Mánaðarblað K.F.U.M. í Reykjavík - 01.10.1935, Qupperneq 12

Mánaðarblað K.F.U.M. í Reykjavík - 01.10.1935, Qupperneq 12
58 MANAÐARBLAÐ K. F. U. M. inþorri allra þeirra, sem í kirkjunni sítu, stóð i upp o.i>- þar á meðal einstaka eldri maður eða kona, — en mestmeg'nis var það ungt fólk mannvænlegir piltar og stúlkur. — Pau, gengu hægt og' hátíðlega inn í kórinn og' hvei' hring- urinn eptir annan fjell a knje og tók á móti hinum helg'u náðargjöfum.. Þegar þau komu þaðan, g'litruðu tár í augum surnra og kyrr- lát gleði ljómaði á andlit annara. Ivári kom sjer ekki að því að fara út. Það, sem hjer fór fram gagntók hann að innstu hjartarót- um og hitti þar, sem hann var viðkvæmastur. Hann skildi ekkert í hvað að honum var orð- ið, en hann varð að lúta höfði svo að aðrir skyld.u ekki sjá að hann gat ekki varizt tár- um. — Oti á völlunum stóðu. ungraennahópar í samræðum. Þeir voru ekki hámæltir en gleð’- bros ljómuðu á andlitum þeirra. Hverju sætti þetta? Þarna voru þá ungmenni, sem þessi ein- falda trú hafði gefið fu.llvissu um tilgang og gildi lífsins. Það var ómótmælanlegt. Var það aðeins hin fábreyttu og fátæklegu lífs- kjör sem ollu því að þeim fullnægði þetta? Hann fann sig' knúðan til a.ð fara á síðdeg- issamkomuna þeirra líka, Margar ólíkar og andstæðar kenndir og hugsanir brutust um í huga hans, — Samkoman hófst með sam- söng. Hann hafði sízt búizt við svo góðum og fáguðum söng hjer eins og raun var á. Þvi næst voru fluttar tvær ræður. Það fannst honum einkennilegt hversu fjörlegar og raun- hæfar ræðurnar voru. Annar ræðumannanna talaði til þeirra sem langaði til að sjá Jesúm. »Ef þú ert sannleiksleitandi, þá getur þú ekki farið framhjá Jesú, og viljir þú mæta hon- um þá verður þú að leita. hans þar, sem- hann er,« sagði hann. Jesús er þar, sem kristnir menn koma saman, hann er að finna í Biblí- unni og þú getur mætt honum í bæninni. Hinn talaði um það, hversu auðgandi þaó væri að gefa, a.ð geta verið til hjálpar öðr- um, en þó einkum það að »fara þangað, sem Jesús er ekki og hafa hann í fylgd með sjer þangað.« Margt af því, sem sagt var, var eins og talað til Kára. Hafði hann. leitað sann- leikans um kristindóminn þar, sem kristin- dómurinn sjálfur var? Hann hafði hlustað eptir því ,sem menn sögðú og lesið það, sem andstæðingar kristindómsins skrifuðu. En meðal hinna kristnu hafði hann ekki verið. Hann hafði ekki lesið Bibiíuna og ekki beðið. Og hann hafði afsakað sig með því, að þeir, sem hann umgekkst, væru ekki kristnir. — Og var það ekki aðal. tjón hans, að hann vildi aðeins þyggja en ekki gefa? Hvað hafði hann verið öðrum, t. d.. föður og móður? Átti hann í raun og veru nokkur þau verðmæti er öðrum gætu verið nokkurs virði? Nú varð honum það fyrst ljóst hve fávíslega hann hafði lifað. Að lokum var orðið gefið laust. Þá stóðu margir ungir menn upp, hver á eptir öðr- nm, og sögðu frá lífsreynslu sinni, eðlilega oy; af mikilli alvöru. Þetta. voru engir fáráðl- ingar; það var auðheyrt á því hversu vel þeir komu fyrir sig orði. Þeir töluðu bæði úm gleði og sorg, en allir voru þeir á einu rnáli um það, að Jesú mættu þeir ekki missa. Nú varð honum deginum Ijósara: Hann hafði ákært kristindóminn og sagt, að hann hefði ekkert að bjóða æ,sku nútímans. En nú var það kristindómurinn, sem ákærði hann og sagði að hann hefði ald.rei leitað Guðs í alvöru. Þegar Kári kom upp í herbergi sitt um kvöldið, þá gjörði hann það, sem hann hafði ekki gjört síðan að hann var lítill drengur: Hann fjell á knje við rúmið sitt. Og' hann fyrirvarð sig ekkert fyrir það með sjálfum sjer. Var vo.rinu mögulegt að fyrirverða sig fyrir það, þó lífsþrótturinn, sem lengi hafði verið bundinn af ís og snjó, brytist fram. — Daginn eptir hafði lífið fengið nýtt gildi. Það var glaður maður, vegna mikilvægrar ákvörðunar og nýrrar vonar, sero þá lagðí af stað heimleiðis. (Lausl. þýtt Sj.).

x

Mánaðarblað K.F.U.M. í Reykjavík

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Mánaðarblað K.F.U.M. í Reykjavík
https://timarit.is/publication/497

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.