Tákn tímanna - 01.12.1919, Síða 5

Tákn tímanna - 01.12.1919, Síða 5
TÁKN TÍMANNA 21 eftir kom veikin aftur og tók enn eitt barnið. Þá brendi hann rúmfötin, mál- aði hús sitt og hélt, að nú væri engin hætta framar. En sóttin var enn þá ekki farin. Hún tók sig upp aftur og lók þriðja barnið. Hvað gerði faðirinn svo? Hann var fátækur, en samt brendi hann liús sitt með öllu, sem í því var og setti sig í skuld fyrir annað hús. Þa fyrst var sóttin drepin, og hinum börnunum tveimur var bjargað. Hann brendi aleigu sína, faðirinn. Svo voða reiður var hann? Hverjum? Barninu sínu? Nei, hann reiddist sótt- inni, af því að hún vildi drepa barnið hans. Pannig er reiði Guðs, einmilt þannig. Hann er eyðandi eldur — gagnvart syndasóttinni, af því að hún ællar að drepa syndarann, sem hann elskar svo heitt. A. H. Sá efsti. Jakob var duglegasti og áhugamesti lærisveinninn í skólanum. Willy var líka mjög duglegur, og Jakob og hann voru vanir að keppa um verðlaunin við próf. Annarhvor þeirra var æfinlega efstur. Svo var það einu sinni við prófið. Það hafði farið eins og vant var. Við öll hin höfðum gefist upp við eina af hinum vandasömu spurningum, er fyrir okkur voru lagðar og nú var ekki um aðra að gera en Jakob og Willy, er gætu hlotið verðlaunin. En aldrei gleymi ég undrun minni þegar Willy leysli úr hverri spurningunni eftir aðra en Jakob Stóð hjá og það leit út fyrir að hann gæti engu svarað og Willy hlaut veið- launin. Við Jakob urðurn samferða heim. Hann leit ekki út fyrir að vera í slæmu skapi þó hann hefði mist verð- launin ; hann var reglulega kátur. Þella gat ég ekki skilið. »Jakob«, sagði ég; »gast þú ekki leyst úr einhverri af þessum spurningum? víst hefir þú gelað það«. »Jú, ég gat það vel«, svaraði hann brosandi. »En því gerðir þú það þá ekki?« Hann færðist undan að svara, en ég hélt áfram að nauða á honum og loks- ins leit hann á mig fallegu dökku aug- unum og sagði: »Sjáðu nú til; hvernig átti ég að hafa það öðruvísi? Aumingja Willy misti mömmu sína í vikunni sem leið, og hefði ekki prófið verið i dag, hefði hann ekki komið í skólann. Heldur þú að ég vildi vera það hrakmenni að taka verð- launin frá þeim, sem nýbúinn er að missa móður sina?« Hattarinn og bindindismálefnið. Úr ensku. Frægur bindindisprédikari kom einu sinni til haltara í sölubúð hans og spurði hvort hann vildi ekki styrkja bindindis- málefnið dálítið. Haltarinn tók því þur- lega og kvað það vera mál, er sér komi ekki við. »Það var leiðinlegt«, svaraði komumaður; »því það sýnir að þér þekkið ekki atvinnuveginn yðar«. Hattarinn varð byrstur við og svar- aði; »Eg er fús á að þiggja leiðbeiningu yðar í þessu efni, ef þér hafið betur vit á því en ég«.

x

Tákn tímanna

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tákn tímanna
https://timarit.is/publication/498

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.