Ungi hermaðurinn - 01.10.1924, Qupperneq 7
Ungi hermaðurinn.
79
þinu; hve mjög kætiat hann yfir
hjálp þinni! . . . Því þú kemur
i móti honum með hamingjubless-
^num, þú setur gullna kórónu á
höfuð honum* (Sálm. 21, 2—4).
Sunnudagurinn 19. október.
42.
Davíð telur þegna sína.
1. Kron. 21, 1—27.
Aths. Joab var yfirherforingi,
°g sáttmálsörkin hafði enn eigi
^erið flutt til Síon (1. Kron. 21—29).
^essvegna skeði þetta á stjórnar-
árum Davíðs. Það var mjög eðli-
iegt að ungur maður, sem var
^eykinn yfir sinni nýju stöðu,
^ildi gjarnan vita hve mörgum
v°pnfærum mönnum hann ætti
yfir að ráða.
VERS TIL MINNIS: »Eigi fæst
fyrirgefning án blóðsúthellingar
' • . Kristur dó fórnardauða, svo
hann burt bæri margra synd-
ir«. (Hebr. 9, 22 og 28).
Sunnudagurinn 26. október.
43.
Sáttmálsörkin eriílutt
til Síon.
•2. Sam. 6, 1—23.
VERS TIL MINNIS: .Himnarnir
^ulu vegsama dásemdarverk þín
^rra, og söfnuður heilagra trú-
esti þína. Því að hver er í himn-
^úm jafn Guði?« (Sálm. 89, 6—7).
Stjarnan.
Á meðan heimstyrjöldin stóð
yfir, var einu sinni lítill drengur
á gangi með föður sínum á götu
1 Ameríku.
Drengurinn tók eftir þvi að á
mörgum hurðum voru sjörnur,
og hann spurði hvernig á því
stæði.
Faðirinn sagði honum að allir,
sem ættu föður eða son i stríðinu
mættu setja stjörnu á hurðina sína.
Nú tók drengurinn eftir öllum
stjörnunum og taldi þær upp.
»Sjáðu pabbi, þarna eru tvær
stjörnur, þá eru tveir drengir
þaðan í stríðinu.
Þarna eru þrjár, og þarna er
ein«.
Loks komu þeir út fyrir húsa-
röðina og ekkert skygði nú á
hinn fagra himin. Drengurinn
leit upp, og sá skæra stjörnu.
»Pabbi«, sagði hann lágt, með
alvöru þrunginni röddu, »þarna er
stjarna, Guð hefir líka gefið son«.
Já, vor himneski faðir gaf
sinn eingetinn son til þess að sigra
Satans vélræði og hjálpa okkur
í baráttunni við syndina.
Sigurinn mun verða vor, ef við
trúum á hann, sem afrekaði oss
endurlausn með dauða sinum, og
sem með upprisu Binni sigraði
hinn siðasta óvin — dauðann.