Verði ljós - 01.04.1901, Síða 16

Verði ljós - 01.04.1901, Síða 16
64 sáluhjálp allra manna, þá verður þetta á máli Pjallkonunnar : „En vel- kristnir kennimenn í kirkju vorri hafa neitað þessari kenningu11 o. s. frv. Og þegar kirkjuráðið segir í álitsskjalinu: „Fyrir því dirfumst vór ekki heldur skilyrðislaust að halda því fram, að samvizkusömum manni, er elur slíka von í brjósti, sé ómögulegtað vera prestur innan þjóðkirkju vorrar", — þá lætur Ejallk. það segja: „Menn geta því verið prestar í þjóðkirkjunni dönsku án þess að kenna eða trúa á eilífar kvalir í helviti“. Yér skiljum þá ekki mælt mál, ef þetta er ekki að rangfæra orð annara. Og til hvers skyldi það vera gert, nema til þess, að gera úr álitsskjalinu „skoplegt og viðrinislegt dókúment11, eins og Pjallk. kallar það. Því að hefði kirkjuráðið játað það skýlaust, að velkristnir kenni- menn í kirkju vorri lieí'ðu neitað útskúfunarkenningunni, og hefði kirkjuráðið enn fremur játað, að menn gætu verið prestar í þjóð- kirkjunni án þess að kenna eða trúa á eilífar kvalir í helviti, þá liefði verið fylsta ástæða til að furða sig á, að Jensen presti er geíin áininning og hótað afsetningu, enda þótt han-n hafi „agíterað“ og gort það í óheppilegu formi og á miður heppilegum stað (t. a. m. í saur- blaðinu „Kobenhavn11). En hvorugu þessu hefir kirkjuráðið játað. Og livað verður þá af hinu „skoplega og viðrinislega11 í þessu „dókúmenti11? Og hvernig verður handaþvottur Ejallkonunnar ? Vór sjáum eigi betur en að hanu hafi mistekist t þetta sinn. En hvað snertir dylgjur Ejallk. í hinum skoplega „móraliserandi11 inngangi síðari greinarinnar um miður „góðgjarna og prúðinannlega aðferð“, þá felum vér öruggir les- endum vorum að dæma um, hvar hennar sé að leita, hjá oss eða Fjallkonunni. Kirkjuráðið danska á þakkir skilið fyrir einkar maunúðlega fram- komu sína í þessu máli, en alls ekki ónot og hujóðsyrði þau, sem því hafa boi'ist frá vautrúarblöðunum dönsku og nú síðast frá liinurn mikla „kirkju- og klerkavini11, Ejallkonunni. Það, sem hjá Ejallk. ræður úrslitum, er, að hún hefir ekki skilið eða viljað skilja, að það er sitt hvað, „að ala í brjósti sór sem von það sem aldrei getur. orðið annað en von bygð á mannlegum ágizkuiium11, og að halda því fram sem ó- hrekjanlegri staðreynd og fara óvirðulegum orðum um hina gagnstæðu skoðun. Það getur enginn bannað oss að vona, og vór eigum postul- legt orð, sem segir: „Kærleikurinn vonar alt“, sem enginn getur meinað trúuðum manni að heimfæra einnig upp á hin eilífu afdrif manna í öðru lífí, — en að kenua það, að allir menn verði hólpnir um síðir, þar sem vér höfum eigi meira við að styðjast en liór er fyrir hendi og berja það blákalt fram sem hið eina rótta, það getur kirkjau bannað þjónum sínum, meðan þeir eru í hennar þjónustu, og vísað þeiin burt úr vistinni, ef þeir óhlýðnast. I þessu sambandi mætti ininua á orð eius af mestu ágætismönnum kirkjunnar í seinni tíð, prestsins dr. Otto Eunche, sem einmitt hafa verið dregin fram í sambandi við þetta danska uppþot út af útskúfuuarkenningunni: „S4 er uxi, sem ekki vonar að allir menn verði hólpnir, en sá er asni, sem kennir slíkt11. Orðin eru dálítið stórgerð, en geyma í sér eftirtektarverðan sannleika. J. H. Utgefendur: Jón Helgason, prestaskólakennari, og Haraldur Níelsson, kand. í guðfræði. Ileykjavlli. — Félagsprentsmifijan.

x

Verði ljós

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Verði ljós
https://timarit.is/publication/501

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.