Vörður - 01.05.1918, Síða 4

Vörður - 01.05.1918, Síða 4
6o VÖRÐUR viíS fróöleik ögmundar kennara, er tjáöi honum alt uin sögu landsins, staðháttu og þjóöháttu aö fornu og nýju. Er óhætt að segja, að fremur fáir menn eru fróðari i þeim efnum eða færari til að koma útlendum ferðamanni í skilning um alt þaö, sem fyrirhugað er í slíka fjöl- fræði-ferðasögu, en einmitt ögm. Sigurðsson. Líklega er hann nú allra manna kunnugastur vegum Islands, — bæði vegum og óvegum um sveitir og fjöll. Mun enginn núlifandi manna hafa ferðast eins mikið um landið og hann. í sögu landsins og íslenskum fræðum er hann prýðilega að sér, auk þess sem hann hefir ágæta mentun í almennum fræðum og æfingu kennarans og fimleik í að bregða henni fyrir sig, þegar á ríður. ögm. Sigurðsson kennari mun hafa ráðist í ferð þessa að til- hlutan ýmsra þeirra manna, er annast láta sér um fræðslu- málin í landinu. Þeim fanst það þess vert, að hann færi vestur hingað, til þess að kynna sér fræðslumál hér vestan hafs, bæði i Bandaríkjunum og Kanada, og vita, hvort hann yrði ekki einhvers fróðari, er komið gæti að notum i þeim efnum á ættjörðu vorri. Breyting á fræðslu- lögum landsins liggur í lofti. Skólum landsins þykir þurfa að breyta, til þess að fá eins fjölhæfa menn og unt er til að gefa sig við alþýðufræðslu. Barnaskólar eru nú komnir á með föstu skipulagi í kaupstöðum. í sveit- um er víðast hvar farandkensla. Skólahaldið stendur yfir i föstum barnaskólum hálfan áttunda mánuð. Skólaskylda er lögleidd um aldursskeiðið frá 10 til 14 ára. Þegar eg átti tal um þetta við Ögmund kennara kvaðst hann eiga mikið eftir að kynna sér hér í Manitoba. Hann hefði til dæmis ekki kynt sér kennaraskólann og ekki C 0 11 e g i a t e skólann hér í bænum.

x

Vörður

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vörður
https://timarit.is/publication/518

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.