Vörður - 01.05.1918, Blaðsíða 1
VÖRÐUR
—MÁLGAGN BARNAKENNARA—
i. árg. Reykjavík, maí 1918. 8. tbl.
• •
Ogmundur Sigurðsson
sliólastjóri
er lærimeistari margra íslenskra barnakennara. Er þaö
og veröur óbætt tjón, aö Ögmundur Sigurðsson skyldi
ekki veröa kennari viö kennaraskólann, er hann fluttist
til Reykjavíkur. Það.vita þeir best, sem setið hafa á
skólabekkjum og hlýtt á hann •— og marga aöra til
samanburöar.
Þessi sannleikur er ekki sagöur til aö kasta nokkurri
rýrð á góöa kennara, sem starfaö hafa við kennarskóla
Reykjavíkur.
Grein sú, sem hér fer á eftir, er tekin úr
„Heimskringlu“. Reit síra Friðrik Bergmann greinina,
og er hún vel þess verö, aö hún sé birt í heilu lagi, og
stendur þá „Verði“ næst aö flytja hana. Greinin er
þannig:
„Litlu fyrir síðastliðna jólahátíð kom hingaö til bæjar-
ins einn af mætismönnum þjóðar vorrar og hefir dvalið
hér síöan. Finst mér það fyllilega viðeigandi að Heims-
kringla fari nokkurum orðum um þann góða gest og
erindi hans. Maðurinn er Ögmundur Sigurðsson, kennari.