Ungi hermaðurinn - 01.01.1923, Qupperneq 3

Ungi hermaðurinn - 01.01.1923, Qupperneq 3
Ungi hermaðurinn. 3 bak. Það eru einnig miklir pen- ingar, sem hver einstakur eyðir i tóbak. Eg veit íleiri en eitt dæmi um það, að menn hafa eitt mörg bundruð krónum í tóbak á ári. En sorglegt er að sjá bláfátæka diengi eyða jafnvel sínum sið- asta eyri í vindlinga og hafa svo, ef til vill, ekki matinn ofan í sig Athugið, hvað þið getið keypt ykkur margt nytsamt og fróðlegt, sem er ykkur til gagns og skemt- unar, fyrir þá peninga, sem þið iátið af hendi fyrir tóbak. Að endingu þetta: Byrjið al- drei á þeim Ijóta ósið að nota tóbak, því þá langar ykkur aldrei i það. Og eg bið ykkur, kæru Ungmenni, að taka undir með »Arnfirðingnum«, sem sagði eitt sinn í Æskunni: »6erið það sjálf- Um ykkur til góðs, og þjóð ykk- ar til heiðurs, að brúka ekki tó- bak, drekka ekki vin og tala ekki ljótt«. Æskuvinur. Eftir > Æskunni*. Bænheyrsla. Það var kona nokkur í Kóreu seni fyrir 24 árum siðan meðtók ■Jesús í hjarta sitt og sem þar af leiðandi var rekin, af mannin- um, burtu af heimilinu. Hún gekk svo um og boðaði fagnaðarerindið. Árin liðu og komu þar til 22 ár voru liðin, frá því að hún seldi alt, til þess að kaupa hina dýrmætu perlu. öll þessi ár gleymdi hún samt ekki að biðja fyrir gamla heim- ilinu sinu. Svo atvikaðist það svo að eftirtekt eins sona henn- ar var vakin á biblíuflokki nokkrum, og sem varð verkfæri í hendi Guðs, honum til frelsis Og nú hafði hann svo mikil á- hrif á föður sinn að hann veitti einuig frelsinu í Kristi viðtöku. Þegar svona var komið þá sendu þeir boð eftir hinni gömlu út- skúfuðu eiginkonu og móður, og synir hennar færðu hana aftur heim og voru nú álíka góðir og kærleiksríkir og þeir höfðu áður verið illir við hana. Gömlu hjónin lifðu nú aftur undir sama þaki, hamingjuríku lífi, ásamt börnum þeirra. Móð- irin heldur áfram með að út- breiða frelsis og friðarboðskapinn, en er nú studd af fyrirbænum og blessun heimilisin3. Þrátt fyrir það, þó við lærum að lifa í samfélagi annara — þá er það þó í einverunni sem við lærum að undirbúa okkur undir dauðann.

x

Ungi hermaðurinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ungi hermaðurinn
https://timarit.is/publication/528

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.