Ungi hermaðurinn - 01.03.1927, Side 7

Ungi hermaðurinn - 01.03.1927, Side 7
LJngi hermaðurinn 23 honum augnskurð með ágætum árangri. »Hvernig fæ jeg launað yður, herra læknir?« sagði maðurinn. »Jeg á ekki eyrisvirði!« Læknirinn svaraði: »Þjer getið borgað mjer á mjög einfaldan hátt. Segið öllum, sem Jojer hittið, að þjer hafið verið blindur, en nú sjeuð lJjer alheill orðinn, og jafnframt hver það var, sem læknaði yður.« Maðurinn varð næsta glaður og lofaði þessu hátiðlega, og innan skamms hafði læknirinn fengið heiri sjúklinga en hann gat annast. Væri það ekki vel til fundið, að vjer launuðum Jesú á sama hátt °g boðuðum öllum lýði mátt hans °g náð? Hve langan tíma heldur Þú að til þess þyrfti að leggja Mt mannkyn að fótum hans? Sunnudagaskólinn. Sunnudagur 6. mars. Frelsarinn i Getsemane. Matth. 26, 30—46. LÆRDÓMSGREIN: »Og hann gekk lítið eitt lengra áfram, fjell fram á ásjónu sína, baðst fyrir °g sagði: Faðir minn, ef mögulegt er. þá fari þessi bikar fram hjá mjer; þó ekki sem jeg vil, heldur sem þú vilt.« (Matt. 26, 39). Sunnudagur 13. mars. Frelsarinn svikinn og honum afneitað. Matth. 26, 47—75. (Segið frá 50.— 68. grein, sje naumur tími). LÆRDÓMSGREIN: »Minnist hans, sem orðið hefir að þola það, að syndarar afneituðu honum. svo að þjer örvæntið eigi í sál- um yðar«. Sunnudagur 20. mars. Jesús dæmdur. Matth. 27, 1—2; 11—31. LÆRDÓMSGREIN: »Því að Kristur leið einnig fyrir yður og eftirljet yður fyrirmynd, til þess að þjer skylduð feta i hans fótspor. Hann drýgði ekki synd og svik voru ekki fundin í hans munni; hann illmælti eigi aftur er honum var illmælt, og hótaði eigi, er hann leið.« (1. Pjet. 21—23). Sunnudagur 27. mars. Krossfesting Krists. Matth. 27, 32—60. LÆRDÓMSGREIN: »Hann bar sjálfur syndir vorar á líkama sín- um upp á trjeð, til þess að vjer skyldum, dánir frá syndunum, lifa rjettlætinu. Fyrir hans benjar er- uð þjer læknaðir.« (1. Pjet. 2, 24).

x

Ungi hermaðurinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ungi hermaðurinn
https://timarit.is/publication/528

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.