Ungi hermaðurinn - 01.03.1927, Síða 8
24
Ungi hermaðurinn
Söngvar.
i.
Lag: Juble min Tunge.
Lausnarinn kallar — komið þjer
allar,
Vegmóðu sálir, jeg veiti’ yður frið.
Eftir mjer breytið, öruggar þreytið,
Stríðið því fúsar, — jeg legg yður
lið.
Byrði min ljett og okið mitt er
Indælt það finna skjótt munuð
þjer,
Vonglaðir iðjið, vakið og biðjið
Dýrðlegt svo hljótið hnoss.
Ó, hvað er meira indælt að heyra
En þessi náðarorðin svo blíð
Herrans af munni — heitt sem
oss unni
Svo að hann þoli þjáning’ og strið.
Hann sem frá eilifð til eilífðar
ímynd er föðursins hátignar;
Með sínu blóði meistarinn góði
Græddi vor syndasár.
Hvað er sem bætir — böl þegar
mætir
Betur en trúin á frelsarann?
Hún er sú eina uppsprettan hreina
Eilífa svölun er veita kann.
Komið til Jesú, hann kallar enn
Komið því tíminn liðinn er senn.
Ef þjer vel breytið, yður er heitið
Sólbjörtum sigurkrans.
2.
Lag: Ak, hvor snart forsvinderej Minutet.
Himnum á, ef hyggur þú að finna
Helgan frið og bjartan sigurkrans.
Fyrir Drottin verður þú að vinna,
Vinna undir merkjum sannleikans.
Tef ei lengur, tíminn aldrei bíður,
Treystu’ ei næsta degi, vinur kær.
Hvert augnablik, sem örskjótt
fram hjá líður,
Eilífðinni flutt þig hefir nær.
Gjálífis ef bergir þú af brunni,
Bráð er hætta fyrir þína sál.
Um stundarsakir svala þótt það
kunni,
Sárt það tendrar eilíft þorstabál.
Guðs í nafni gæt þín, ungi maður,
Gef ei þínum fýsnum Iausan taum.
Fyrirlít þú heimsins hræsnis
smjaðui;.
Höndla frelsið — æfitíð er naum.
Lind er ein, sem lífgar best og
nærir;
Lindin Jesú orða mild og hrein.
Öllum þyrstum sálum svölun færir,
Sjerhvert græðir þeirra dýpsta
mein.
Sannan hjartans frið ef viltu finna
Flýðu’ í trúnni undir Jesú kross.
Þar mun öllum þrautum andans
linna
Þú munt hljóta dýrðlegt sæluhnóss.
Útg. og ábm. p.t.: Kr. Johnsen, adjutant.
Ísafoldarprentsmiðja h. f.