Tákn tímanna - 15.11.1918, Page 2

Tákn tímanna - 15.11.1918, Page 2
10 TÁKN TÍMANNA sinni; en þegar eg fæ tóm, inun eg láta kalla þig«. Pgb. 24, 24. 25. Þessi á- stæða hefir tafið marga. Þegar tæki- færið gafst þeim, vildu þeir heldur fresla því til næsta skiftis. Vér Iesum ekki um að Felix lxafi orðið kristinn ; en vér lesum um, að liann hélt Páli í fangelsi í tvö ár, og lét liann svo eftir í bönd- um, þegar Feslus tók við landsstjórn. 27. v. Það er önnur ástæða fyrir því, að rnargir verða bara »nærri því kristnir«. Þeir vilja ekki hverfa frá unaðssemdum og gjálífi þessa heims, jafnvel þólt þeim sé ljúff að lilýða á Guðs orð. Heródes konungur hlýddi á ræðu Jóhannesar skír- ara, og hann komst svo langt, að »hann vissi ekki hvað hann átti úr að ráða, en ljúft var lionum að hlýða á hann«. En endirinn varð sá, að Heródes lét hálshöggva Jóhannes og varð svo sjálf- ur friðlaus og ógæfusamur maður. Pú hefir aldrei liitt mann, sem hefir verið að því kominn að verða kristinn, og síðar liefir verið ánægður i munaðarlífi þessa lieims. Hvers vegna ? Af því þeir hafa séð eitlhvað æðra sem þeir síðan aldrei hafa náð upp að. Heimur- inn getur aldrei svalað þeirri sál, sem heíir öðlast þekkingu á, hvað það er að vera nálægt Guðs ríki — nærri því kristinn. Þriðja ástæðan, sem aftrar mörgum frá að fylgja sannfæringu sinni, er ólti við menn; liann aftrar þeim frá að verða nema »nærri því« kristnuin. Pila- tus sýknaði Jesúm þrisvar sinnum ; en þegar hann átti að velja um það tvent, að gera rétt eða afla sér vináltu keisar- ans, þá sigraði óttinn við menn, og end- urgjaldið, sem hann fékk, var að hann líka misti hylli keisarans. Fjórða ástæðan er sú, að þeir vilja ekki fylgja Kristi á sjálfsafneitunarbraut- inni. Maður nokkur spurði Jesúm: »Meistari, hvað á eg að gera til þess að eignast eilíft líf?« Jesús svaraði: »Sel eigur þínar . . . og kom síðan og fylg mér«. En þá fór liann hryggur burt. Hann var óefað vinveittur Frelsaranum, og Jesús elskaði hann líka, en hann varð að eins »nærri því« kristinn, og þó var hann svo nálægt takmarkinu sem framast er unt áður en úrslitavalið á sér stað. En þessi orð : »Sel eigur þín- ar«, »fylg mér«, öftruðu lionum. Hann varð þá ef lil vill að segja skilið við gamla vini, yfirgefa lieimili sitt og sam- einast þessum litla hóp lítilsvirtra manna. Hann gat ekki lagt fjölskyldu, eigur né vini í sölurnar. Hann gat ekki lagt virðingu sína í sölurnar né skift á slæri- læti og sjálfsálili sínu fyrir fátækl, lílils- virðingu og auðmýkt. Hann varð að eins — »nærri því krislinn«. Hvernig verður maður þá sannkrist- inn ? Jesús gefur sjálfur greinilegt svar í Jóli. 3, 3 »Þér verðið að endurfæðast«. Þessi orð voru ekki töluð við neinn op- inberan syndara, heldur við einn læri- meistara í ísrael, Nikódemus. Hann var alvörugefinn, sannleiksleitandi mað- ur úr flokki Farísea. Hann lók þessi orð lil sín, sem þýddu það sama sem : »Þú verður að hyrja á ný«. »Og Jesús sagði við liann: »Eins og Móse hóf upp höggorminn í eyðimörkinni, þannig á manns-sonurinn að verða upphaíinn«. Hann sýndi fram á það, setn Nikódem- us hafði svo oft talað um og kent, að ísraelsmenn, sem voru bitnir af eitruð- um höggormum og áttu dauðann vísann, mundu frelsast óverðskuldað ef þeir gerðu eins og Drottinn sagði þeini: að líla til eirormsins.

x

Tákn tímanna

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tákn tímanna
https://timarit.is/publication/498

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.