Nýtt kosningablað - 11.04.1914, Blaðsíða 2

Nýtt kosningablað - 11.04.1914, Blaðsíða 2
KOSNINGABLAÐ Útboð. t’eir, sem vilja taka að sjer vörslu bæjarlandsins utan Lauganes- girðingarinnar, á sumri komandi frá 1. maí til 15. okt., sendi borgar- stjóra tilboð um það í lokuðu umslagi, auðkent »Varsla«, fyrir kl. 12 á hádegi þ. 14. þ. m. Allar upplýsingar um starfið lætur skrifstofa borgarstjóra i tje. Borgarstjóri Reykjavíkur, 8. apríl 1914. c?a// Ginarsson. Hann bauð þeim, að senda bíl suður eftir þeim kosningadaginn, ef þeir kysu sig og L. H. B. Eru þetta heilindi? Er þetta fallega gert gagnvart hinum frambjóðandanum, sem berst nú með Sveini? Er Sveinn hræddur um, að Sig- urður kunni að verða hærri en hann sjálfur að atkvæðatölu, en hyggur hins vegar óhugsandi, að þeir komist báðir að vegna hins mikla fylgis við Jón Magnússon, sem augljóst er orðið fyrir löngu af áskorunum til hans? Biður hann þá ekki um að kjósa L. H. B. með sjer af því að hann haldi, að fylgi L. H. B. sje svo lítið, að það geri sjer ekkert, þótt atkvæðin lendi þar? Svari kjósendur þessu eins og þeim finst rjeltast. En eru ekki þetta óheilindi hjá, Sveini Björnssyni gagnvart Sigurði Jónssyni? Eru það ekki megn óheilindi? Er það ekki ófyrirgefanlegt af bandamanni? Jú, og aftur jú! Jeg frjetti þessa sögu í gærkvöld, og jeg ællaði ekki að trúa henni í fyrstu,- En jeg fjekk svo örugga sögusögn um þetta, að jeg gat ekki efast. Og mjer þótti það alt annað en fallegt. Mann, sem þannig fer að, kýs jeg ekki. Jeg hef verið sjálfstæðismaður. En mjer ofbýður þetta atfeili, að mæla fast með Sig. J. opinberlega, en fara svona að við hann í púkri. Mjer ofbýður það svo, að jeg get ekki þagað yfir þvi. Það hefur haft þau áhrif á mig, að síðan jeg Qekk það að vita, segi jeg við alla: Kjósið ekki Svein Björnsson! Geir. L.I.B. oglsl. Steinolíufjelagiö. Hvers vegna hefur L. H. B. hvað eftir annað verið að hnýta í ísl. steinolíufjelagið og þá, sem fyrir því standa? Jeg hygg að jeg hafl fengið lausn á því nýlega. Kunnugur maður sagði mjer, að hann hefði sjálfur sótst ákaft eftir að komast i stjórn þess. Hann sagði mjer, að L. H. B. hefði gert út mann eða menn til þess að tala máli sínu við framkvæmdastjór- ann. En hvernig á því stóð, að bann komst samt sem áður ekki að, — það get jeg ekki sagt. Mjer datt í hug, að segja frá þessu, er jeg las i málgagni L. H. B. í dag, að hann finnur stjórn- inni meðal annars til foráttu »makk við dans-íslenska Steinolíufjelagið«. Jeg man það, að það, sem hann hefur áður sagt um þetta, hefur verið rekið öfugt ofan í hann í blöðum eins og margt annað. En samt heldur hann nuddinu áfram. Mundi það ekki vera af reiði yflr því, að hann komst ekki i stjórn fjelagsins? — Mjer dettur ekki í hug, að leggja trúnað á neitt af því, sem hann segir um stjórnina, og þá eigi fremur en annað það, sem hann segir um hana i sambandi við þetta fjelag. En mjer finst rjett að benda á, að hatin hefur sjálfur viljað komast í »makk« við fje- lagið, og söm er hans gerðin, þótt hann fengi þar hryggbrot, eins og víðar. Kári. Kjósendafundir voru lialdnir í öllum samkomu- húsum bæjarins á miðvikudags- kvöldið. Fram-menn komu saman í Templarahúsinu að vanda. Þar hjeldu töl.u milli 10 og 20 manns. Lengstu ræðuna hjelt Hannes Hafstein ráðherra. Sagðist honum mjög sköruglega, og tætti hann sundur lið fyrir lið alla undanfarna ósannindatuggu Árv. og ísaf. um stjórnarstörf hans. Húsið var troðfult (á að giska 400 manns) og urðu ýmsir frá að hverfa, sem hafði langað að heyra ráðherra tala. Ekki þurftu þeir langt að fara til að finna húsaskjól, því að Pjóðreisnin var á fundi í Iðnó, og þangað voru allir velkomnir. Flestir hörf- uðu þó fljótt út aftur, því að svo var mikil deyfð þar inni, að öllum hjelt við svefni. Flestir urðu þeir 69 á fundinum. Þar töluðu L. H. B., Ágúst heimspekingur og A. J. Johnson. L. H. B. setti fundinn, og voru þá komnir 20 menn. Sagði hann