Ungi hermaðurinn - 15.06.1912, Side 6

Ungi hermaðurinn - 15.06.1912, Side 6
46 Ungl hermaðurlnn. poka kerlingar, og földu sig svo ein- hversstaðar, þar sem þeir sáu hvað henni leið. Þegar Olína gamla sá brennikubb- ana, reyndi hún með öllu móti að losa sig við þá, en gat ekki með nokkru móti leyst snærið. Hún leit þá í kring- um sig, og þegar hún sá engan, tók hún pokann undir hönd sór og gekk heim; en drengirnir, sem sáu alt hvað leið, þóttust nú hafa vel spilað og voru kátir. Nú bar svo til nokkru eftir þetta, að þrír drengir gengu seint um kvöld, heim að húsi Olínu gömlu. Hún var háttuð, svo nú var gott tækifæri til að skemta sór með því að áreita hana eitthvað. — Fyrir utan húsdyrnar stóð stafur Olínu. Hann tóku þeir og mölvuðu úr honum broddinn. Svo náðu þeir í fötu og sóttu vatn og heltu þvi við dyrnar, svo þar varð hált svell, því frost var mikið. Kftir það gengu drengirnir heim aftur. Snernma um morguninn gengu tveir af þessum sömu drengjum þangað aftur til að vita hvað gjórst hafði. Fljótlega stansaði annar þeirra og sagði: Hvaða hljóð var þetta, sem eg heyrði þarna uppi í skóginum; það er víst eitthvað þar. Við sknlum fá okkur hjálp og fara svo þangað og vita hvað um er að vera. Þeir kölluðu þá á tvomenn,sem þeir sáu á gangi, og litlu síðar var Ólfna gamla borin heim að húsi sínu. Svo var læknir sóttur, og sagði hann, að Ólína gamla væri fótbrotin. Þegar dreng- irnir heyrðu þetta, brá þeim við. Einn sagði: Það var vitanlega ekki eg, sem fann upp á þessu. Annar sagði: Eg var ekki einu sinni með. En þeir fundu þó, að þeir voru okki saklausir. Þeir 3 drengir, sem höfðu spunnið þenna síð- asta þátt, voru sórílagi angurværir og vissu ekki hvað þeir áttu til bragðs að taka. Þeir höfðu heyrt að Ólfna gamla væri fátæk, og þess vegna kom þeim ásamt um að gefa henni alla þá aura, sem þeir áttu í sparibaukunum sínum. Það var vitanlega hart aðgöngu að verða að láta þá alla, en hvort þeir töluðu hór um fleira eða færra, þá var það staðráðið að færa henni peningana og af- henda henni þá sjálfir. Þegar Ólfna sá þessa þrjádrengi komi inn til sín, greip húu undir eins staf sinn til að berja þá með; en þegar þeir sáu það, stön8uðu þeir. Þegar hún svo stilti sig, sagði sá elzti af drengjunum : Við ætluðum alls ekki að gjöra þór neitt ilt, heldur voru það bara glettur, og við iðrumst þess, að hafa gjört það. Ó, ætli þið iðrist þess ekki þó, sagði Ó1 ína gamla stygg, og nú fengu þeir að heyra í fullum mæli hverjir þeir væru. Jú, það gjörum við og sjáðu, hór fær- um við þér alla sparipeningana okkar. Ólína leit tortrygnislega til þeirra og sagði : Þið hafið líklega klipt niður nokkrar brófræmur og ætlist svo til að eg trúi því að það sóu poningar. Svo greip hún aftur staf sinn og það var að því komið að hún ræki þá á flótta. Þó stilti hún sig og fór að skoða pening- ana, sem drengirnir nú róttu henni, og þegar hún hafði athugað þá þá vand- lega. og sá að það var rótt, sem dreng- irnir sögðu, spurði hún hvort það vreri virkilega meining þeirra að gefa henni peningana 1 Þeir játtu þvf allir. Hún lót þá stafinn falla niður á gólfið og nokkur tár sáust hrynja niður eftir hrukkóttu kinnunum hennar. Nær því daglega eftir þetta gengu drengirnir upp að húzi Ólínu gömlu, og hún komst að raun um það, að þeir voru f reyndinni ekkert slæmir drengir. Þeir lásu fyrir hana ýmislegt og gjörðu alt, sem gjöia

x

Ungi hermaðurinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ungi hermaðurinn
https://timarit.is/publication/528

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.