Velvakandi - 24.03.1919, Qupperneq 4

Velvakandi  - 24.03.1919, Qupperneq 4
4 VELVAKANDI ásamt öðrum dansmönnum, svo sein þeim Birni og Felix, að ógleymdum dansstjóranum. Aðgöngumiðar verða að eins seldir handa »pari« og kosta 5 kr. Þeir fást hjá br. Birni Arnórssyni í Þingholts^- stræti 1 (búð Jóns Þórðarsonar) og hjá br. Feiix Guð- mundssyni i Suðurgötu 6. Hinar stúkurnar. St. Skjaldbreið nr. 117 hefir vegnað vel það sem af ér þessum ársfjórðungi, fundir verið skemtilegir og fjölsóltir. Á næstsíðasta fundi heimsótti st. Framtíðin nr. 173 og voru þá um 200 manns á fundi, fjörugar umræður og að síðustu leikinn gamanleikur, »Gæfuskórinn« eftir Sigurð Heiðdal. Leikendur allir voru Skjaldbreiðingar og þótti vel takast. Slúkan starfar í 3 flokkum í vetur og eru flokksstjórar br. Einar þórðarson skósm., br. Guðgeir Jónsson bókb. og br. Felix Guðmundsson. Töluverð kepni er milli flokk- anna, tekir inn margir nýir félagar, haldin hlutavelta, sem gaf af sér góðan arð og snemma i næsta mánuði verður haldin verulega góð kvöldskemtun til ágóða fyrir fátækan liróður, sem dvalið hefir í vetur til lieilsubótar á Vífils- slaðahæli. — Stúkan gefur út skrifað blað, sem lesið er upp á fundi tvisvar í mánuði og þykir góð skemtun, enda liefir það ýmislegl að færa, gaman og alvöru, fróð- leik, kveðskap o. fl. t*að heilir »Fjölnir«. — Stúkan hefir nú um 100 félaga, mest ungt fólk, sem yfirleitt er áliuga- samt og skyldurækið, eins og Templurum ber að vera. — Allmargir hafa tekið umdæmis- og stórstúkustig og munu þó margir við bætast á nálægum tíma. Umboðsmaður stórtemplars er Felix Guðmundsson. Ábyrgðarmaður: Pétur Zóphóníasson. Prenlsmiðjan Gutenberg.

x

Velvakandi

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Velvakandi
https://timarit.is/publication/529

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.