að gaman hefði sjer þótt að tala í þeim sal, ef hann sjálfur hefði verið ánægður i skapi, og salurinn fullur af fólki, en nú var jafn áfátt um hvorttveggja. Ágúst sagði ekkert markvert, enda hafði enginn ætlast til þess af honum. A. J. Johnson mælti fast með kosningu L. H. B., og er það mál manna, að ekki muni hann hafa talað i óþökk húsbónda síns, Björns Kristjánsson- ar, nje flokksbræðra sinna í Sjálf- stæðisflokknum. Sjálfstœðisliðið hafðist við í húsi K. F. U. M., og voru þar um 100 manns á fundi. Þar var lesin upp og rædd Igsing Lögr. á L. H. B. og þótti lýsingin góð. Minst var einnig á lýsingu Sk.-Gr. á Sjálfst fl. og þótti hún ekki fögur, en ekki treystust menn að hrekja neitt í henni, og því bráðlega vikið að öðru efni. P hrzkja jraman i sjáljan sig er list, sem nú er leikin í flokks- stjórn sjálfstæðisflokksins. Þar er gefið út blað með rokna skömmum um »bræðinginn« svo- kallaða. En samt er annað af þingmannsefnum flokksins einn af forkólfum »bræðings«-samtakanna. Það er Sveinn Björnsson. Með skömmunum um »bræðing- inn« drítur hann í sitt eigið hreiður. Með skömmunum um »bræðing- inn« hrækir hann í sitt eigið andlit. Með skömmunum um »bræðing- inn« gerir hann sig að ómerkum manni. Hver getur treyst manni, sem þannig fer að? Gamall y>brœðingsmaðurm. Þið Fram-menn. Sýnið Valtýsku-Þjóðræðis-Þjóð- reisnar - Landvarnar - Sjálfstæðis- piltunum það í dag, að við gctum «‘im sigrað eins og við höfum oft gert áður. Skipnin okkur í þjetta tylkingu. Sækjum fast frain. Allir eiuhuga. Þá er sigurinn vis. Fram-maður. Kosningahorfar norðanlands. Merkur bóndi úr Þingeyjarsýslu, sem hjer er staddur nú, og hefur nýverið farið um Norðurland, enda nákunnugur þar, skýrir svo frá, að alþýða manna i Suður-Þing- eyjarsýslu, Eyjafjarðarsýslu, Akur- eyri, Skagaflrði og Húnavatnssýslu vilja eindregið sigðja núverandi stjórn, og telur að allar kosningar i þeim kjördæmum muni falla stjórninni í vil. Tíl gitðis Sigurði. €n hvað þá Sveini? í blaði, sem sjálfstæðismenn gefa hjer út, er Sig. Jónssyni talið það til gildis, að hann hafl verið á móti »bræðingnum«, þ. e. móti sátt og samlyndi landsmanna um það mál, sem þeir eiga að sækja í hendur Dana. Þetta eru heimskuleg meðmæli. En ef það geta verið meðmæli með Sigurði í einhverra augum, að hann hafi verið móti »bræðingnum«, þá hlióta það líka að vera mótmæli gegn Sveini Björnssyni, hinu þing- mannsefni flokksins, að hann var »bræðingsmaður«. Eða er það gott og gilt i sjált- st.-flokknum, að mæla með öðru þingmannsefni flokksins með skömmum um hitt? ? Gömnl vísa. Á þinginu 1912 voru þeir J. ÓI. og L. H. B. mjög ósamdóma um steinolíumálið. J. Ól. hjelt þá fyndna ræðu um stein- oliuleka, en ef; til vill ekki mjög merka að öðru leyti. Og þá korn fram þessi vísa og var eignuð J. ól.: »DebeIl sje með sitt D. D. P. til d......í burtu rekinn, því lítið bætir, þótt Lárus sje á lekakontóna tekinnw. Kjómandi kvað: Þar fer L.... þunghugsandi, heldur stúrinn, hallar kjamma. Furðu framsettur finst mjer hann vera. Er hann óljettur eftir B .... ? „Niður með svikarann!(( hljómaði gegn L. H. B. á þing- málafundinum, þegar hann loksins vildi minnast á afstöðu sina til þess flokks, sem hann hafði áður verið í. Munið honum i dag, hvernig hann hefur brugðist þeim, sem kusu hann 1911. Bjartur kosningadagur boðar sigur fyrir þá, sem hafa hreinan og góðan málstað. En ósigur fyrir hina, sem pukra í myrkrinu og sitja á svikráðum hver við annan. En það gera þeir bandamenn- irnir, Sjálfstæðismenn og L. H. B. £. 1.3- og 3. JCr. L. H. B. vildi i gær fá B. Kr. til þess að láta Sigurð Jónsson draga sig i hlje við kosningunaog var í pukri skjal sent út í þeim erindum. En fjekk ekki áheyrn í flokknum. . : | ý Prentsm. Gutenberg.

x

Nýtt kosningablað

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Nýtt kosningablað
https://timarit.is/publication/531

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.