá himininn opinn yfir sjer. »Jeg veit að mörg ykkar, ungmenni, sem hjer eru stödd, liafið sannfærst um þetta af eigin reynsl.u. Og þeir, sem ekki hafa sann- •færst um það, þeir hafa sannfærst um ann- að og það er, að lífið er þeim ekki mikils virði«. Ungmennin sátu hljóð og hlýddu á orð hans og mátti sjá að þau voru honum sammála, Það, sem hann sagði seinast get- ur verið satt og rjett, sagði Kári við sjálfan sig. En hitt? Getur trúin gefið æskulífinu mannlegt gildj hjer í þessum þröngu dölum? Og getur hún gefið mínu ljfi gildi? Hann fór ekki að heldur, þó að prjedik- uninni væri lokið, Fyrst átti að fórna, sagðí presturinn og svo var altarisganga á eptir. Það var svo langt síða,n að hann hafði sjeð þess háttar og hann gjörði ráð fyrir að það tæki ekki langan tíma, því að það yrðu varla aðrir en nokkur gamal.menni, sem tækju þátt í þessu og þá af gömlum vana,. En þetta fór á annan veg. Það mátti heita að allur söfnuðurinn stæði upp og gengi í röðum upp aö' altarinu og umhverfis það. Hafði þetta fólk nokkurt f.je til að leggja fram? Eða gekk það aðeins þangað fyrir siðasakir? Svo hófsi altarisgangan. Þetta var undarlegt. Meg-

x

Mánaðarblað K.F.U.M. í Reykjavík

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Mánaðarblað K.F.U.M. í Reykjavík
https://timarit.is/publication/497

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.