Mánaðarblað K.F.U.M. í Reykjavík - 01.01.1938, Page 6
4
MANAÐARBLAÐ K. F. U. M.
Starfsskýrsla
Skógarmanna 1937.
Árið 1937 er áttunda starfsárið í sögu .
Skógarmanna. Hefir það ár að ýmsu leyti ver-
ið ólíkt undanförnu;ml árum.
Sumarstarfið hefir átt við meiri erfiðleika
blómgast mikið á þessum vetri, V. Ð. þurft
að skipta sjer vegna þrengsla og Y. D. stund •
um þurft að bera inn sæti eða víkka út sal-
inn. U. D. hefir ekki ætíð verið eins fjöl-
menn og æskilegt væri, en þó hefir margt
gleðilegt gerzt þar. A. D. hefir hert fundar-
sókn nokkuð á þessum vetri, en lítt sótt bib -
líulestrana. Skógarmenn hafa sjeð um biblíu-
lestra U. D., og hefir sjera Bjarni Jónsson
stjórnað þeim, en eldri Skógarmenn í for-
föllum hans. Bænavikan var haldin 14.—21.
nóvember. Samkomurnar voru ekki fjölsótt-
ar að jafnaði, en vjer megum1 vænta oss mik-
ils af þeim. Næstu viku voru æskulýðssam-
komur. Þær fengu góða aðsókn, einkum er
áleið. Vitað er um árangur. Almennar sam-
komur hafa, verið á sunnudagskvöldunum.
Foa’eldramót Y. D. og V. D. var í Dómkirkj••
unni 23. janúar við afar mikið fjölmenni.
Knud Zimsen hefur látið af stjórn Sunnu-
dagaskólans eftir langt, og vel unnið starf.
Iíann hefur þó komið öðru hvoru og talað til
barnanna. Þeim hefur fjölgað ört, upp á síð-
kastið. Með aðstoð Ingvars Árnasonar og Sig-
urjóns Jónssonar hefur Magnús Runólfsson
haft á hendi stjórn skólans í vetur. Æsku-
lýðsvika var aftur haldin 6.—13. marz og
voiru samkomurnar vel ,sóttar eins, og fyrr.
Sjera Friðrik Friðriksson hefur því miður
þurft að vera alltof mikið fjarverandi, og
hefur bæði sumarstarfið og annað starf fje-
lagsins liðið við það. Samt hefur verið reynt
að halda öllu í horfinu eins og fyrr segir. ■—
Guði sje lof fyrir liðið starfsár.
M. R.
að etja en áður, vegna fjárpestar þeirrar, er
geisaði hjer um ýmsar sveitir landsins. Vatna-
skógur var notaður til þess að einangra sýkt
eða, grunað fé, til þess að reyna að hefta út-
breiðslu veikinnar .Var Skógarmönnum því
ekki leyfð dvöl í skóginum, heldur varð að
flytja sumarbúðirnar innar í Svínadal, i
Kornahlíð, á landamerkjumi Geitabergs og
Dragháls. Olli þetta talsverðum erfiðleikum
og aukakostnaði við sumarstarfið.
1 Koirnahlíð dvöldu í sumar 4 flokkar alls,
3 vikuflokkar og einn 10-daga flokkur,' með
um 98 þátttakendum alls, og voru margir
þeirra í fleiri flokkum1 en einum. 53 af þeim
höfðu aldrei verið áður í sumarbúðum með
K. F. U. M. — Voru flokkarnir yfirleitt ó-
heppnir með veður, en það hamlaði ekki gleöi
þeirri, sem ríkir í sumarbúðum, K. F. U. M.
Sumarstarfsnefnd ha.fði lát,ið sauma nýtt
tjald, í stað gamla matartjaldsins, sem lítt
hefði dugað í rigningu. Var aflað fjár til þess
með því að selja einskonar gjafahlutabréf á
10 krónur, en hlutur kaupenda í staðinn
skyldi vera gleði yfir því, að hafa orðið til þess
að styrkja goitt málefni.
Nánari upplýsingar um, sumarstarfið er
hæ,gt að fá í Mánaðarblaði K. F. U. M.
Hvað viðvíkur starfinu heima í Reykjavík,
hafa 12 almennir Skógarmannafundir veiið
haldnir á árinu. Hafa fundirnir verið sæmi-
lega sóttir nema sumarmánuðina, þá dregur
venjulega úr fundasókn, vegna dreifingar.
Þegar flestir mættu voru um 128 Skógarmenri
(á árshátíðinni), en þegar fæst, var, voru 30
(á júlí-fundinum). Að meðaltali mættu 68
Skógarmenn á hverjum, fundi og er það tveim
fleira en árið áður. Þá mœttu 68 að meðal
tali.
Á aprílfundinum voru auk Skógarmanna 32
Hafnfirðingar, sem komu í heimsókn frá
hálfu sumarbúðaflokksins í K. F. U. M. í
Hafnarfirði.
Á maífundinn kom síra Friðrik Friðriksson
í heimsókn ásarnt 16 Skógarmönnum frá
Akra,nesi.