Vörður - 01.05.1918, Blaðsíða 3
VÖRÐUR
59
Ögmundur var líklegur til aö vera skýr og skemtilegur
förunautur. Árin 1882 til 1889 feröuöust þeir saraan víös
vegar um landiö aö meira eöa minna leyti. Á vetrum var
hann kennari viö barnaskólann á Eskifiröi í fimm ár. Aö
þeim tíma liönum fór Ögmundur til Kaupmannahafnar og
stundaði þar nám viö kennaraskóla einn, veturinn 1887-8.
Um þetta leyti voru barnaskólar fyrst aö rísa upp á
íslandi. Einn slíkur barnaskóli haföi risiö upp á Útskál-
um fyrir ötula tilhlutan síra Jens Pálssonar, sem þá var
þar prestur. Til þessa skóla réðst nú Ö. S. sem kennari
og var þar frá því áriö 1888 og þangað til 1896, nema
skólaárið 1890—1, þegar hann stundaði nám viö kennara-
skóla í Chicago, eins og fyr var getið. Haustiö 1896
var kennaradeildin við Flensborgarskólann í Hafnarfiröi
stækkuö. Réöst þá Ögmundur þangaö sem kennari í
náttúrusögu, reikningi og landafræði, og átti um leið að
halda uppi verklegum æfingum í þessum greinum. Áriö
1907 var sérstakur kennaraskóli stofnaður í Reykjavík
og síra Magnús Helgason geröur forstööumaður hans.
Kennaradeildin var þá afnumin viö Flensborgarskólann.
Síðan hefir Ö. S. veriö forstöðumaður Flensborgarskól-
ans. Og nú fjögur ár hefir sá skóli verið algerlega hlið-
stæöur gagnfræöaskólanum á Akureyri. Svo aö segja öll
þessi sumur hefir Ögmundur ferðast með erlendum feröa-
mönnum um fjöll og firnindi fslands. Einn i þeirra tölu
var Þjóðverjinn Paul Hermann, prófessor, senr ritað hefir
eina hina ágætustu ferðasögu um ísland, sem ritin hefir
veriö, með alls konar fróðleik urn land og lýö, og höf-
undurinn hefir fengiö mikið hrós fyrir. En þaö hefir mér
veriö sagt af þeim mönnum, sem þótst hafa vita, aö
fróöleikvtrinn í þeirri bók styöjist að mjög miklu leyti