Ungi hermaðurinn - 01.09.1921, Page 6
70
Dngi hermaöurlnn.
burtu hér um bil 2 ár, án þess
að láta heyra frá sér. Á þessum
tíma hafðí hann farið víða og
kynst mörgu. I fjelagsskap vondra
félaga var hann svo vanur synd-
inni og götum hennar, að honum
fanst ómögulegt að snúa við;
hann vildi halda áfram, eins og
hann hafði byrjað, því aðrir vegir
fundust ekki, fanst honum. Eg
bað hann að skiifa heim, og loks
fekk eg hann til að skrifa nokkr-
ar línur heim til móður sinnar
Ungu félagarnir tóku liann að
sér og brátt kunni hann betur
við sig i félagsskap þeirra, en
sinna eigin félaga, og hjarta hans
mýktist, og við sáum okkur til
undrunar, að Guðs andi vann
meira og meira. Frá foreldrum
sinum fekk hann svo kærleiks-
rík bréf með bæn um aö koma
heim, alt skyldi verða fyrirgefið.
Móðir hans skrifar: »Við höfum
beðið eftir þér og gáð að þér.
Litli bróðir er vanur að standa
við gluggann og gá að hvort
stóri bróðir komi ekki bráðum.
Hörð barátta milli ljóssins og
myrkursins valda var háð í sálu
hans, en Guð vann sigur. Hann
beygði sig við krossins fót og
tók á móti fyrirgefningu og krafti
til að sigra, frá honum, sem sigr-
aði yfir synd og dauða; það var
umbreyting frá dauða til lífs.
Hversu ánægð sendum við hann
heim, sera nýjan son og bróður
til foreldra og systkyna. Já, sem
hinn týnda son, sem var fund-
inn.
Framfara hugsun.
»Af hverju heldur þú að Frans
verði hamingjusamur?* spurði
maður nokkur kunningja sinn,
sem nýbúinn var að lána 19 ára
gömlum unglingi dálítið af pen-
ingum, til þess að hafa sig áfram
með.
>Jú, þau bjuggu í sama húsi
sem við«, svaraði maðurinn »hann
var eina barnið. Móðir hans var
veik, og var aumingi í mörg ár.
Frans byrjaði að vinna snemma
á morgnana og hélt áfram, fram
að þeim tíma, er hann varð að
fara í skólann, hann þvoði og
eldaði og reyndi á allan hátt að
hjálpa móður sinni.
Aðrir drengir gerðu gis að hon-
um, en hann stóðst það alt sam-
an og útskrifaðist úr skólanum
með hæðstu einkunn*.
»Jeg er fús til að hjálpa hon-
um um tvöfalt meira en eg hefi
gjört, til þess ryðja sór veg«.
Frans er nú einn af framfara-
mestu ungu mönnum í þessuffl
litla bæ.