Ungi hermaðurinn - 01.01.1923, Síða 2
2
Ungi hermaðurinn.
Til hinna ungu.
Á hvern vilt þú hlusta
' á árinu 1923.
(Sjáið myndina á 1. síðu).
Eftir Majór Grausiund.
Þú vilt nátturlega hlusta á þá
sem þér geðjast best að, og þú
vilt keppa eftir að líkjast þeim.
Er það pabbi ykkar og mamma
sem þið elskið mest? Eg vona
að það sé svo, að þið elskið þau
heitast af öllum mönnum, og ef
þú gerir það, þá vilt þú hlusta
á aðvaranir þeirra og áminningar
til þin. Eru það kennararnir þínir,
sunnudagaskólakennararnir eða
aðrir sem vilja fræða þig í öllu
þvi sem er gott og nytsamlegt,
eru það þeir sem þú elskar? Ef
svo er þá vilt þú gefa gaum að
orðum þeirra. Þú vilt þá keppa
eftir að vera bestur og dugleg-
astur allra í skólanum. Þá vilt
þú leitast við að sækja sunnu-
dagaskólann stöðugt og reglu-
bundið, og þá munt þú vilja hlusta
á þær leiðbeiningar sem þér eru
gefnar þar, af bekkjarstjóranum,
eða öðrum. Og ef þú af hjarta
elskar Guð, þá er það svo sem
auðvitað að þú ert fús til að
hlusta á hans orð, og að biðja
frelsarann að leiðbeina þér og
hjálpa til þess að lifa honum
þóknanlegu lífi á nýbyrjaða ár-
inu. Það munu einnig verða
illar raddir sera vilja hvisla í
eyru þér. Þú átt ef til vill slæma
skólafélaga, sem án minstu sam-
viskuásökunar vilja lokka þig til
að gera það sem er ljótt og órétt.
Þeir vilja kanske fá þig til að
að tala ósatt; hlustaðu ekki á þá.
Farðu ekki með lýgi, því hún er
versti óvinurinn þinn. Þeir vilja
ef til vill fá þig til að tala ljótt,
að blóta o. s. frv. Legðu ekki
lag þitt við þvílíka félaga, þeir
eru ekki vinir þínir. Hlustaðu á
GÖðs góðu rödd sem talar til þín
og sem kallar þig til hins góða,
sanna og hreina; til alls þess
sem Guð hefir velþóknun á.
Littu á myndina á fremstu síð-
unni og biddu Guð að hjálpa
þér yfir allar freistingar, svo þú
megir læra að vera góður, sann-
ur og gagnlegur.
Tóbaksnautnin.
Kæru ungmenni! Eg leyfi
mér með þessum línum að minn-
ast lítilsháttar á tóbaksnautnina.
Flestir vita, að hún er mjög skað-
leg og spillandi og að hún sljóvg-
ar þá, sem neyta tóbaksins, og
hefir spillandi áhrif á líkamann,
veikir lungun og magann.
En það er ekki að eins heils-
an, sem spillist við að brúka tó-