Ungi hermaðurinn - 01.06.1920, Blaðsíða 2

Ungi hermaðurinn - 01.06.1920, Blaðsíða 2
42 Ungi henuaSurinn. dSrqftavQrfi cJ&su. í Mattensar guðspjalli, 21. kap. 15. 16., lesum vér: »En er œðstn prestarnir og fræði- mennirnir sáu dásemdarverk- in, sem hann gerði, og börnin sem hrópuðu í helgidóminum: Hósanna Haviðs syni!, þá gramdist þeim og þeir sögðu við hann: Heyrir þú hvað þessir segja? En Jesús segir við þá: Já; hafið þér aldrei lesið þetta: Af munni harna og brjóstmylkinga hefir þú tiíbúið þér lof«. Eg hygg að það só hið fyrata, sem festir sig í hugskoti barnsins þegar það les eða heyrir um líf Jesú og starfsemi hér á jörðunni, sem sé kraftaverk hans, kærleiks- verk hans. T. d. þegar hann lækn- aði þá sjúku, gaf þeim mat, sem hungraðir voru, og huggaði þá sem voru sorgbitnir. Já, þá finst börnunum ástæða til þess að lofsyngja og hrópa: Hósanna Davíðs syni En menn nú á dögum virðast vera mjög svo líkir prestunum og fræðimönnunum á Jesú dög- um, — börnin mega ekki lofa Drottin. — Börn hafa ekkert vit á því, segja sumir. En þannig talaði Jesús ekki. »Af munni barna og brjóstmylkinga hefir þú tilbúið þér lof«, var svar hans til fræðimannanna. Látum oss tala við börbin og unglingana um kraftaverk Jesú. Ekki einungis um kraftaverk hans á meðan hann var hér á jörð- unni, heldur einnig um krafta- verk hans nú á dögum; hvernig menn fyrir trúna á hann verða nýir og betri menn. Er það ekki kraftaverk þegar þjófurinn verðui’ heiðarlegur maður, þegar lygar- inn lætur af lygi sinni og talai' sannleika, þegar spottarinu og blótmaðurinn fara að ákalla Drottin, og faðirinn, sem áður sóaði vikukaupi sinu í veitinga- húsinu í staðinn fyrir að kotni1 með það heim til konunnar og barnanna — því þannig eru mörg þúsund feður —, - fleygir frá sér flöskunni og öllum illura löstum og fer að þjóna Guði? Hinn nafnfrægi trúboði, Gipsy Smidt í Ameriku, segir frá, að kvöld eitt, þegar hann var á leiðinni á samkomuna, sem hano átti að stjórna, kæmi til haus lítil stúlka og rétti honum brjóst- sykurpoka, Þegar hann spurðí hana af hverju hún gerði þetta, sagði hún: Vegna þess, að síðan þú komst hingað og fórst að halda samkomur. og pabbi fór að sæk]a þær, þá kemur hann aldrei fulluf heim né slær mömmu. Kraftaverk Krists! Mega börniu ekki vera með að lofa slíkan frelsara ? Og þó er það hið stærsta kraftaverk sem Jesús lét Bke og sem hann lætur ske þann dag 1 dag, á svo mörgum unglingulU’ sem sé þegar Drottinn kveik11 ljós trúarinnar i hjörtum þeirra-

x

Ungi hermaðurinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ungi hermaðurinn
https://timarit.is/publication/528

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.