Kosningablað Sjálfstjórnar - 01.09.1916, Page 1
Kosningablað Sjálfstjórnar
Geir Jón oé Knudsen.
Fyrirgefið hr. Knudsen að eg nefni nafn yðar
án þess að vera í stjórn Merkúrs! Eg hélt nefni-
lega að bverjum félagsmanni væri heimilt að segja
það sem honum sýndist, í sínu eigin nafni og
undir sínu eigin nafni, því annað hefi eg ekki gert
í þessu máli. Eg hefi hvergi sagt að eg talaði
þar fyrir hönd Merkúrs eða »í umboði stjórnar
Merkúrs«. Það eina sem eg hefi gert, er það, sem
stjórninni bar sjálfri skyldu til að gera, úr því hún
hefir tekið sjálf á sig þá ábyrgð að klína nafni
félagsins við pólitískan flokk eða vill Jón & Knud-
sen halda því fram í alvöru, að Alþýðuflokkurinn
sé ekki pólitiskur!
Hr. Knudsen neitar engu því er stendur í
grein minni, því það getur hann ekki og ætlar
eg því ekki að svara honum neinu, en hálf
hlægilegt er það af fullorðnum manni að halda
því frarn, að niðurjöfnunarnefndarkosning í Reyk-
javík sé »privat«mál Merkúrs. Slík kosning er
auðvitað opinbert mál, og úr því Merkúr tók þá
afstöðu að skifta sér af því, þá hlaut það auðvitað
að koma fram opinberlega í þessu máli.
Yður, Geir Jón, er það að segja, að bezt hefði
verið fyrir yður að þegja um þetta mál, því þér
voruð ekki á fundi og vitið því ekkert hvað þar
fór fram, enda kom það ljóslega fram í allri grein-
inni.
Þó Árni Knudsen »í urnboði stjórnarinnar« sé
að ilskast út af því að eg skuli hafa gert þetta
að blaðamáli og stjórnin muni á sínum stað og
tíma standa reikningsskap gerða sinna, þá hefir þó
Geir Jón líklega ekki samþykt það umboð því
hann kemur og fyllir 2 dálka Vísis, sem ekki geng-
ur út á annað en að verja og skýra gerðir stjórn-
arinnar í þessu máli, og ]>að kom auðvitað eng-
um við nema félagsmönnum. En úr því að Geir
Jón »í stjórn Merkúrs« hefir nú gert þetta prívat-
mál Merkúrs að blaðamáli, þá ætla eg að mér sé
leyfilegt að fara nokkrum orðum um þessi skrif
hans.
Hann þykist nú hafa fundarbókina fyrir fram-
an sig, sem eklci hefir verið lesin í félaginu ennþá,
og segir að samkvæmt henni sé stjórninni ekkert
»óheimilt í þessu máli«. Og jafnframt segir hann,
að ' henni hafi verið falið að reyna tvær leiðir í
þessu máli. Já, stjórninni var falið að reyna tvær
leiðir og annað elcki. Allar a ð r a r leiðir var
henni óheimilt að fara í nafni félagsins. Félag-
ið samþykti annað hvort að komast í samband við
Sjálfstjórn eða þá að koma fram sjálfstætt með
lista. A fundinum sagði þá sjálfur Knudsen, að ef
þetta væri samþykt, mætti stjórnin ekki leita
fyrir sér annarstaðar, og vildi bæta við
að stjórnin mætti einnig leita til Alþýðuflokksins.
Þetta tóku fundarmenn ekki til greina, og var
því hitt samþykt óbreytt. Þar með samþykti fund-
urinn að ef þessar tvær leiðir ekki reyndust færar,
að skifta sér þá ekki af kosningunni í þetta
sinn. Enda hefir líka form. félagsins fyllilega við-
urkent það við mig að þessar gjörðir stjórnarinnar
séu óheimilar samkvæmt samþykt fundarins og
hún hafi gert þetta upp á sitt eindæmi og ábyrgð.
Það var aðeins brýnt fyrir stjórninni að gera
það sem hún áliti heppilegast í þeim 2 leiðum,
sem henni var falið að fara. Það er því ósatt, að
henni hafi ekki verið nein leið »óheimiluð«. Sú
leið, sem hún fór, var henni á þessum fundi bönn-
uð, hvað sem síðar kann að ske. Þetta er sann-
leikur, sem hvorki Knudsen eða Geir Jón hafa
reynt að hrekja, heldur aðeins liefir Geir Jón reynt
að snúa út úr honum.
»Aðalatriðið var að koma einum manni að í
niðurjöfnunarnefnd til að gæta hagsmuna verzlun-
arstéttarinnar«, segir Geir Jón.
Látum svo vera. En hvernig fer svo stjórn-
in með það »aðalatriði«, þá hún þyggur 4. sætið
á Alþýðuflokkslistanum, sem eftir öllum þeim kosn-
ingum, sem fram hafa farið hér í bæ, er engin
von að geti komið þar að nema 3 mönnum, og
allra sízt eins og sá listi er nú skipaður.
Eg vona að öllum sé nú ljóst, að Haraldur
Möller er hvorki fulltrúi Merkúrs né verzlunar-
manna á Alþýðuflokkslistanum, enda var ekki
hægt að velja óheppilegti mann, að því leyti að
hann er af nær öllum bæjarbúum óþektur, og
sömuleiðis þekkir lítið til þeirra. Að sitja í nið-
urjöfnunarnefnd þarf önnur meðmæli en að vera
bróðir Jakobs Möllers, þó auðvitað þurfi enginn að
skammast sín fyrir það.
Stjórn Merkúrs hefir farið mjög óviturlega og
flausturslega að í þessu máli og hefir því ekkert
leyfi til að hrópa hástöfum í blöðum bæjarins:
»Sá yðar, er situr .heima eða vinnur á móti yðar
eigin fulltrúa, hann svíkur sína stétt«.
Verzlunarmenn munu allir kjósa þá menn, er
þeir álíta heppilega og hæfa í niðurjöfnunarnefnd,
og eru alls ekkert bundnir að kjósa þann mann,
er stjórn Merkúrs hefir eingöngu sjálf klínt á Al-
þýðuflokkslistann í heimildarleysi.
Hvað viðvíkur félaginu Sjálfstjórn, er mér
óhætt að fullyrða það, að Merkúr hefði getað feng-
ið þar jafnvel þriðja sætið, ef beiðnin hefði kom-
ið nógu tímanlega og hæfir menn hefðu verið í
boði.
Er svo útrætt um þetta mál af minni hálfu,
og bíður annað í þessu máli þar til við mætumst
á sínum stað og tíma.
Erlendur Pétursson.