Tákn tímanna - 01.11.1920, Blaðsíða 7

Tákn tímanna - 01.11.1920, Blaðsíða 7
TÁKN TÍMANNA 15 Eimlestarstjórinn. ----- Frh. Þegar stríðið var á enda og sigurinn fenginn kom kinn margþráði friður, og og þá snéru hinir hraustu hermenn heimleiðis. Nú ómaði Iofgerðar- og þakk- lælissöngur um alt þýskaland. Hinum nýheimkomnu hermönnum sýndist skóg- urinn grænni og blómin fegurri en áður, þeim fanst eins og öll náttúran byði þá hjartanlega velkomna! — en það var svo margur, sem ekki kom aftur! Geusel var einn í þeirra tölu. Konan hans hafði oft fengið bréf frá honum, þau báru jafnan vott um mikla alvöru, en jafnframt um kjark og góðar vonir. Frá því i júlí og þangað til i desember voru þessi bréf að smákoma, og þó þau væru stundum stutt og skrifuð með blýanti voru þau ávalt til jafnmiklar gleði; þegar móðirin hafði les'ð, og dóttirin kyst þau, komu vinir og kunningjar og þar á meðal Gotfred gamli til að vita hvað Geusel skrifaði, jafnvel presturinn kom og las bréfin. En alt í einu hættu bréfin að koma. Katrín kona Geusel beið og beið, vonaði og vonaði. Hún skrifaði manni, sem hún þekti i hernum, og loks fjekk hún fregn um að Geusel hefði særst, og að líkind- um dáið, siðasta bréf hennar var endur- sent og á það ritað: »Viðtakandi dáinn«. Meðal þeirra hermanna, er heim kom var einn af ættingjum Geusels, hann hrósaði mjög hugrekki hans og djarflegri framgöngu, meðal annars sagðist honum svo frá: »Hann gerði ælíð skyldu sína, enginn efaöi það; allir báru traust til hans, jafnt yfir sem undirmenn, hann varð ekki sár — var altaf jafn heil- brigður, djarfur og hraustur — þangað til þessi óttalegi dagur kom — dagur- inn við Orleans! þá fórum við að hjálpa fjelögum okkar, sem voru í hörðum bar- daga við dálítið þorp, við urðum að fara yfir fjöll og margar aðrar torfærur. Frakkar lágu i leyni hvar, sem þeir fundu felustað og sátuþannig fyrir okkur, við máttum heita varnarlausir. Við hlupum og stukkam af öllum mætti yfir hvað, sem fyrir varð. Alstaðar dundu skotin, við og við urðum við varir við, að einhver fjell við hlið okkar — en ekki tjáði að fást um það — áfram, áfram æddum við með enn meiri hraða, allir vissu að það var um að gera að komast svo nærri óvinunum að við gæt- um notað byssurnar. Loksins lenti okkur saman, við rákum óvinina á flótta. Þegar sú orusta var á enda og við vor- um komnir dálítið til rólegheita sökn- uðum við marga er fóru af stað með okkar, þar með var Geusel. Leit var haíin alstaðar í fjöllunum, en árangurs- lítið því Frakkar höfðu farið yfir þau á eftir okkur og við fundum einungis dauða menn — við Geusel urðum við hvergi varir; að líkindum, sagði hann að síðustu við frú Geusel er maður yðar dáinn, hann hefir dáið hetjudauða fyrir föðurlandið.« Já — nú var þá svo komið, að Katrín var orðin ekkja og litla Káthe föðurlaus. Sigurgleðin er venjulega dýrkeypt og það fanst þessari vesalings konu, sem stóð nú eftir með blóðugt hjartasár. Nú var hún búinn að missa alt nema litlu telpuna sína, hún reyndi að þerra tárin af kinnum mömmu sinnar með litlu mjúku lófunum sínum. En — nú reið á að reyna að reisa sig við aftur en ekki láta sorgina yfir- buga sig. Frú Geusel varð að vinna fyrir sér og barninu sínu. Litla þorpið, sem hún átti heima í var yndisfagur staður, það lá upp við

x

Tákn tímanna

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tákn tímanna
https://timarit.is/publication/498

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.